31/3/2024

Hjól sýningarinnar valin

Höfundur:
Jokka G Birnudóttir
Hjólamenningin

Farið hefur fram kosning á mótorhjólum sýningarinnar, en valið var um þrjú efstu sætin í þremur flokkum.

Flokkarnir eru fallegasta hjólið, athyglisverðasta hjólið og verklegasta hjólið.

Fengnir voru 21 einstaklingur til verksins af ýmsum aldri og af báðum kynjum til að ná fram breidd í valinu.

Mörg mótorhjól náðu inn í valið en hér eru þrjú efstu sætin í hverjum flokki:

Fallegasta mótorhjólið :Kawasaki Z1 900

Honda CBX 1000

Landakortið

Athyglisverðasta mótorhjólið

:Henderson

Panther

Landakortið/Martin Bros

Verklegasta mótorhjólið

:Boss Hoss

Hayabusa Spiderman

War Eagle

Eyjólfur "Trukkur" var að vonum ánægður með stigagjöfina en Boss Hoss fékk flest stig yfir heildina.
Það þarf ekki að koma á óvart að Henderson hafi verið valið athyglisverðasta mótorhjólið enda hefur hjólið mikið sögulegt gildi hérlendis. Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd eiganda þess, Gunnars Grímssonar, en faðir hans gerði hjólið svona listavel upp.
Sigurjón P. Stefánsson fékk fyrstu verðlaun fyrir fallegasta mótorhjólið en Kawasaki Z1 900 hjólið hans háði harða baráttu við Honda CBX1000 sem varð í öðru sæti.

...

Nýlegar fréttir