Vefslóð: Senda vini: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Landsmót Bifhjólafólks
Húnaveri 2011
Hjólari.
Landsmótsnefnd Rafta sendir þér þetta bréf til að hvetja þig og aðra hjólara til að taka þátt í stærsta viðburði bifhjólafólks á árinu hérlendis. Allt er að verða klárt í magnað landsmót, uppfullt af leikjum, mat, drykk og tónlistarviðburðum og fleiru skemmtilegu. Stemming er að byggjast upp og er það ekki síst undir okkur sjálfum komið hvernig tiltekst og hvernig aðrir upplifa mótið. Þætti okkur vænt um ef þú værir til í að birta auglýsingu og dagskrá á heimasíðu félags þíns, eða bara að nefna þetta við félagana. Upplýsingar um mótið er á heimasíðu Rafta www.raftar.is og á Fésbókarsíðu og er þá nóg að slá inn í leit Raftar eða Landsmót.
Með fyrirfram þökk fyrir aðstoðina og sjáumst á Landsmóti.
Landsmótsnefnd Rafta.
Fimmtudagur 30. júní
Fólk streymir á svæðið. Formleg dagskrá hefst.
Kl. 22.00 Chernobyl ( Óskabörn Óðins )
Föstudagur 1. júlí
Og enn bunar inn fólk.
Kl. 16.00 Hjólaleikar MC Saxa
AA fundur
Kl. 20.00 Óskabörn Óðins grilla!!!!! Gildran spilar dinnerROKK.
Kl. 22.00 Myrká. Tónleikar á svæði.
Kl. 23.30 Gildran setur aaallllt á hliðina í Samkomuhúsinu. Rokkað eins og Djöfullinn sé á kantinum.
Laugardagur 2. júlí
Sól í heiði. Iðnaðarmenn að störfum. Ástand normal.
Kl. 15.00 Hjólaleikar MC Saxa
AA fundur ( ef þörf er á )
Kl. 20.00 Þykkvabæjarsúpan. Mmmmm...... og ekki orð um það meir.
Kl. 22.00 Verðlaunaafhending.
Kl. 22.30 Dregnir út happadrættir.
Kl. 23.00 Sóldögg og Vinir vors og blóma trekkja í gang og drepa ekki á fyrr en við dagmál.
Sunnudagur 3. júlí
Gestir týnast heim eftir bestu getu. Munið að ganga vel frá tjaldsvæðum.
Aðrar upplýsingar:
Helgarpassi kostar 6.500.- Laugardagsmorgunn 4.000.- Dagpassi 2.500.- Vinsamlegast greiðið aðgangseyri með peningum. Landsmótsmerki verða til sölu við inngang og kosta 1000 kr. Posi verður í húsi. Börn og gæludýr eiga að vera heima og passa hvert annað. Skemmtum okkur vel saman og búum til fullt af skemmtilegum landsmótssögum.
Landsmótsnefndin.
Sumardagurinn fyrsti ( 21. april ) er ORKU-dagur Snigla, þá er aukinn afsláttur á eldsneiti, sé verslað með Orkulykli Snigla. Sækja má um Orkulykil Snigla á www.orkan.is ( Skrá Sniglar og númer í reitinn Hópur )
Sniglar hafa sett á laggirnar tryggingavakt. Markmið tryggingavaktar er að vinna að tryggingamálum bifhjólamanna með því að veita tryggingafélögunum aðhald, og ná fram samvinnu, til að stuðla að réttlátum tryggingum mótorhjóla.
Netfang tryggingavaktar er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og hvetjum við félagsmenn til að senda okkur inn upplýsingar og fyrirspurnir sem varða tryggingar mótorhjóla. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Nú gefst fólki kostur á að styrkja Mótorhjólasafn Íslands með því að gerast vildarvinur safnsinns. Þetta felst í því að setja á kredit/debit kort mánaðarlega greiðslu til safnsins og verða skráðir opinberlega sem sérstakir vildarvinir safnsins. Þetta er leið sem getur hentað öllum og ef vel gengur að safna í hópin getur þetta hjálpað verulega til við uppbyggingu safnsinns, því margt smátt gerir víst eitt stórt. Skráðir vildarvinir birtast á heimasíðu safnsinns (www.motorhjolasafn.is) og á Facebook. Upphæð er alveg valfrjáls frá 100kr og upp úr, uppsegjanlegt með einu símtali, eyðublöð má nálgast hjá stjórn Tíunnar og hjá safnstjóra einnig geta þeir sem búa utan Akureyrar hringt og skráð sig símleiðis í síma 8663500.
Nýlega voru haldnir 4 fundir með hverju tryggingafélagi fyrir sig og á þá fundi mættu 3 fulltrúar Snigla
Almennt var farið yfir tryggingar og tryggingatengd mál á þessum fundum, Tryggingafélögin fóru yfir afkomu bifhjólatrygginga undanfarin ár og þar virðist frekar halla á okkur bifhjólamenn . Tryggingafélögin eru flest þessa dagana í innri vinnu varðandi nánari flokkun á bifhjólatryggingum til að viðhalda ákveðnu samræmi varðandi iðgjöld og áhættu í ákveðnum hópum bifhjóla.
Við lögðum nokkrar spurningar fyrir tryggingafélögin td. vegna útreikninga iðgjalda, varðandi forvarnir, upplýsingar varðandi algenga slysastaði, afslætti á iðgjöldum vegna endurmenntunar að vori til og hvort þeir væru til í nánara samstarf og samræður, eins og að taka þátt í opnu málþingi ef til kæmi þar sem hinum almenna hjólamanni væri boðið að mæta og varpa fram spurningum varðandi tryggingamál.
Þessir fundir gengu afskaplega vel og eru vonandi ávísun á áframhaldandi gott samstarf milli tryggingafélaganna og snigla
Við þökkum Vís, Tm, Sjóva og Verði fyrir jákvæðar móttökur
Þegar farið er yfir niðurstöður könnunar Snigla á tryggingum bifhjólafólks virðist ekki vera hægt að finna mynstur sem sýnir fram á hvað hefur áhrif á verðlagningu trygginga hjólafólks. Undir öllum eðlilegum kringumstæðum ætti aldur, hversu lengi þú ert búinn að hafa bifhjólapróf, og tjónleysi að hafa áhrif á hvað bifhjólafólk greiðir fyrir tryggingar á hjóli sínu. Það virðist hins vegar ekki vera raunin þegar teningnum er velt og nokkrar hliðar hans skoðaðar. Samningsharka er því sennilega það eina sem getur hjálpað bifjólamanni til að ná góðum "díl" við tryggingarfélagið. Eins og fram hefur komið hér á vef Snigla eru til nokkuð mörg staðfest dæmi um svimandi háa gíróseðla frá tryggingarfélögunum en niðurstöður tryggingarkönnunar Snigla sýnir þó allt aðrar rauntölur. Sé litið á þá þætti sem ættu að hafa bein
áhrif á verðlagningu er ekki hægt að merkja mun á milli einstaklinga.
Viðskiptavild er klárlega áhrifaþáttur í viðskiptum og í raun mjög eðlilegur þáttur, en Sniglar kalla eftir því að tryggingarfélögin gefi skýringu á því hvers vegna þeir þættir sem raunverulega ættu að telja til lækkunnar geri það ekki.
Hér að neðan eru krufnar nokkrar af þeim spurningum sem lagðar voru fyrir þátttakendur könnunarinnar. Undir eðlilegum kringumstæðum ætti að sjást merkjanlegur munur á til dæmis greiðslum þeirra sem lengur hafa haft próf.
Ekki er að svo stöddu tekið fyrir tjón eða tjónleysi en þær tölur verða birtar á næstu dögum.
Látinn er á Stokkseyri Geir Valgeirsson Snigill #154 viljum við votta aðstandendum hans okkar dýpstu samúð við fráfall hans. Útför Geirs verður gerð frá Stokkseyrarkirkju þann 21 ágúst næstkomandi kl 14:00
Tryggingar á bifhjólum hefur lengi verið málaflokkur sem hulinn hefur verið hálfgerðu skýi, lítið samræmi hefur verið á milli grunnverðs og þess sem verið er í raun að borga, verðmunur á milli manna og / eða hjólagerða virðist meira byggjast á því hversu góðir menn eru að „semja“ um iðgjöld sín fremur en aldri og / eða reynslu af akstri bifhjóla. Eitt af því sem vantað hefur er gott yfirlit og tölfræði yfir stöðu tryggingamála og hver er hinn raunverulegi kostnaður við að tryggja bifhjól.
Í sumar byrjun stóðu sniglar fyrir könnun meðal bifhjólafólks um hver kostnaður við tryggingar væri. Könnunin stóð frá byrjum maí fram í miðjan júní og bárust svör frá 581, könnunin ætti því að vera nokkuð marktækt úrtak á meðal bifhjólafólks.
Við frum skoðun gagnanna má sjá að meðalgreiðsla bifhjólamanns fyrir eitt bifhjól er um 88.843 kr á ári, óháð því hvort um kaskó er að ræða eða ekki. Miðað við að 9.420 létt og þung bifhjól voru á skrá samkvæmt upplýsingum umferðarstofu um síðust áramót eru heildar greiðslur fyrir tryggingar bifhjóla 836.898.719 Kr á ári, (Ef tekin eru með þau 7.996 torfæru og fjórhjól sem á skrá voru á sama tíma er þessi upphæð rúmlega einn og hálfur miljarður.) Heildar velta hjólafólks með öðrum tryggingum svo sem bíla, húsnæðis og öðrum tryggingum má áætla milli fimm og sex miljarða á ársgrundvelli.
Bilið á milli hæstu og lægstu uppgefnu tölu á tryggingum er líka umtalsverður en lægsta uppgefna greiðsla er 10.000 kr en hæsta 240.000 kr á árs grundvelli. Þessar tölur eru svo ekki í neinu samræmi við „uppgefin“ grunn verð tryggingafélaganna sem eru á milli sex- og sjöhundruð þúsund.
Markmið könnunarinnar var að skapa tölfræði sem hægt væri að byggja á og bera saman við tryggingar á bifhjólum í löndum í kringum okkur, en á tengslaneti FEMA liggur fyrirspurn frá Sniglum þess efnis.
Á næstunni verða gögn könnunarinnar unnin og niðurstöðurnar birtar í skýrslu um tryggingamál bifhjólafólks en fram að því munum við birta hér á vefnum úrdrætti. Sniglar kalla ennfremur eftir viðbrögðum og samstarfi við tryggingarfélögin um bætt fyrirkomulag, og sanngjarna verðlagningu trygginga í þessum flokki.