Næsti félagsfundur Snigla er miðvikudaginn 24 ágúst 2011 og er ætlunin að kynna starf og þau verkefni sem falla undir umferðarnefnd Snigla. farið verður yfir helstu verkefni, fjallað um málefni bifhjólafólks, á sviði forvarna og hagsmuna. fulltrúar umferðarnefndar verða á staðnum sitja fyrir svörum og taka við ábendingum.

Eins og glöggir mótorhjólaeigendur hafa tekið eftir hefur tryggingarfélagið VÍS sett fram í skilmálum sínum að ökumaður og farþegi bifhjóls skuli nota lágmarks hlífðarfatnað ætlaðan til slíkra nota. Eins og Bifhjólasamtök Lýðveldisins hafa margsinnis bent á þegar fundað hefur verið með stjórnsýslunni vegna nýju umferðarlaganna er þetta einmitt hættan, að tryggingarfélög nýti sér þá klásúlu í lögunum að nota skuli hlífðarfatnað við hæfi. Áskilur tryggingarfélgið sér rétt til að fella niður ábyrgð í heild eða að hluta fari tryggingartaki ekki eftir þeim. Við þetta hljóta að vakna margar spurningar sem erfitt er að svara. Hver á að svara því hvað telst lágmarks hlífðarfatnaður? Eru tryggingarfélögin með sérfræðinga í slíkum málum eða á að fara eftir slyslaskýrslum? Eru lögreglumenn eða þeir sem sinna slysarannsóknum til þess hæfir? Ef að farþegi sest aftan á mótorhjól í ónógum hlífðarfatnaði, hver ber þá ábyrgð? Ljóst er að þetta eru slæmar fréttir fyrir mótorhjólafólk og að berjast þarf gegn þessari þróun. En eins og þetta sé ekki nóg gengur tryggingarfélagið á lagið í þessu og býður nú sérstaka, valkvæða tryggingu á hjálm og hlífðarfatnað. Tekur tryggingarfélagið fram að almenn vátrygging bæti ekki tjón á hlífðarfötum og hjálmum, hvort sem er úr ábyrgðartryggingu bifhjólsins eða slysatryggingu ökumanns og eiganda. Ljóst er að þetta er á afar gráu svæði svo ekki sé meira sagt. Á næst að bjóða valkvæða tryggingu fyrir öryggisbúnað í bifreiðum? Líklega yrðu bíleigendur ekki sáttir ef að öryggisbúnaður eins og öryggispúðar eða öryggisbelti væru ekki tryggð í tjóni, nema að keypt hefði verið sérstök öryggisbúnaðartrygging. Löng hefð hefur verið fyrir bótum fyrir hlífðargalla í tryggingarmálum gegnum árin og ljóst að bifhjólafólk mun ekki taka því þegandi og hljóðalaust að sá réttur sé tekin af þeim. Lesendum til glöggvunar er hér tengill á skilmála VÍS fyrir bifhjólatryggingar:
http://vis.is/library/Tryggingaskjol/Tryggingaskilmalar/okutaekjatrygginga/BA11%20Bifhjólaskilmáli.pdf
Dagatal snigla er til sölu í Smáralindinni í dag laugardaginn 29. og á morgun sunnudaginn 30. framan Vero Moda . Við hvetjum alla til að líta við í Smáralindinni og kaupa eintak. Við minnum einnig á að dagatal Snigla er happdrættismiði, þar sem dregið er einu sinni í mánuði út árið. Ágóði af sölu dagatals snigla skiptist á millu ÁS styrktarfélags og umferðarnefndar Snigla sem sinnir forvarnaverkefnum fyrir bifhjólafólk. Dagatalið kostar 2.500 Kr.
Dagatal snigla er til sölu í Kringlunni í dag föstudaginn 21. og á morgun laugardaginn 22. á fyrstu hæð, mótsvið ÁTVR. Við hvetjum alla til að líta við í Kringlunni og kaupa eintak. Við minnum einnig á að dagatal Snigla er happdrættismiði, þar sem dregið er einu sinni í mánuði út árið. Ágóði af sölu dagatals snigla skiptist á millu ÁS styrktarfélags og umferðarnefndar Snigla sem sinnir forvarnaverkefnum fyrir bifhjólafólk. Dagatalið kostar 2.500 Kr.
Á fimmtudag hefst Umferðarþing á Grand Hótel Reykjavík. Þingið er haldið annað hvert ár og er hápunktur ársins hjá öllum þeim sem vinna í umferðaröryggismálum á Íslandi, hvort sem er í grasrótinni eða opinbera geiranum. Eitt helsta umfjöllunarefni þingsins verður Núllsýn í umferðarslysum, en Sniglar hafa einmitt látið til sín taka í þeim efnum nýlega. Aðalgestur Umferðarþingsins að þessu sinni er Claes Tingvall, einn aðalhöfundur Núllsýnarinnar og yfirmaður Trafikverket í Svíþjóð. Sú var tíðin að Tingvall þessi var kallaður óvinur mótorhjólafólks nr. 1 en það hefur breyst í seinni tíð sem betur fer. Þegar Núllsýnarhugmyndin kom fyst fram lét hann nefnilega hafa eftir sér að mótorhjól pössuðu ekki inn í þá hugmyndafræði og þess vegna yrðu mótorhjól að hverfa með tímanum. Hávær mótmæli bárust við þessu hvaðanæva að úr Evrópu eins og sumir muna eftir, meðal annars fyrir tilstilli samtaka þeirra sem mynda FEMA í dag. Það var svo aðallega fyrir tilstilli þeirra samtaka og þá sérstaklega SMC í Svíþjóð að Tingvall hefur nú snúið við blaðinu og sagt að mótorhjólasamtök séu mjög mikilvæg og nauðsynlegur samstarfsaðili fyrir opinbera aðila. Þetta lét hann hafa eftir sér á ráðstefnu lögreglumanna í Bretlandi fyrir skömmu þegar hann var spurður hvort að hann vildi ennþá losna við mótorhjólafólk af götunum. Hann sagði ennfremur að mótorhjól væru órjúfanlegur og mikilvægur hluti umferðarinnar. Hver segir svo að það sé ekki ennþá von fyrir mótorhjól...
Fyrir atbeina ábendinga Bifhjólasamtaka Lýðveldisins, er nú verið að sýruþvo svokallaða "kodda" eða hraðahindranir þær sem við höfum gert athugasemdir við að undanförnu. Í kröfulýsingu kom fram að efnið skyldi vera matt og stamt og uppfylltu nýjustu koddarnir ekki þessar kröfur. Við þessu hefur nú verið brugðist og munum við fylgjast með því verkefni og prófa líkt og áður. Við bremsuprófun á mótorhjóli fyrir meðferðina á koddunum við Langholtsveg, Sundlaugarveg og Dalveg kom í ljós að auðvelt var að læsa hemlum þegar yfirborðið var blautt. Munum við því prófa þessa kodda aftur þegar rétt skilyrði eru fyrir hendi. Sniglar fagna þessum viðbrögðum hlutaðeigandi aðila og vonast til að aðgerðirnar skili tilsettum árangri.
Gunnar Gunnarsson formaður og Njáll Gunnlaugsson eru nýkomnir frá mótorhjólaráðstefnu í Prag í Tékklandi. Það voru MACR samtökin sem héldu ráðstefnuna, en þetta er ný samtök mótorhjólafólks þar í landi með um 4000 meðlimi. Þar sem Bifhjólasamtök Lýðveldisins eru eldri en tvævetur þótti þeim við hæfi að bjóða tveimur úr okkar röðum á ráðstefuna og reyna að fræða þá aðeins í hagsmunabaráttunni. Gunnar og Njáll héldu báðir fyrirlestra, Gunnar um starf Snigla og sögu, og Njáll um kennslufyrirkomulagið á Íslandi, sem þeir vilja gjarnan taka upp. Þar tíðkast það nefnilega að kennari sitji aftan á kennsluhjólinu og notar hann þá aukastýri með stjórntækjum. Kennslumálin í Tékklandi er víst í hálfgerðum ólestri og þar komast margir upp með að kaupa prófið án þess að þurfa að fara í gegnum nokkra kennslu. Að öðru leyti glíma þau mikið til við sömu vandamál og við. Í heimsókninni náðust góð tengsl við þessi vinasamtök okkar og munum við eflaust njóta góðs af því í framtíðinni.