Undanfarið hefur verið unnið að stefnumótun fyrir Snigla. Kom það m.a. fyrst til vegna vinnu nemendahóps í Háskóla Íslands sem var með það verkefni að gera stefnumótun fyrir Snigla. Unnið var í samstarfi við stjórn Snigla á síðasta ári, 2008, og hefur verkefninu verið haldið áfram í tíð núverandi stjórnar.
Haldnir hafa verið 2 rýnihópar þar sem þeir félagsmenn sem á hann voru boðaði ræddu málin fram og til baka. Eins og segir þá verður framhald á þessari vinnu og verður fróðlegt að sjá hvert það leiðir.
Sjá má skýrslu nemenda HÍ með því að smella á þennan hlekk. PDF skjal opnast í nýjum glugga.