Sýna efni eftir merki: Tryggjum sanngirni
Þriðjudagur, 19. Apríl 2011 10:18

Opinn fundur með tryggingafélögunum.

 

Miðvikudaginn 13. April var haldinn opinn fundur með tryggarfélögunum Vís, TM, Sjóvá og Verði, þar sem rædd voru tryggingamál hjólafólks. Tryggingarfélögin byrjuðu fundinn með að stikla á stóru um mótorhjólatryggingar almennt og fara yfir stöðu þess málaflokks. Að loknum kynningum félaganna var opnað fyrir spurningar og umræður úr sal.

Umræðan snéri að miklu leyti um tryggingar á hlífðarfatnaði og bætur vegna skemmda á honum.  Ljóst þykir að vinna þarf í því að fá hlífðarfatnað skilgreindan sem hluta bifhjólsins, til að tryggja að hann sé bættur á réttmætan hátt við tjón.

Mæting á fundinn var góð og umræður fjörugar en fundurinn var á vegum tryggingavaktar Snigla, Fundarstjóri var Birgit Raschhoer sem séð hefur um fundarstjórn aðalfunda Snigla undanfarin ár.

Sniglar þakka fulltrúum tryggingafélaganna fyrir góðan fund, sem og öllum þeim sem á fundinn mættu.

 

Birt í Tryggingavakt
Sunnudagur, 17. Apríl 2011 21:27

Tryggingavakt snigla.

Sniglar hafa sett á laggirnar tryggingavakt. Markmið tryggingavaktar er að vinna að tryggingamálum bifhjólamanna með því  að veita tryggingafélögunum aðhald, og ná fram samvinnu,  til að stuðla að réttlátum tryggingum mótorhjóla.

  • Megin verkefni tryggingavaktar eru:
  • Kortlagning tryggingarmála mótorhjólafólks.
  • Aðstoða félagsmenn Snigla í einstaka málum er varða tryggingar mótorhjóla.
  • Upplýsa félagsmenn Snigla um skilmála tryggingafélaganna og frávik frá þeim.
  • Að vera í náinni samvinnu við Tryggingafélög og stjórnsýslu um tryggingar bifhjólafólks.
  • Að upplýsa félagsmenn um hvað er að gerast í tryggingamálum.

Netfang tryggingavaktar er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og hvetjum við félagsmenn til að senda okkur inn upplýsingar og fyrirspurnir sem varða tryggingar mótorhjóla. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Birt í Tryggingavakt
Fimmtudagur, 07. Apríl 2011 23:20

Svar VÍS til Bifhjólasamtaka lýðveldisins

 

Í framhaldi af umræðu á vef Sniglanna telur VÍS mikilvægt að svara þeim rangfærslum sem þar eru.

Varúðarreglur í bifhjólatryggingu VÍS:
VÍS leggur mikla áherslu á forvarnir í sínu starfi og leitast við að ná til viðskiptavina sinna með þeim á eins fjölbreyttan hátt og kostur er. Sniglar hafa fjallað um núllsýn á málþingi sínu en með núllsýn er m.a. leitast við að lágmarka líkur á líkamstjóni eins og kostur er ef slys verður. Hlífðarbúnaður bifhjólamanns er þar gríðarlega mikilvægur eins og bílbelti er ökumönnum. Með því að setja inn í varúðarreglu að ökumaður og farþegi skuli vera í lágmarks hlífðarbúnaði þá er VÍS að auka líkur á að þeirra viðskiptavinir noti þann sjálfsagða öryggisbúnað. Þunginn í umræðunni meðal bifhjólamanna er að með varúðarreglunni sé möguleiki á að skerða bætur ef hlífðarbúnaður er ekki notaður. Sá möguleiki var til staðar fyrir tilkomu bifhjólatryggingar, en tilgangur varúðarreglunnar er forvarnir.

Hlífðarbúnaðartrygging VÍS:
Farþegar á bifhjólum eru alltaf tryggðir með ábyrgðartryggingu bifhjóls sem er skyldutrygging. Hlífðarbúnaður ökumanns er aðeins bættur úr slysatryggingu ökumanns og eiganda ef líkamstjón verður, líkt og fram kemur í dómi hæstaréttar frá 13. júní 2002 í málinu nr. 19/2002 og niðurstöðu Héraðsdóms í máli E-1141/2010.

Í óhappi þar sem ekki verður líkamstjón er hlífðarbúnaður ökumanns ekki tryggður í slysatryggingu ökumanns og eigenda. Fjölskyldutryggingar sem eru valkvæðar tryggingar bæta hlífðarbúnað ef innbrot, eldsvoði eða vatnstjón verður á lögheimili viðkomandi en eingöngu með bótafjárhæð að hámarki 2% af vátryggingarfjárhæð.  Til að brúa þetta bil býður VÍS  valkvæða hlífðarbúnaðartryggingu  ætlaða ökumönnum þar sem hámarksvátryggingarvernd er u.þ.b. kr. 450.000.-

Flokkun bifhjóla hjá VÍS:
Mikilvægt er að tryggingafélög geti miðað iðgjöld við tjónaþunga. Hjá VÍS hefur  fyrsta skrefið í þá átt verið tekið með því að flokka hjól í 10 flokka. Til að vera viss um rétta flokkun hafa viðskiptavinir verið beðnir um  að láta vita ef þeirra hjól eru flokkuð rangt þegar þeim berast upplýsingar um endurnýjun trygginga sinna.

Eins og staðan er í dag  er iðgjöldum eingöngu skipt upp í tvo flokka, sporthjól og önnur bifhjól, en horft er til framtíðar um að hafa iðgjaldaflokkana fleiri. Tölfræði VÍS sýnir að slys þar sem sporthjól koma við sögu eru mun alvarlegri en annarra hjóla og því eru tryggingar sporthjóla dýrari. Á vef Sniglanna hefur verið rætt um að aldur og reynsla bifhjólamanna eigi að skipta miklu máli við ákvörðun iðgjalda. Rannsóknum ber þó ekki saman um mikilvægi þessara þátta sbr. að sumar rannsóknir benda til að með aukinni reynslu minnki oft árvekni og slysum fjölgi. Á vef Sniglanna er fjallað  um slíka rannsókn þar sem niðurstöður sýna að reynslan er ekki jafn mikilvægur þáttur og góð þjálfun. Því þarf að ígrunda vel fyrirkomulag iðgjalda sem byggir á aldri og reynslu ökumanns.

Á fundi Sniglanna á Grand Hótel  Reykjavík þann 13. apríl nk. kynnir  VÍS bifhjólatryggingu og hlífðarbúnaðartryggingar sínar og svarar fyrirspurnum um þær.

Reykjavík 7. apríl 2011
Erna Sigurgeirsdóttir vörustjóri einstaklingsviðskipta VÍS og 
Sigrún A. Þorsteinsdóttir forvarnarfulltrúi einstaklingsviðskipta VÍS

 

Birt í Tryggingavakt
Þriðjudagur, 05. Apríl 2011 08:44

Opinn fundur með tryggingarfélögunum - UPPFÆRT

Fundur með tryggingafélögunun verður haldinn miðvikudaginn 13. apríl næstkomandi á Grand hótel Reykjavík og hefst hann kl 19.30 stundvíslega og stendur til 22.00.

Hafa öll tryggingarfélögin boðað komu sína á fundinn.

Umræðuefni fundarins eru tryggingar og skilmálar þeirra,
Þetta er einstakt tækifæri fyrir tryggingarfélögin og ykkur, að  eiga opin samskipti um mikilvæg atriði eins og:
Skilmála tryggingar
Bótarétt
Flokkun bifhjóla í tryggingum
Hlífðarfatnað o.fl.

fundurinn er opinn öllum og er aðgangur ókeypis,  hlökkum til að sjá ykkur

Birt í Tryggingavakt
Þriðjudagur, 15. Mars 2011 14:11

Tryggingarmálin á félagsfundi

Tryggingarmálin verða í brennideplinum á félagsfundi á morgun, miðvikudaginn 16. mars. Meðlimir í stjórn og umferðarnefnd Snigla verða á staðnum til að fara yfir hvað er í gangi í þessum málaflokki.

Ef þú vilt fá upplýsingar um þessi mál, koma með ábendingar eða bara ræða þessi mál kíkið þá við á félagsfund í félagsheimilinu í Skeljanesi. Verðum með heitt á könnunni.

Birt í Tryggingavakt
Mánudagur, 14. Mars 2011 23:15

VÍS með einhæfa flokkun bifhjóla

 

Hvernig flokkum við þá áhættu sem fylgir því að aka mótorhjóli? Er Racer jafn hættulegur í höndum reynslulítils ökumanns eins og þess sem er með mikla reynslu eða er endurohjól hættulegra en krossari? Allir þeir sem aka mótorhjólum vita það að áhættan getur verið mismunandi, en slysin gerast á öllum tegundum hjóla og ef hægt er að benda á einhvern áhættuþátt þá er það reynsla eða reynsluleysi ökumannsinns ásamt aldri sem spilar mun stærri rullu en það á hvernig hjóli hann hjólar. Á fundum með tryggingarfélögunum síðastliðið haust lögðu Sniglar á það áherslu að reynsla ökumannsins ætti að hafa meira vægi þegar til mats iðgjalda kæmi en sú útfærsla hjóls sem hann kýs að hjóla. Á áðurnefndum fundum buðu Sniglar fram hjálp sína við flokkun hjóla þar sem horft væri til hjólanna með tilliti til reynslu og aldurs þeirra sem aka þeim. Nýverið birti VÍS tryggingarfélag á vef sínum nýja flokkun bifhjóla, þar sem bifhjól eru flokkuð í tíu áhættuflokka. Taldir eru upp helstu flokkar mótorhjóla er snúa að notkun eða útfærslu þeirra hjóla sem á markaðnum eru. Fram kemur að flokkunin byggir á flokkun sem Sniglarnir hafi tekið saman. Raunin er hinsvegar sú að sú flokkun sem VÍS er að vitna til kemur af vefsíðu Snigla og er birt þar í samhengi við umfjöllun um hvernig hjól eru i boði, ekki var á neinn hátt stuðst við nokkuð áhættumat hverrar tegundar fyrir sig, hvað þá að það væri metið á einhvern hátt hvort reynsla eða reynsluleysi gæti haft áhrif á þá áhættu sem fylgdi því að hjóla viðkomandi tegund.

Sniglar hvetja tryggingarfélögin, vilji þau á annað borð áhættuflokka mótorhjól, til að setja fram flokkun sem er byggð á raunverulegu áhættumati þar sem stuðst er við rannsóknir sem taka tillit til reynslu og aldurs þeirra sem hjóla bifhjólunum.

 

Birt í Tryggingavakt
Sunnudagur, 13. Mars 2011 21:19

VÍS gengur á lagið varðandi hlífðargalla

Eins og glöggir mótorhjólaeigendur hafa tekið eftir hefur tryggingarfélagið VÍS sett fram í skilmálum sínum að ökumaður og farþegi bifhjóls skuli nota lágmarks hlífðarfatnað ætlaðan til slíkra nota. Eins og Bifhjólasamtök Lýðveldisins hafa margsinnis bent á þegar fundað hefur verið með stjórnsýslunni vegna nýju umferðarlaganna er þetta einmitt hættan, að tryggingarfélög nýti sér þá klásúlu í lögunum að nota skuli hlífðarfatnað við hæfi. Áskilur tryggingarfélgið sér rétt til að fella niður ábyrgð í heild eða að hluta fari tryggingartaki ekki eftir þeim. Við þetta hljóta að vakna margar spurningar sem erfitt er að svara. Hver á að svara því hvað telst lágmarks hlífðarfatnaður? Eru tryggingarfélögin með sérfræðinga í slíkum málum eða á að fara eftir slyslaskýrslum? Eru lögreglumenn eða þeir sem sinna slysarannsóknum til þess hæfir? Ef að farþegi sest aftan á mótorhjól í ónógum hlífðarfatnaði, hver ber þá ábyrgð? Ljóst er að þetta eru slæmar fréttir fyrir mótorhjólafólk og að berjast þarf gegn þessari þróun. En eins og þetta sé ekki nóg gengur tryggingarfélagið á lagið í þessu og býður nú sérstaka, valkvæða tryggingu á hjálm og hlífðarfatnað. Tekur tryggingarfélagið fram að almenn vátrygging bæti ekki tjón á hlífðarfötum og hjálmum, hvort sem er úr ábyrgðartryggingu bifhjólsins eða slysatryggingu ökumanns og eiganda. Ljóst er að þetta er á afar gráu svæði svo ekki sé meira sagt. Á næst að bjóða valkvæða tryggingu fyrir öryggisbúnað í bifreiðum? Líklega yrðu bíleigendur ekki sáttir ef að öryggisbúnaður eins og öryggispúðar eða öryggisbelti væru ekki tryggð í tjóni, nema að keypt hefði verið sérstök öryggisbúnaðartrygging. Löng hefð hefur verið fyrir bótum fyrir hlífðargalla í tryggingarmálum gegnum árin og ljóst að bifhjólafólk mun ekki taka því þegandi og hljóðalaust að sá réttur sé tekin af þeim. Lesendum til glöggvunar er hér tengill á skilmála VÍS fyrir bifhjólatryggingar:
http://vis.is/library/Tryggingaskjol/Tryggingaskilmalar/okutaekjatrygginga/BA11%20Bifhjólaskilmáli.pdf

Birt í Tryggingavakt
Fimmtudagur, 13. Janúar 2011 21:51

FME lítur á starfshætti tryggingafélaganna

 

Í framhaldi af umræðum um tryggingar og verðlagningu trygginga á bifhjól sendu Sniglar FME erindi varðandi forsendur og  starfshætti tryggingafélaganna. FME hefur lokið könnun á málefnum tryggingafélaganna og sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu á vef sínum.

 

Forsendur iðgjalda og framkvæmd nýtrygginga í lögmæltum ökutækjatryggingum vegna bifhjóla

Nýverið athugaði Fjármálaeftirlitið (FME) forsendur iðgjaldagrundvallar og framkvæmd nýtrygginga í lögmæltum ökutækjatryggingum vegna bifhjóla hjá öllum skaðatryggingafélögum á íslenskum markaði.

Fyrir liggur að grunniðgjöld vátryggingafélaga í nefndum flokki grundvallast í meginatriðum á tvennu:

Annars vegar þeirri auknu áhættu sem fylgir notkun bifhjóla samanborið t.d. við notkun bifreiða. Þessi aukna áhætta felur í sér að tjónakostnaður verður umtalsvert hærri en í bifreiðatjónum, t.d. vegna meiri slysahættu ökumanns, sem aftur leiðir til hærri iðgjalda.

Hins vegar grundvallast iðgjöldin á þeirri staðreynd að af náttúrulegum orsökum eru bifhjól að meginstefnu til aðeins notuð hluta úr ári. Sú staðreynd gefur tilefni til þess að vátryggingartaki nýti rétt sinn skv. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar til þess að krefja vátryggingafélag hlutfallslegrar endurgreiðslu iðgjalds fyrir þann hluta úr ári sem skráningarmerki bifhjólsins eru í vörslu Umferðarstofu eða þess sem hefur umboð hennar.

Síðari forsendan vegur þungt í verðlagningu vátryggingarinnar en áhrif hennar verða best skýrð með dæmi:

Bifhjólaeigandi sem aðeins notar hjól sitt fjóra mánuði á ári fær sendan greiðsluseðil vegna iðgjalds að fjárhæð kr. 600.000. Samkvæmt reglugerð um lögmæltar ökutækjatryggingar getur hann krafist hlutfallslegrar endurgreiðslu þessarar fjárhæðar fyrir þá átta mánuði ársins sem skráningarmerki hjólsins eru í vörslu Umferðarstofu. Hann fær þá kr. 400.000 endurgreiddar frá vátryggingafélaginu og vátryggingafélagið heldur kr. 200.000 í iðgjöld sem standa eiga undir tjónakostnaði og rekstrarkostnaði.

Þar sem hér er um háar fjárhæðir að ræða hafa vátryggingafélögin í auknum mæli boðið vátryggingartökum, eins og þeim sem um getur í dæminu hér að ofan, að greiða svonefnt heilsársiðgjald án endurgreiðsluréttar. Í því felst að vátryggingartaki greiðir aðeins kr. 200.000 en samþykkir að fara ekki fram á hlutfallslega endurgreiðslu fyrir þann hluta ársins sem skráningarmerki hjólsins eru í vörslu Umferðarstofu. Á reikningi sem vátryggingartaki fær sendan eru kr. 400.000 þá skráðar sem afsláttur.

Flestir vátryggingartakar kjósa heilsársiðgjald án endurgreiðsluréttar þegar slíkt er í boði. Þegar flestir þeirra sem eru í sömu stöðu og bifhjólaeigandinn í dæminu hér að ofan greiða aðeins kr. 200.000 í iðgjöld rís gjarnan spurningin hvers vegna sú fjárhæð er ekki grunniðgjaldið.

Ástæðan er sú að vátryggingafélag getur ekki einhliða áskilið að vátryggingartaki semji um hið lægra iðgjald og afsali sér þannig rétti til hlutfallslegrar endurgreiðslu fyrir þann hluta ársins sem skráningarmerki hjólsins eru í vörslu Umferðarstofu. Af því leiðir að ef vátryggingafélag myndi senda greiðsluseðil fyrir kr. 200.000 myndi vátryggingartaki engu að síður geta krafist hlutfallslegrar endurgreiðslu. Slík krafa um endurgreiðslu fæli í sér að félagið endurgreiddi kr. 133.400 en eftir stæðu aðeins kr. 66.600 sem ekki myndu duga fyrir tjónakostnaði og eðlilegum rekstrarkostnaði.

Það áréttast að þær fjárhæðir sem hér voru notaðar eru aðeins nefndar í dæmaskyni en styðjast ekki við tölur frá tilteknu félagi. Hins vegar ætti framangreint dæmi að sýna þær forsendur sem liggja að baki iðgjöldum í lögmæltum ökutækjatryggingum vegna bifhjóla.

Við fyrrnefnda athugun veitti Fjármálaeftirlitið því athygli að í vissum tilfellum eru vátryggingartökum, þegar eftir að vátryggingafélag móttekur vátryggingabeiðni, sendir greiðsluseðlar fyrir fullu iðgjaldi vátryggingarinnar án þess að gerð sé grein fyrir möguleikanum á endurgreiðslu hluta hennar eða samningi um heildariðgjald án endurgreiðslu þegar slíkt er í boði. Hér er einkum um að ræða þau tilvik þegar vátryggingabeiðni berst frá öðrum en vátryggjanda sjálfum, t.d. fjármögnunarfyrirtæki eða þegar vátryggingartaki er ekki í öðrum viðskiptum við vátryggingafélagið.

Í nefndum tilfellum er vátryggingartaka ókunnugt um forsendur að baki iðgjaldinu. Þar af leiðandi getur hann hvorki metið tilboð félagsins né grundvöll viðskipta sinna við það að fullu.

Af þessum ástæðum hefur FME, á grundvelli heimilda til eftirlits með því að vátryggingastarfsemi samræmist góðum viðskiptaháttum og venjum á vátryggingamarkaði, farið fram á að vátryggingafélög endurskoði verkferla sína varðandi töku lögboðinnar ökutækjatryggingar vegna bifhjóla með tilliti til þeirra ábendinga sem eftirlitið hefur komið á framfæri.

 

Birt í Hagsmunamál
Þriðjudagur, 16. Nóvember 2010 23:52

Sniglar funda með tryggingarfélögunum

Nýlega voru haldnir 4 fundir með hverju tryggingafélagi fyrir sig og  á þá fundi mættu 3 fulltrúar Snigla

Almennt var farið yfir tryggingar og tryggingatengd mál á þessum fundum,  Tryggingafélögin fóru yfir afkomu bifhjólatrygginga undanfarin ár og þar virðist frekar halla á okkur bifhjólamenn . Tryggingafélögin eru flest þessa dagana  í innri vinnu varðandi nánari flokkun á  bifhjólatryggingum til að viðhalda ákveðnu samræmi varðandi iðgjöld og áhættu í ákveðnum hópum bifhjóla.

Við lögðum nokkrar spurningar fyrir tryggingafélögin td.  vegna útreikninga iðgjalda, varðandi forvarnir, upplýsingar varðandi algenga slysastaði,  afslætti á iðgjöldum vegna endurmenntunar að vori til og  hvort þeir  væru til í nánara samstarf og samræður, eins og að taka þátt í opnu málþingi ef til kæmi þar sem hinum almenna hjólamanni væri boðið að mæta og varpa fram spurningum varðandi tryggingamál.

Þessir fundir gengu afskaplega vel og eru vonandi  ávísun á áframhaldandi gott samstarf milli tryggingafélaganna og snigla

Við þökkum Vís, Tm, Sjóva og Verði  fyrir jákvæðar móttökur

Birt í Hagsmunamál
Föstudagur, 22. Október 2010 00:00

Vertu bara harður í samningum!

Þegar farið er yfir niðurstöður könnunar Snigla á tryggingum bifhjólafólks virðist ekki vera hægt að finna mynstur sem sýnir fram á hvað hefur áhrif á verðlagningu trygginga hjólafólks. Undir öllum eðlilegum kringumstæðum ætti aldur, hversu lengi þú ert búinn að hafa bifhjólapróf, og tjónleysi að hafa áhrif á hvað bifhjólafólk greiðir fyrir tryggingar á hjóli sínu. Það virðist hins vegar ekki vera raunin þegar teningnum er velt og nokkrar hliðar hans skoðaðar. Samningsharka er því sennilega það eina sem getur hjálpað bifjólamanni til að ná góðum "díl" við tryggingarfélagið. Eins og fram hefur komið hér á vef Snigla eru til nokkuð mörg staðfest dæmi um svimandi háa gíróseðla frá tryggingarfélögunum en niðurstöður tryggingarkönnunar Snigla sýnir þó allt aðrar rauntölur. Sé litið á þá þætti sem ættu að hafa bein
áhrif á verðlagningu er ekki hægt að merkja mun á milli einstaklinga.  

Viðskiptavild er klárlega áhrifaþáttur í viðskiptum og í raun mjög eðlilegur þáttur, en Sniglar kalla eftir því að tryggingarfélögin gefi skýringu á því hvers vegna þeir þættir sem raunverulega ættu að telja til lækkunnar geri það ekki.

Hér að neðan eru krufnar nokkrar af þeim spurningum sem lagðar voru fyrir þátttakendur könnunarinnar. Undir eðlilegum kringumstæðum ætti að sjást merkjanlegur munur á til dæmis greiðslum þeirra sem lengur hafa haft próf.
Ekki er að svo stöddu tekið fyrir tjón eða tjónleysi en þær tölur verða birtar á næstu dögum.

 

 

 

 

Birt í Hagsmunamál
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði