Vefslóð: Senda vini: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Á félagsfundinum næsta miðvikudag munu Sniglar afhenda Ás styrktarfélagi og Hollvinum Grensásdeildar í styrk innkomuna af jólahjólaballinu sem haldið var síðustu helgi.
Viljum við hvetja félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og gera þannig afhendinguna sem eftirminnilegasta. Og þeir sem liggja á klinki í baukunum heima hjá sér og vilja losna við það meiga að sjálfsögðu taka það með og bæta í pottinn sem styrkatfélögin fá.
Boðið verður upp á jólaöl, piparkökur og fleira góðgæri.
Jæja gott fólk, þá er komið að loka átakinu í undirskriftarsöfnuninni gegn nýjum umferðarlögum. Lokadagur í söfnun undirskrifta verður 12. desember næstkomandi og verður Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra afhentur listinn í þeirri viku, þegar hann leggur frumvarpið fyrir alþingi. Undirskriftirnar eru komnar töluvert á þriðja þúsundið og gaman væri ef að þær næðu að verða fleiri en 3000 talsins. Er stefnan sett á að fjölmenna á þingpallana við fyrstu umræðu líkt og síðast og verður því opinn viðburður opnaður bráðlega á Facebook svo það er um að gera að fylgjast vel með. Allt stefnir í að frumvarpið þurfi að komast í gegnum þingið í vetur þar sem að mörg atriði í þeim lúta að sameiginlegum lögum ESB sem þurfa að taka gildi ekki seinna en 2013. Meðal þeirra atriða er hækkun bifhjólaprófsaldurs um 3 ár, í 20 ár í stað 17, lögfesting laga um hlífðarfatnað auk fleiri atriða sem hægt er að skoða í fréttum á sniglar.is en hér er textinn sem fólk hefur skrifað undir:
"Ég vil mótmæla að hækka eigi lágmarksaldur töluvert til bifhjólaréttinda umfram lágmarksaldur til bílprófs. Ég mótmæli því einnig að ég megi ekki reiða barn sem nær niður á fótstig og er í góðum hlífðarfatnaði.
Ég mótmæli ennfremur því að hver sem er megi keyra skellinöðru án nokkurrar þjálfunar og reiða farþega. Síðast en ekki síst mótmæli ég því að vera skyldug/ur til að nota hlífðarfatnað sem enginn getur skilgreint."
Liggur þú á góðum hugmyndum fyrir starf Snigla? Vantar þig að koma ábendingum um starfið á framfæri? Þá höfum við réttan stað og stund fyrir þig.
Félagsfundurinn næsta miðvikudag verður hugmyndakvöld. Þá gefst félagsmönnum færi á að koma hugmyndum sínum á framfæri við stjórn. Allar hugmyndir, sama hversu litlar eða stórar, eru vel þegnar. Viljum við því hvetja alla sem liggja á góðum hugmyndum að kíkja við, fá sér sér kaffibolla, og spjalla við stjórn og aðra félagsmenn.
Á vormánuðum, nánar tiltekið helgina 1.-2. apríl, héldu Sniglar málþing um öryggi og ímynd bifhjólafólks á Íslandi. Málþingið var tvískipt, á föstudeginum 1. apríl var það með þjóðfundarsniði þar sem fulltrúar hinna ýmsu mótorhjólaklúbba og fleiri komu saman og skiptust á skoðunum um það hvar áherslur ættu að liggja í baráttunni fyrir bættu öryggi og ímynd bifhjólafólks. Fundurinn stóð yfir í tvo tíma og var margt gott og áhugavert sem kom út úr honum.
Á laugardeginum var málþingið með hefðbundnu ráðstefnusniði. Haldnir voru nokkrir fyrirlestrar fyrir hádegi og var efni þeirra mjög fjölbreytt. Umferðarnefnd Snigla sagði frá helstu verkefnum sem unnið var að og bar þar hæst verkefni í samstarfi við Vegagerðina um lagfæringar á vegakerfinu með það að markmiði að auka öryggi bifhjólafólks. Einnig var sagt frá svokallaðri Núllsýn sem er verkefni sem miðar að því að fækka banaslysum í umferðinni.
Þrír góðir gestir fluttu einnig fyrirlestur á málþinginu. Ágúst Mogensen hjá Rannsóknarnefnd umferðarslysa sagði frá bifhjólaslysum og hvað væri hægt að bæta til að koma í veg fyrir þau. Holger Torp frá Umferðarstofu sagði aðeins frá bifhjólaréttindum og hvaða breytingum þau taka ef ný umferðarlög verða samþykkt óbreytt á Alþingi og Sigrún Knútsdóttir kynnti síðan starfsemi Grensásdeildar LSH. Áður en haldið var í hádegismat var síðan sagt lauslega frá niðurstöðum þjóðfundarins frá deginum áður.
Eftir að málþingsgestir höfðu fyllt maga sína var haldið áfram. Ögmundur Jónasson, Innanríkisráðherra, hélt ræðu og að henni lokinni sátu Ögmundur, Geir Jón Þórisson frá Lögreglunni, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Runólfur Ólafsson FÍB, Sigurður Helgason frá Umferðarstofu og Hrönn Bjargar Harðardóttir úr stjórn Snigla, fyrir svörum fundargesta. Umræðurnar voru hinar líflegustu og margt áhugavert sem kom þar fram eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.
Af óviðráðanlegum ástæðum hafa niðurstöður þjóðfundarins ekki enn verið gerðar opinberar en bætt verður úr því á næstunni. Fyrirlestrarnir og umræðurnar á laugardeginum voru hins vegar teknar upp og eru aðgengilegar á youtube síðu Snigla og einnig er hægt að horfa á þér neðar í þessari frétt.
Setning
Núllsýn
Verkefnin
Vegagerðarverkefnið
Hér koma svör við þeim athugasemdum sem okkur bárust á tuð-og-fýlukvöldi. Athugasemdirnar eru skrifaðar nákvæmlega eins og þær komu fram, með eða án stafsetningar- og málfræðivillna.
Hagsmunamál
Hvað er að frétta af „LÍM“ fyrir utan stefnufundinn á torginu ?
-Stjórn Snigla hefur lítið heyrt af LÍM eða því sem er í gangi á þeirra vígstöðvum ef eitthvað er en telur þó að samtökin séu í það minnsta ennþá til sem slík.
Hlífðarföt
-Vinnan við hlífðarfatalögin er enn í fullum gangi, undirskriftarsöfnun á netinu, verið að tala við fólk í samgöngunefnd o.s.frv.
Fá tryggingafélög til að lækka slysatryggingu ökumanns þegar um 2 ökutæki er að ræða bíll + hjól
-Þar sem lög á íslandi banna ekki að einstaklingur láni öðrum bíl sinn eða bifhjól eru því miður ekki forsendur fyrir því að þetta sé framkvæmanlegt. Lögin kveða skýrt á um að hverju vélknúnu ökutæki verði að fylgja slysatrygging ökumanns og eða eiganda.
Forvarnir
Flottar hjóla „áminningar“-VIDEO- í sjónvarpinu :)
-Slíkar áminningar eru nauðsynlegar og erum við þessa dagana að vinna í auglýsingaherferð fyrir vorið 2012.
Kindur af vinsælustu mótorhjólavegum ss. Þingvallahring, Hvalfirði ......
-Í 6. grein laga um búfjárhald nr. 103/2002 segir m.a. “Sveitarstjórnum, einni eða fleiri samliggjandi sveitarfélaga, er heimilt, til að koma í veg fyrir ágang búfjár, að ákveða að umráðamönnum búfjár sé skylt að hafa það í vörslu allt árið eða tiltekinn hluta ársins. Heimild þessi getur jafnt tekið til alls umdæmis viðkomandi sveitarfélags eða afmarkaðra hluta þess, svo sem umhverfis þéttbýli eða fjölfarna vegi. Þar sem sveitarstjórn hefur gert umráðamönnum búfjár skylt að hafa búfé í vörslu skal vera gripheld girðing og ber umráðamaður búfjár ábyrgð á að svo sé.”
Svo ef við ætlum í slíkar aðgerðir þá myndu þær fyrst og fremst felast í því að hjóla í sveitarstjórnir landsins en engin ákvörðun hefur verið tekin um slíkt enn þá.
Hjólamenning
Vantar starfsmann fyrir samtökin?
-Þetta er spurning sem kemur alltaf upp öðru hverju. Við erum að kanna forsendur og leiðir til þess, meðal annars í gegnum VMST. Það er kostnaðarsamt að vera með starfsmann og fyrst þarf að skilgreina skýrt verksvið viðkomandi. Sem sagt; ekki tímabært núna á meðan við erum enn að stilla okkur af sem formleg hagsmunasamtök.
Sumum á torginu finnst ekki gott að hafa fund 1 sinni í viku –endalok Snigla? –funda?
-Það verður að vera með fund einu sinni í viku eins og lagt var upp með í fyrstu
Nei, þetta eru alls ekki endalok Snigla. Þvert í móti er verið að efla fundina með því að hafa þá færri en viðameiri. Þeir fundir sem haldnir hafa verið eftir að fyrirkomulaginu var breytt hafa verið vel sóttir og menn almennt ánægðir með þá. Ef meiningin væri að leggja niður Snigla eða félagsfundina þá væri tilgangslaust að vera að leggja meiri vinnu í það að gera þá efnismeiri og betri.
Halda Sniglafund í Eyjum
-Þessi hugmynd er í vinnslu og stefnt að því að gera alvöru úr henni á næsta ári 2012.
Vantar sykurlaust gos
-Ekki lengur :)
Sniglar
Merkin á buffinu snýr öfugt –td ef yfir nefinu –er það öfugt er bara rétt ef brotið saman
-Þetta verður skoðað og væntanlega lagað í næstu pöntun.
Eftir að fundum var fækkað hefur ekkert verið jákvætt
-Þessu getum við ekki verið sammála enda höfum við fundið almenna ánægju með þá viðburði sem haldnir hafa verið eftir að fundum var fækkað. Einhverjar óánægjuraddir heyrðust varðandi fækkunina sem slíka en við teljum að fólk hafi einfaldlega þurft tíma til að átta sig á því að ekki var aðeins um fækkun að ræða heldur áherslubreytingu á fundina – það er að gera þá viðameiri í sniðum eins og áður hefur komið fram – og það er að okkar mati jákvætt.
Vantar vatnsvél
-Stefnt er að því að koma upp slíkri vél fyrir næsta aðalfund.
Það vantar upplýsingar út til okkar sem eru flutt erlendis en viljum vera virk
Fréttabréf á email
-Fréttabréf samtakanna hefur undanfarið verið sent félagsmönnum í tölvupósti. Til þess að þetta fyrirkomulag sé skilvirkt þurfa félagsmenn að ganga úr skugga um að rétt netfang sé skráð í félagatalinu. Við hvetjum því félagsmenn til að yfirfara upplýsingar sínar og sjá til þess að skráningar séu réttar og einnig hvetjum við alla til þess að láta þessi boð ganga til annarra félagsmanna sem mögulega eru að fara á mis við tölvupóstana.
Það sem þarf að gera er að koma af stað aftur húsnæði og helgarskemmtunum eins og þær voru fyrir 15-20 árum , það koma ekki nýjir öðruvísi
Það þarf að halda reglulega fyllerirís partí og ekki hafa þá sem eru á móti svoleiðis partim sem húsverði
Það eru nokkrir á móti því eins og sniglarnir skemmtu sér her fyrr á árum og hafa reynt að Hindra að svoleiðis skemmtanir komi upp aftur og það er rangt
-Margt hefur breyst á síðustu 15-20 árum og sú klúbbastemmning sem þá ríkti hefur vikið eftir því sem félögum innan samtakanna hefur fjölgað. Það er ljóst að ekki mun ríkja sama stemmning í 50 manna hópi og í 500 manna hópi. Samtökin okkar telja í dag um 2300 félaga í allt og eftir að hafa verið skilgreind opinberlega sem hagsmunasamtök hafa áherslur eðlilega breyst. Þetta þýðir þó ekki að við munum ekki standa fyrir böllum og skemmtunum áfram en slíkt veltur fyrst og fremst á áhuga félagsmanna. Sem dæmi var haldið ball í vor þar sem fáir mættu og fyrir tveimur árum voru haldin bjórkvöld sem einnig voru mjög illa sótt. Klúbbarnir eru eftir sem áður öflugir í skemmtanahaldi og kannski ástæðulaust að samtökin okkar séu að keppa við þá í því. Við viljum einbeita okkur að hagsmunum og leyfum öðrum að sjá um skemmtanir og partýhald. Sem hagsmunasamtök munum við eftir sem áður halda jólaball og jafnvel árshátíð ef greinilegur áhugi félagsmanna er fyrir hendi á slíku.
Það þarf að koma fleiri upplýsingum til fólksins það sem er að gerast á vefnum
Viðburðadagatal frá klúbbum, ferðir, partý, td Landmannalaugar, Sturlungadagur, afmæli klúbba.
-Við reynum eftir fremsta megni að auglýsa mótorhjólatengda viðburði á vefnum en forsenda þess er að við séum látin vita af þeim viðburðum sem haldnir eru. Við hvetjum því hjólafólk og bifhjólaklúbba landsins til þess að sena okkur línu þegar staðið er fyrir slíkum viðburðum svo við getum auglýst þá á vefnum okkar og Facebook síðunni.
Heyrst hefur að Sniglabúðin á Landsmóti hafi verið of lítið opin + úrval lítið
-Það er mikið til í því en markvisst er verið að vinna í því að tæma út gamlan lager svo hanna megi nýjar vörur og koma búðinni í fastari skorður.
Húsnæði of langt úr alfaraleið og of lítið
-Hér má ekki gleyma því að húsnæðið í Skeljanesinu er ókeypis og þjónar tilgangi sínum sem samkomustaður sérstaklega eftir að farið var í tiltekt og keypt ný húsgögn. Að auki er staðsetningin til þess fallin að valda lágmarks ónæði enda ekki vinsælt að hafa slíkar samkomur miðsvæðis eða í íbúabyggð. Við erum þó ávallt með þetta á bakvið eyrað og gerum okkur fulla grein fyrir því að hér er ekki um að ræða húsnæði sem mun nýtast okkur um ókomna framtíð.
Þeir sem ekki geta haldið utan um fundina sem lagt var með upp í upphafi eiga ekki að bjóða sig fram í stjörn á aðalfundi
-Fækkun funda er ekki til komin vegna þess að stjórn treysti sér ekki til þess að halda utan um þá heldur vegna þeirra ástæðna sem taldar voru upp í öðru svari hér að ofan.
Maður hefur á tilfiningunni að fundum var fækkað að verið sé að vinna að því leynt að leggja Snigla nyður.
-Aftur vísum við í fyrra svar varðandi fundi. Að auki höfum við verið að vinna í því að koma upp skiltum til að minna á okkur, þýða bæklinga, funda með Umferðarstofu og Tryggingafélögum meðal annarra, halda Þjóðfund um málefni bifhjólafólks og svo mætti lengi telja. Allt þetta væri fremur tilgangslaust ef markmið okkar væri að leggja samtökin niður.
Auglýsa betur „viðburði“ á fundum –Grill oþh. Ýtreka „Hvar“ fundir eru –Merkja húsið
-Það er ljóst að við þurfum að merkja húsið betur. Einnig stendur til að setja kort á vefinn með staðsetningu félagsheimilisins. Viðburðir eru þegar auglýstir á vefsíðunni okkar www.sniglar.is og á Facebook síðu samtakanna.
Mörgum finnst þeir ekki velkomnir (finnst þetta vera sumaklúbbs fílingur) 1 sinni og koma ekki aftur :(
-Við höfum ekki farið varhluta af þessu og er það einmitt ein helsta ástæða þess að fundum var fækkað og þeir gerðir hnitmiðaðri. Það er trú okkar að með því að fækka fundum og gera þess í stað meira úr viðburðum hvers fundar séum við einmitt að stuðla að því að fólk sem mætir einu sinni á fund mæti aftur. Viðburðir tengdir hjólum og hjólamenningu eða bara viðburðir sem hafa skemmtanagildi fyrir félagsmenn eru frekar til þess fallnir að laða fólk að heldur en vikulegir fundir þar sem ekkert er að gerast.
Það eru stjörnarmeðlimir sem eru kosnir eiga að halda Sniglum gangandi
-Stjórnarmeðlimir gera sér fulla grein fyrir þessu og er það fyrst og fremst það sem við höfum að markmiði. Eitt dæmi um það er til dæmis þetta Tuð-og-fýlukvöld þar sem allir félagsmenn fengu tækifæri til þess að koma og tjá sig um málefni samtakanna – og fá svör stjórnar við öllum þeim athugasemdum sem bárust.
Taka aftur upp „undirskriftar“ kerfið þegar skráð er í félagið – rök með -rök á móti ???
-Sniglar eru hagsmunasamtök alls bifhjólafólks en ekki klúbbur og öll slík viðleitni til að búa til síu á félaga á því ekki við.
Hvenær koma svo niðurstöður af tuðfundinum og hvar
-Niðurstöðurnar voru kynntar á félagsfundi og svo eru þær birtar núna hér á vefnum.
Tegundakvöld Myndakvöld úr ferðum félaga
Námskeið fyrir byrjendur td í olíuskiptum, kerti ofl.
Virkara félagsstarf s.s. skipulagðar ferðir t.d fyrir nýliða
Kvennakvöld
-Þetta eru allt mjög góðar hugmyndir. Við erum einmitt að skipuleggja næstu fundi og hver veit nema einhverjar af þessum hugmyndum rati þangað inn. Varðandi skipulagðar ferðir þá var það reynt fyrir ekkert svo löngu síðan en mjög fljótlega fór mætingin að vera léleg í þær og á endanum duttu þær uppfyrir. Klúbbarnir hafa hins vegar sinnt þessum þætti með ágætum árangri og er það vel. Fundardagskrá vetrarins kemur inn á sniglavefinn síðasta lagi 1. nóvember.
Af hverju var ekki fundur um daginn kv Aggi og Haukur
-Sjá ofar.
Við erum að eldast það þarf að hugsa til næstu kynslóðar og þarnæstu kynslóðar
-Forvarnarstarfið sem nú er verið að vinna mun gagnast næstu og þarnæstu kynslóð meira en okkur. Hvort sem um er að ræða baráttu fyrir skynsömum lögum um hlífðarföt eða sanngjarnri meðferð tryggingafélaga svo eitthvað sé nefnt, þá er slíkt klárlega eitthvað sem mun gagnast komandi kynslóðum bifhjólafólks.
Hjálmageymslu þera svona margir mæta á fund :)
-Verið er að leita eftir hillu sem er nógu djúp til að henta sem hjálmageymsla. Þar sem hjólatímabilið er senn á enda er þetta ekki forgangsverkefni en stefnt er á að slík geymsla verði komin í gagnið fyrir næsta vor.
Ég varaði við því á síðasta aðalfundi að ef ekki yrði snúið til fyrri tíma í sambandi við lög Snigla þá eru Sniglar að renna sitt skeið
-Nýjir tímar kalla á nýjar áherslur og breytt skilgreining samtakanna úr klúbbi yfir í hagsmunasamtök veldur því að gömlu lögin eru orðin úrelt. Sniglar eru síður en svo að renna sitt skeið, en segja má að samtökin séu að hefja nýtt skeið sem miðar að því að félagsmenn í heild hafi sem mesta hagsmuni af.
Upplýsingar á vef Snigla ekki bara á Facebook, heldur á vef Snigla
-Upplýsingarnar á Facebook endurspegla það sem skrifað er á vef Snigla. Þetta er sett upp þannig að allt sem skrifað er á www.sniglar.is flyst um leið sjálfkrafa yfir á Facebook síðuna. Það er því hægt að nálgast allar fréttir á báðum stöðum.
2011 útgáfu af hvað eru Sniglar og hverju hafa þeir áorkað
-Verið er að fara yfir bæklinginn og endurskoða hann og þegar þeirri vinnu er lokið verður hann gefinn út að nýju.
Takk fyrir margar góðar og gagnlegar ábendingar!
Stjórnin.