Lög Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla

1. grein - Nafn

Nafn samtakanna er Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar.

2. grein - Merki

Merki og nafn samtakanna er einkaleyfisverndað samkvæmt einkaleyfi 1046/1994. Merkið er hvítt á svörtum grunni áletrað nafni samtakanna og með mynd sem er bæði táknræn fyrir nafnið og starfsemina. Merkið er selt félagsmönnum og þar með eign þess er það kaupir. Taumerki skal bera á vinstri öxl.

3. grein - Heimili

Heimili samtakanna og varnarþing skal vera á Reykjavík.

4. grein - Tilgangur

Tilgangur samtakanna er að koma á sem víðtækustu samstarfi bifhjólafólks, gæta hagsmuna þeirra og bæta aðstöðu til ánægjulegri bifhjólamenningar, með því að:

• 1. Vinna að og fylgjast með nauðsynlegum endurbótum á umferðarlögum, kennslureglum, skoðunarmálum, tryggingargjöldum, opinberum gjöldum og öðru er viðkemur bifhjólum.
• 2. Efla vélhjólaíþróttir og vinna að því að skapa bifhjólamönnum aðstöðu til að stunda íþrótt sína á viðurkenndum svæðum.
• 3. Stuðla að auknum skilningi á málefnum samtakanna útávið.
• 4. Ná sem víðtækustu samstarfi við önnur félög, samtök og einstaklinga hvað varðar meðferð og notkun bifhjóla.
• 5. Efna til félagsstarfsemi s.s. funda og mannfagnaða
• 6. Vera fulltrúi bifhjólamanna gagnvart hinu opinbera.
• 7. Gefa félagsmönnum gott fordæmi um umgengi og verndun landsins.
• 8. Leitast við að jafna ágreining er upp kann að koma milli félagsmanna samtakanna. Stjórn samtakanna skal þó ekki hafa úrskurðarvald nema báðir eða allir aðilar óski þess.

5. grein - Inntaka

Hver sem er getur gerst félagi í samtökunum, að því tilskyldu að inntökuskilyrði séu uppfyllt. Inntökuskilyrði í samtökin eru að:

• 1. Umsækjandi í Snigla sé orðin fullra átján ára, en nái hann ekki þeim aldri þarf hann að koma með undirritað samþykki frá foreldrum eða forráðamönnum.
• 2. Umsækjandi hafi greitt fullt umsóknargjald sem er óendurkræft.

Komist stjórn að jákvæðri niðurstöðu varðandi umsóknina fær umsækjandi Sniglanúmer og taumerki og er þá fyrst orðinn félagi í samtökunum. Stjórn getur hafnað umsókn ef 3/5 hennar greiða því atkvæði.

6. grein - Brottvísanir

Hægt er að vísa einstaklingi úr samtökunum vinni hann bersýnilega gegn tilgangi og hagsmunum samtakanna. Til þess þurfa sjö atkvæðisbærir félagar að leggja fram sína skriflegu, rökstuddu kæruna hver til stjórnar. Berist stjórn brottvísunarkærur skal hún vinna úr þeim svo fljótt sem unnt er og skila niðurstöðum eigi síðar en 30 dögum eftir móttöku 7. bréfs. Vísi stjórn einstaklingi úr samtökunum hefur hann andmælarétt fram að næsta aðalfundi. Hafni stjórn brottvísunarkærum hafa kærendur andmælarétt á næsta aðalfundi. Skal aðalfundur taka fyrir þeirra mál og staðfesta eða hafna brottvísunum óski þeir eftir því.

7. grein - Gjöld

Rekstur samtakanna skal fjármagnaður með félagsgjöldum, útgáfustarfsemi og þ.h. Aðalfundur samtakanna ákveður félagsgjöld fyrir ár hvert. Félagsgjöld skulu staðgreidd. Félagi telst fullgildur og atkvæðisbær, greiði hann félagsgjöld ár hvert.  Stjórn ber ábyrgð á rekstri samtakanna milli aðalfunda, í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun. Samþykki 3/5 stjórnarmanna þarf til að samþykkja meiriháttar breytingar á fjárhagsáætlun, ásamt skriflegum rökstuðningi.

8. grein - Sjóður

Tekjur renna í sjóð samtakanna og skal honum varið í framkvæmdir og rekstur að öðru leyti eftir settum reglum á hverjum tíma. Fjórðungur af nettóhagnaði samtakanna ár hvert skal renna í varasjóð. Varasjóði þessum má einungis ráðstafa ef upp koma neyðartilfelli að mati stjórnar. Enginn félagi samtakanna hefur tilkall til hluta af sjóðnum þótt hann hverfi úr samtökunum eða þeim sé slitið.

9. grein - Upplýsingamiðlun

Stjórn samtakanna skipar ritstjórn fyrir vefsíðu Snigla og gerir við þá samning. Í ritstjórn skal að lágmarki vera ritstjóri og vefstjóri. Ritstjórn vefsíðu Snigla skal vera ábyrg fyrir útliti og innihaldi þess efnis er birt er á vefsíðu. Ritstjórn sér einnig um þróun og viðhaldi á heildarútliti síðunnar en samþykki stjórnar samtakanna þarf fyrir allar meiriháttar breytingar. Tilgangur vefsins er að miðla upplýsingum um hagsmunabaráttu hjólafólks, fróðleik um hjólamenninguna og segja frá starfsemi samtakanna. Stjórn og nefndir samtakanna skulu reglulega auglýsa á vefnum að hverju þær starfa og árangur sem hefur náðst. Önnur útgáfa á vegum samtakanna skal vera á höndum stjórnar. Ritari samtakanna er ábyrgðarmaður alls útgefins efnis samtakanna, þar með talið vefsíðunnar.

10. grein - Um aðalfund

Haldinn skal aðalfundur í febrúar ár hvert. Skal þar taka fyrir venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum samtakanna. Stjórn boðar til aðalfundar með a.m.k. tuttugu daga fyrirvara. Á fundinum skal kynna samantekt á reikningum samtakanna. Fundargjörð aðalfundar skal birt á vefsíðu samtakanna eigi síðar en þrjátíu dögum eftir aðalfund. Reikningsár samtakanna skal vera almanaksár. Eintak af endurskoðuðum ársreikningum skal svo birta á vefsíðu samtakanna eigi síðar en þrjátíu dögum eftir aðalfund. Aðalfundur er því aðeins löglegur sé löglega til hans boðað.

11. grein - Aðalfundur

Rétt til setu á aðalfundi hafa fullgildir félagar. Stjórn getur einnig boðið, ef sérstök ástæða þykir til, öðrum á fundinn. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis mættir fullgildir félagar. Formaður setur fundinn og kosinn er fundarstjóri. Fundarstjóri gerir tillögu að fundarritara og sker úr um öll atriði varðandi meðferð mála og atkvæðagreiðslna nema sérstök ástæða sé til að vísa því til fundarins. Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:

• 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
• 2. Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs
• 3. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs
• 4. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta stjórnarár
• 5. Ákvörðun félagsgjalda fyrir næsta ár
• 6. Lagabreytingar samkvæmt 13.gr. laga samtakana.
• 7. Kosningar samkvæmt 12.gr. laga samtakanna
• 8. Önnur mál.

12. grein - Kosning í stjórn og nefndir

Stjórn félagsins skipa fimm einstaklingar. Þeir eru kosnir til tveggja ára í senn samkvæmt eftirfarandi reglu:

• 1. Kjósa skal annað hvert ár formann stjórnar til tveggja ára í senn.
• 2. Kjósa skal árlega tvo stjórnarmenn til tveggja ára og þannig tryggt að tveir halda alltaf áfram milli ára.
• 3. Árlega skal kjósa þrjá varamenn í stjórn sem og tvo skoðunarmenn reikninga.
• 4. Annað hvert ár skal kjósa þrjá menn í laganefnd sem starfar skv. 18.gr. laga.

Stjórn skal starfa skv. 15. gr. laga.

13. grein - Lagabreytingar

Lagabreytingar skulu lagðar fram á aðalfundi enda hafi þeirra verið getið í fundarboði. Lagabreytingar öðlast gildi ef 3/4 hlutar mættra fullgildra félaga eru þeim samþykkir. Ef þær eru felldar má bera upp lagabreytingatillögur óbreyttar á næsta aðalfundi þar á eftir og öðlast þá gildi með 2/3 hlutum atkvæða mættra fullgildra félaga. Tillögur til lagabreytinga skal senda laganefnd skriflega eigi síðar en þrjátíu dögum fyrir aðalfund. Tilkynning um skilafrest lagabreytinga skal birt á vefsíðu samtakanna. Allar þær lagabreytingar sem laganefnd hafa borist skal stjórn senda með aðalfundarboði til fullgildra félaga samtakanna.

14. grein - Nefndir

Stjórn skal skipa í nefndir að loknum aðalfundi. Skipað skal í umferðarnefnd, trygginganefnd, skemmtinefnd, ferðanefnd, keppnisnefnd og landsmótsnefnd. Framboð til setu í nefnd skal berast á aðalfundi eða eigi síðar en 30 dögum eftir aðalfund.  Að þeim tíma loknum skal stjórn auglýsa eftir þátttöku í nefndir á vefsíðu samtakanna.
Stjórn tilnefnir einn nefndarfulltrúa í hverri nefnd sem tengilið nefndar við stjórn. Fjármál nefnda skulu vera að mestu eða öllu leiti í höndum gjaldkera samtakanna. Nöfn nefndanna vísa til verksviðs þeirra og skulu þær starfa eftir bestu getu og hafa hagsmuni félagsmanna og bifhjólafólks að leiðarljósi. Tengiliður umferðarnefndar situr í Umferðarráði og hefur kosningu þau 3 ár sem samgönguráðherra skipar í umferðarráð.

15. grein - Hlutverk stjórnar

Stjórn skiptir með sér verkum. Skipa skal í embætti varaformanns stjórnar, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund og skal sú tilhögun kynnt í fréttariti samtakanna eftir þann fund. Formaður boðar til stjórnarfunda ef þörf krefur eða tveir stjórnarmeðlimir óska þess enda hafi þeir áður gert grein fyrir fundarefni. Tryggt skal að stjórn geti komið saman með stuttum fyrirvara. Forfallist aðalmenn í stjórn eða hætta störfum skal kalla til varamann. Varamenn taka sæti í stjórn eftir atkvæðamagni frá aðalfundi. Taki varaformaður stjórnar við sæti formanns skal stjórn skipa nýjan varaformann og kalla til varamann til að taka sæti í fullskipaðri stjórn. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum, þó er ályktun því aðeins lögleg að þrír stjórnarmenn hið fæsta samþykki hana. Stjórn hefur á hendi sér allar framkvæmdir milli aðalfunda, hefur eftirlit með nefndum og kemur fram fyrir hönd samtakanna.

16. grein - Aukaaðalfundur

Stjórn boðar til aukaaðalfundar þegar þess er þörf eða a.m.k. 1/5 hluti fullgildra félaga samtakanna óska þess enda geri þeir áður grein fyrir fundarefni. Til aukaaðalfundar skal boða skriflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.

17. grein - Slit

Samtökunum verður aðeins slitið á aðalfundi og til þess þarf samþykki 3/4 hluta mættra fullgildra félaga. Fundur sá er samtökunum slítur ráðstafar eigum þess.

18. grein - Laganefnd

Kjósa skal 3 manna laganefnd til tveggja ára í senn, sem starfar á milli aðalfunda, og hefur umboð sitt frá aðalfundi.  Laganefnd er því ekki háð stjórn samtakanna.  Hlutverk laganefndar er að fara yfir þær lagabreytingartillögur sem berast og koma með nýjar lagabreytingartillögur ef þurfa þykir.

19. grein - Gildi

Lög þessi öðlast gildi 13.02.2010 og eru öll eldri lög samtakanna þar með ógild.

Síðast breytt: Mánudagur, 08. Mars 2010 00:58

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði