Þeir sem eiga farangur í trússinu frá Landsmóti geta nálgast það í Sniglaheimilið í Skeljanesi á morgun milli kl 18 og 20. Þeir sem komast ekki á þeim tíma geta haft samband í síma 840 2267 eða email Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og við finnum út úr því .
-Stjórn
Þeir sem vilja koma farangri með trúss á landsmót er bent á að flutningabíll verður staðsettur við Snigleheimilið á Skeljanesi næstkomandi þriðjudagskvöld frá kl. 19:00 til 21.00 reiknað er með sem svarar einum ruslapoka á mann og kostar 1000kr fyrir pokann.
-Raftar
Af þessum sökum verður miðvikudags fundurinn færður yfir á þriðjudag og ætlum við að grilla pylsur og skapa smá landsmóts upphitunar stemmingu. Hvetjum alla til að mæta !
-Stjórn
Landsmót Bifhjólafólks
Húnaveri 2011
Hjólari.
Landsmótsnefnd Rafta sendir þér þetta bréf til að hvetja þig og aðra hjólara til að taka þátt í stærsta viðburði bifhjólafólks á árinu hérlendis. Allt er að verða klárt í magnað landsmót, uppfullt af leikjum, mat, drykk og tónlistarviðburðum og fleiru skemmtilegu. Stemming er að byggjast upp og er það ekki síst undir okkur sjálfum komið hvernig tiltekst og hvernig aðrir upplifa mótið. Þætti okkur vænt um ef þú værir til í að birta auglýsingu og dagskrá á heimasíðu félags þíns, eða bara að nefna þetta við félagana. Upplýsingar um mótið er á heimasíðu Rafta www.raftar.is og á Fésbókarsíðu og er þá nóg að slá inn í leit Raftar eða Landsmót.
Með fyrirfram þökk fyrir aðstoðina og sjáumst á Landsmóti.
Landsmótsnefnd Rafta.
Fimmtudagur 30. júní
Fólk streymir á svæðið. Formleg dagskrá hefst.
Kl. 22.00 Chernobyl ( Óskabörn Óðins )
Föstudagur 1. júlí
Og enn bunar inn fólk.
Kl. 16.00 Hjólaleikar MC Saxa
AA fundur
Kl. 20.00 Óskabörn Óðins grilla!!!!! Gildran spilar dinnerROKK.
Kl. 22.00 Myrká. Tónleikar á svæði.
Kl. 23.30 Gildran setur aaallllt á hliðina í Samkomuhúsinu. Rokkað eins og Djöfullinn sé á kantinum.
Laugardagur 2. júlí
Sól í heiði. Iðnaðarmenn að störfum. Ástand normal.
Kl. 15.00 Hjólaleikar MC Saxa
AA fundur ( ef þörf er á )
Kl. 20.00 Þykkvabæjarsúpan. Mmmmm...... og ekki orð um það meir.
Kl. 22.00 Verðlaunaafhending.
Kl. 22.30 Dregnir út happadrættir.
Kl. 23.00 Sóldögg og Vinir vors og blóma trekkja í gang og drepa ekki á fyrr en við dagmál.
Sunnudagur 3. júlí
Gestir týnast heim eftir bestu getu. Munið að ganga vel frá tjaldsvæðum.
Aðrar upplýsingar:
Helgarpassi kostar 6.500.- Laugardagsmorgunn 4.000.- Dagpassi 2.500.- Vinsamlegast greiðið aðgangseyri með peningum. Landsmótsmerki verða til sölu við inngang og kosta 1000 kr. Posi verður í húsi. Börn og gæludýr eiga að vera heima og passa hvert annað. Skemmtum okkur vel saman og búum til fullt af skemmtilegum landsmótssögum.
Landsmótsnefndin.
Kynning verður á Landsmóti Bifhjólafólks 2011 á félagsfundinum í kvöld. Raftar verða á svæðinu og segja aðeins frá því hvað þeir ætla að gera skemmtilegt á Landsmótinu.
Kíkið við og fáið upplýsingarnar beint í æð. Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni.
Landsmót bifhjólafólks 2011 verður haldið í Húnaveri fyrstu helginaí Júlí. Að þessu sinni er landsmót í höndum Rafta í Borganesi. www.raftar.is
Spölur heimilar frítt í göngin fyrir vélhjól frá kl. 16.00 miðvikudaginn 30. júní til kl. 24.00 sunnudaginn 4. júlí, í tilefni Landsmóts Bifhjólafólks í Húnaveri.
Um leið og við óskum vélhjólafólki góðrar ferðar, væntum við þess að vélhjólafólk sýni tillitssemi í og við „Göngin“ þar sem búast má við mikilli umferð a.m.k. föstudag og sunnudag.
Góða skemmtun!
Spölur
Sniglar höfðu samband við vegagerðina til að spyrjast fyrir um ástand vega á vestur og norðurlandi með tilliti til ferðar á Landsmót. Eftirfarandi upplýsingar fengust hjá vegagerðinni:
Framkvæmdir hafa verið við veginn á Öxnadalsheiði, en þeim á að vera lokið, verið er að vinna við veginn í Víkurskarði, en hann á að vera orðinn þokkalega fær fyrir helgi. Á Holtavörðuheiði er ný klæðning, sem og á löngum köflum á milli Staðarskála og Blönduós, eitthvað er um viðgerða kafla norðanmegin við Blönduós og í Langadal. Allir þessir kaflar eiga að vera orðnir nokkuð góðir en þó getur verið eitthvað um möl á þeim.
Einnig má benda á að á nokkrum stöðum td í Öxnadal eru viðgerðir síðan í vor þar sem eingöngu hefur verið bætt í hjólfaralínuna, og getur reynst varasamt mótorhjólum.
Vegagerðin biður hjólafólk að fara varlega og óskar okkur góðrar ferðar á Landsmót.
- Nú sendum við í loftið Landsmótslagið 2010 sem samið var í þessu frábæra tilefni, endilega skellið linknum á heimasíður ykkar, spilið sem oftast njótið vel og komið ykkur í stemminguna.
http://www.youtube.com/watch?v=2DlZzM4UZ8Q
- Einnig viljum við kynna happadrættið sem er nýjung á Landsmóti.
Tækifæri fyrir þá sem ekki eiga hjól að koma á Landsmót og hjóla heim á nýskoðuðu Suzuki GS 750, tækifæri fyrir þá sem liggja í gólfinu að gera við hjólið sitt að vinna hjólalyftu, tækifæri fyrir þá sem eru þreyttir á eyrnaflapsinu á 90km/klst að vinna glæsilegan hjálm frá Nítró, tækifæri fyrir þá sem eiga bara dúnúlpu til að hjóla í að vinna glæsilegan leðurjakka frá Borgarhjól, , tækifæri fyrir þá sem gleyma ljósunum á alla helgina að vinna rafgeymi.....ofl. ofl. ......
Miðinn kostar litlar 1.000kr
- Landsmótsmerkin í ár verða seld sér á litlar 1.000kr. ALLUR ÁGÓÐI af merkjasölunni rennur til Mótorhjólasafnsins svo það er um að gera að slá tvær flugur þar!
- Fyrir þá sem vilja koma farangri sínum á mótið er bent á að mæta í húsnæði Óskabarna að Kaplahrauni 18 Hfj. milli 20:00 og 22:00 þriðjudaginn 29.júní
- Vinna í gæslu = frímiði. fyrir þá sem hafa áhuga á að spara sér pening þá er sami díll og undanfarin ár, vinnið tvær 6 tíma vaktir og fáið miðann endurgreiddan. Þeir sem vilja taka þennan díl er bent á að skrá sig á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hjá Önnu í síma 893-1130
- Að lokum viljum við minna á að það verður auðveldlega hægt að múta dómnefndinni sem velur flottustu tjaldbúðirnar ........ með voðaveigum og öðrum veitingum :o)
Ítrekaðar kveðjur!
Óskabörn Óðins MC