Sýna efni eftir merki: Skemmtun
Miðvikudagur, 20. Júlí 2011 11:51

Gildran á SPOT

Hljómsveitin Gildran þakkar fyrir stemminguna á landsmóti, og bíður öllu bifhjólafólki 2 fyrir 1 á stórdansleik á SPOT Laugardaginn 23. Júlí. Er ekki málið að rifja upp Rokk-Dúndrið á landsmóti og skella sér á Gildruball.

Birt í Hjólamenningin
Sunnudagur, 16. Janúar 2011 11:38

Hjóladagar 2011

 

Við hjá Tíunni vildum bara minna á að Hjóladagar verða haldnir í fimmta sinn á Akureyri dagana 14. til 17. júlí 2011. Ætlunin er að Hjóladagarnir 2011 verðu þeir stærstu hingað til og að dagskráin verði sem fjölbreyttust þannig að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Við biðjum ykkur því endilega að setja Hjóladaga inn í viðburðadagatalið hjá ykkar klúbbi. Frekari upplýsingar um dagskránna koma svo þegar nær dregur.

Með kveðju
Tían - Bifhjólaklúbbur Norðuramts

 

Birt í Hjólamenningin
Þriðjudagur, 08. Júní 2010 17:01

Kynning á landsmóti !

Á næsta félagsfund, miðvikudaginn 9. Júní munu Óskabörnin mæta og kynna komandi landsmót.  Sem haldið verður ú Húnaveri 1. – 4. Júlí. Neddi og Hrönn eru búin að lofa að baka og bjóða uppá vöfflur í tilefni dagsinns. Við hvetjum því sem flesta til að mæta og kynna sér hvað komandi landsmót verður magnað og gæða sér á Nedda-vöfflum með.

Birt í Landsmót
Sunnudagur, 06. Júní 2010 09:15

Landsmót nálgast

Já það eru aðeins 24 dagar í Landsmót.
Það er orðið á hreinu að þeir sem stunda hestamennsku ásamt hjólamennskunni þurfa ekki lengur að drepast úr valkvíða vegna fyrstu helgar í júlí, leiðin liggur í Húnaver....;o)
 
Það sem við viljum minnast nánar á varðandi Landsmótið er eftirfarandi:
 
- Grill....Raftarnir í Borganesi ætla að sjá um að grillveislan verði hin girnilegasta á föstudagskvöldið
- Súpa...Dagrún Jónsdóttir ætlar að sjóða saman matarmikla súpuna á laugardagskvöld sem ætti að duga til að bræða fyrir magasárið
- Morgunhressing ......Ískaldir og ferskir ávextir ásamt orkudrykkjum verða í boði laugardags- og sunnudagsmorgun.
- Leikir...Hinir víðfrægu M.C S.K.Á.L -arar að norðan ætla að stýra leikjunum þetta árið og hafa kokkað upp snarsnúna leiki í bland við gamla og góða. Sjá hér að neðan,
 
*Snigl
*Útvarp
*SKÁL í botn
*Hringavitleysa
*Heysáta
*Tunnuýt
*Gengið á planka
*Mótor úttekt
*Hæna
*Hjól-SKÁL-arallý
*Þrípoki
*Boðhlaup
 
Ath ! Það verða dekkjaverðlaun í boði fyrir fyrstu 3 sætin í BURNOUT keppninni
 
Ekki meir að sinni, en þangað til næst........Úújehh !

Sævar Einarsson
Óskabörn Óðins MC

Birt í Landsmót
Mánudagur, 12. Apríl 2010 16:12

Landmannalaugar 2010

Hópur hjólafólks ætlar að standa fyrir árlegri ferð mótorhjólamanna inn í Landmannalaugar helgina 10 – 12 september 2010 Mæting er á Föstudeginum 10.09 og er ætlunin að grilla, hjóla og skemmta sér í gróðravina hópi fram á sunnudags eftirmiðdag. SUNDFÖT BÖNNUÐ!
Takmarkað pláss er í skála svo við hvetjum ykkur til að skrá ykkur sem fyrst í síma 695-3035 (Hilde)

Birt í Hjólamenningin
Laugardagur, 03. Apríl 2010 13:35

Landsmót Bifhjólafólks 2010

Húnaveri 01. - 04.júlí
 
Mótorhjólamót sem engin alvöru hjólari eða klúbbur missir af!
Landsmót hefur verið haldið ár hvert síðan 1987. Fyrstu fjögur árin í Húnaveri og 10 ára afmælismótið sem var það fjölmennasta frá upphafi, þá mættu rétt tæplega 500 gestir. Landsmót í Húnaveri hafa bara svínvirkað í gegnum árin, því erum við með uppskrift að fullkominni skemmtun! Mótið í ár er það tíunda sem haldið er í Húnaveri.


Landsmót hefur verið haldið í nafni Snigla gegnum árin en í ár eru það við í Óskabörnum Óðins MC sem höldum Landsmót Bifhjólafólks. Óskabörn Óðins MC eru ekki óvanir skemmtanahaldi enda klúbbur með yfir 20 ára sögu og reynslu. Þetta gerum við þó ekki allt einir heldur erum við að semja við aðra klúbba um aðkomu þeirra að einstökum viðburðum mótsins til að gera það sem fjölbreyttast.


Þetta er Landsmót bifhjólafólks og allir hjólarar eru velkomnir. Það er alveg ljóst að við í Óskabörnum Óðins viljum sjá miklu fleiri af þeim þúsundum hjólara sem eru á Íslandi koma á Landsmót. Við viljum sjá alla klúbbana fjölmenna með sitt hafurtask og setja upp flottar tjaldbúðir enda verða veitt verðlaun fyrir flottustu tjaldbúðirnar.


Dagskráin verður fjölbreytt að venju en þar má fyrst nefna tónlistaratriðin þar sem Sniglabandið fer fremst í flokki, ásamt fleirum frábærum hljómsveitum. Kappleikirnir víðfrægu, burnoutkeppni, ofl.ofl. Veglegir vinningar í öllum keppnum. AA fundir verða haldnir fyrir óvirka. Þeir sem vilja selja vörur og eða fatnað á mótinu hafi samband við neðangreinda.


Mat í magann. Ljúffeng kvöldmáltíð föstudagskvöld, Landsmótssúpa laugardagskvöld, orkumikil morgunhressing alla morgna.


Óskabörnin munu senda út ítarlega dagskrá/auglýsingu þegar nær dregur en þið getið treyst því að við munum tjalda öllu til að gera þetta 10. Landsmót í Húnaveri sem eftirminnilegast. Hlökkum til að sjá ykkur!


Frekari upplýsingar veitir Baldvin í síma 894-2848 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Eyþór í síma 773-1505 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Birt í Landsmót
Fimmtudagur, 25. Mars 2010 22:17

Snigla afmæli

1. apríl verða Bifhjólasamtök lýðveldisins Sniglar 26 ára. í tilefni dagsins verður afmælis húllumhæ á Sniglafundi miðvikudaginn 31. mars uppúr kl 19:00. við verðum með afmælisköku og einnig verður grilluð pylsa og kók selt á 300 kr. til styrktar hússjóði Snigla.

Við hvetjum alla snigla, sem og annað hjólafólk að mæta á fundinn næsta miðvikudag og fá sér pylsu og köku með okkur.

Birt í Sniglar
Fimmtudagur, 04. Mars 2010 18:22

Rocky Horror

Leikfélag  Akureyrar  er að setja upp sýninguna Rocky Horror á  Akureyri  og munu sýningar hefjast 3. September. Eddie ( Leikinn af Matta Matt) er frekar vafasamur karakter, hálfheilalaus og brunar út úr frosti á mótorfák, okkur finns því vel við hæfi að hann sé í töff "out-dated" og vel notuðum mótorhjóla-jakka. Við leitum að gömlum snjáðum hjólajakka sem passar á Matta Matt. Ef einhver á jakka, vesti og jafnvel buxur sem hann er hættur að nota, eða notar lítið og er tilbúinn að lána okkur á meðan að á sýningum stendur þá væri það vel þegið.

Ef þú ert fær um að hjálpa okkur, hafðu þá samband við  Rannveigu Evu í síma 864-5836 eða  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Birt í Hjólamenningin

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði