Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar skilgreina sig sem hagsmunasamtök einstaklinga, og vinna fyrir félagsmenn sinna. Megin starfsemi og áherslur í starfsemi samtakanna eru forvarnir og hagsmunagæsla í þágu bifhjólafólks.
Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar vilja stuðla að gagnkvæmri virðingu vegfarenda í umferðinni. Markmið Snigla er að berjast fyrir tilverurétti bifhjólafólks án þess að ganga á rétt annara. Sniglar vilja stuðla að samtakamætti bifhjólafólks innan samtakanna og út á við.
Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar berjast fyrir því að sanngirni sé beitt í gjaldtökum gagnvart mótorhjólafólki, í formi trygginga, veggjalda, vörugjalda og annars kostnaðar. Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar benda einnig á að bifhjól eru vistvænni (grænni) kostur en flest önnur vélknúin ökutæki
Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar leitast við að starfa með sem flestum aðilum og samtökum innan bifhjólageirans á innlendum og erlendum vettvangi, með það að markmiði að auka samstöðu bifhjólafólks og tryggja sem breiðastann grunn og réttann farveg fyrir hagsmunamál okkar.
Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar berjast fyrir öryggi bifhjólafólks í umferðinni og fækkun slysa, með auknum, markvissum forvörnum, betri kennslu og góðri samvinnu við stjórnsýsluna.
Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar vilja stuðla að jákvæðri umfjöllun um bifhjólafólk og bifhjólamenningu sem víðast, en tjá sig þó ekki um hegðun einstaklinga eða annarra samtaka.
Stefnuyfirlýsing Bifhjólasamtaka Lýðveldisins Snigla var samþykkt á aðalfundi samtakanna 13.02.2010