Sýna efni eftir merki: Keppni
Miðvikudagur, 07. Júlí 2010 22:59

King Of The Street.

Kvartmíluklúbburinn kynnir: King Of The Street.

Þetta er 4. keppni sumarsins.
Hún fer fram laugardaginn 17. júlí 2010

Keppnislýsing:
Þetta er keppni fyrir götubíla. Samþykkt eldsneyti er eingöngu það sem selt er á bensínstöðvum, ætlað til götuaksturs.
Tæki skulu standast bifreiðaskoðun á staðnum,minniháttar frávik leyfð á pústkerfum,t.d ekki nauðsyn að hafa hvarfakút.
Dekkjabúnaður bíla verður að DOT eða E merktur og ekki stærri en 30 tommur á hæð ef um ET street, drag radial eða aðra götuslikka að ræða.
Það verður fylgst með því að menn séu að nota rétt bensín.
Þetta eiga semsagt að vera bílar sem eru keyrðir öðru hverju um göturnar en ekki bara á kvartmílubrautinni.

Keppt verður í sex flokkum á bílum og fjórum flokkum á mótórhjólum.

Bílaflokkar.
Bílar með drifi á einum öxli keppa í 4 flokkum:
4 sílendra
6 sílendra
8+ sílendra yngra en 1985
8+ sílendra eldra en 1985

Fjórhóladrifsbílar keppa í einum flokk:
4x4 flokkur

Jeppar, trukkar og pikkupar keppa í einum flokk:
Jeppaflokkur

Mótorhjól:
Racerar
799cc og minni
800cc og stærri
Hippar
999cc og minni
1000cc og stærri

Einnig verða þessi flokkar keyrðir, en þeir gilda ekki til titilsins King of the street.


Outlaw street - keyrður 1/4 mílu
númeraskylda og allt leyft.
keyrt heads up og pro tree

Opinn flokkur keyrður 1/8
Allt leyft
Keyrt heads up og pro tree

 

Til þess að taka þátt þarftu að hafa:

Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur í klúbb innan vébanda aksturíþróttarnefndar ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda

Keppnisfyrirkomulag.

Keppt verður eftir fyrirkomulagi sem kallast Second chance.  Þetta kerfi er þannig upp sett að þú þarft að tapa tvisvar til að detta út. 
Skýringarmynd er hér:
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=51796.0
 
ATH: það er einungis keyrt 1 run í hverri umferð,  Þannig að ef þú klikkar í ferðinni þá getur það kostað þig sigurinn.
Keyrt verður á protree.

Allir flokkar verðir keyrðir þangað til að sigurvegar hefur fundist í öllum flokkum. 
Þeir sem lenda í fyrstu 3 sætum í hverjum flokki, keppa um titilinn King of the street í hjólaflokki og bílaflokki,
Það verður keyrt með allt flokks fyrirkomulagi
(Keppendum er raðað upp eftir besta tíma hvers og eins og er byrjað á því að stilla saman lakasta og næstlakasta tíma.
Sá sem tapar ferð er úr leik, sigurvegari hverrar ferðar heldur áfram á móti þeim sem næstur er í tímaröðinni.)
Sá sem sigrar þann útslátt verður síðan krýndur King of the street

 

Dagskrá:

Fimmtudagurinn 15. júlí

19:00 – 22:00   Æfing fyrir keppendur / opinn æfing

Laugardagurinn 17. júlí

9:30 – 11:00   Mæting keppenda
11:00      Pittur lokar
11:05      Fundur með keppendum
11:15 – 11:45   Æfingaferðir
11:45      Tímatökur hefjast
13:20      Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45   Hádegishlé
13:45      Keppendur mættir við sín tæki
14:00      Keppni hefst
16:25      Keppni lýkur
16:55      Kærufrestur liðinn
20:30      Verðlaunaafhending, staðsetning auglýst síðar
ATH: Dagskrá getur breyst ef keppendafjöldi verður mikill.


Upplýsingar um skráningu:

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM

Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á Kvartmíluspjallinu.
Nánari upplýsingar í síma 8473217, Jón Bjarni

SKRÁNINGU LÝKUR föstudagskvöldið 16. júlí Á SLAGINU 22:00

Það fær enginn að keyra keppnisæfingu nema að vera búinn að skrá sig og borga keppnisgjöld.

Til að flýta fyrir skráningu þá er gott ef menn geta komið með þetta skjal útfyllt.
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?action=dlattach;topic=42742.0;attach=44370
ATH það þarf bara að fylla þetta út einu sinni fyrir æfingu og keppni.

Keppnisgjöld verða að vera greidd fyrir kl: 23:59 föstudaginn 16. júlí.
ATH.  Þetta er loka frestur á keppnisgjöldum nema eitthvað komi uppá hjá mönnum og þeir geti ómögulega greitt keppnisgjald á réttum tíma.
Enginn fer niður í pitt fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd.

Einnig ætla ég að biðja sem flesta um að reyna að millifæra keppnisgjöldin

Reikningsnúmerið er:
#1101-26-111199
Kennitala:
# 660990-1199

Keppnisgjaldið er 5000kr
KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA

ATH til keppenda.

Þeir sem mæta á keppnisæfinguna þurfa ekki að fylla út skráningarblaðið aftur.
ALLIR KEPPENDUR EIGA AÐ KOMA VIÐ Í FÉLAGSHEIMILINU OG FÁ DAGSKRÁ Á LAUGARDEGINUM ÁÐUR EN ÞEIR FARA NIÐUR Í PITT!!!!!!!!!!!

PITTUR LOKAR KL 11:00
ÞEIR SEM ERU EKKI MÆTTIR FYRIR ÞANN TÍMA FÁ EKKI AÐ TAKA ÞÁTT
ÞAÐ VERÐUR TEKIÐ HART Á ÞESSU Í ÞESSARI KEPPNI


Ef það eru einhverjar spurningar þá er ykkur velkomið að hringja í síma 847-3217, Jón Bjarni

Birt í Hjólamenningin
Fimmtudagur, 13. Maí 2010 12:22

AÍH - Æfingar

Æfingar fyrir götuhjól á akstursíþróttasvæði AÍH

Götudeild AÍH stendur fyrir æfingum öll fimmtudagskvöld á akstursíþróttasvæði AÍH í Krísuvík frá kl, 19:00. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir hjólafólk af báðum kynjum á öllum stærðum og gerðum bifhjóla. Fyrsta æfing sumarsins verður haldin þann 6. maí.

Nýliðar og byrjendur eru sérstaklega hvattir til að mæta og er alltaf tekið vel á móti þeim. Skipt er í hópa eftir getu og aka því allir á svipuðum hraða innan hvers hóps. Enginn þarf því að hafa áhyggjur af því að vera fyrir öðrum. Boðið er upp á leiðsögn fyrir þá sem það vilja.

Sérstakur nýliðadagur verður haldinn 23. maí, ökumenn hjóla af öllum gerðum eru velkomnir.
www.road-race.net  -  www.aihsport.is  -  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Birt í Hjólamenningin

Klukkan 14:00 1. maí verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslitin ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni.  Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum  
1. Verðlaun – 60.000 kr. Bensín úttekt frá Orkunni
2. Verðlaun – Hjálmur frá Suzuki umboðinu
3. Verðlaun – 20.000 kr. Gjafabréf frá IKEA
Stigahæsta kona – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Stigahæsti karl – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Hægt er að skrá sig til keppni með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða á staðnum fyrir keppni. Skilyrði fyrir þátttöku er að vera með mótorhjólapróf.

Birt í Sniglar
Fimmtudagur, 07. Janúar 2010 02:59

Enduro-crossið á Ruv

 

Endúro-crossið sem haldiið var í Reiðhöllinni í desember var á sýnt á Ruv þann 5. jan. 

Flott keppni og frábært framtak.

Kíkið á þáttinn.

 

Birt í Hjólamenningin
Mánudagur, 07. Desember 2009 21:39

Inni-Endúró

Fullt hús var í Reiðhöllinni í Víðidal er haldið var Inni-Endúrókeppni í fyrsta sinn á Íslandi þar.

32 keppendur mættu til keppni og var keppt í afar erfiðri þrautabraut sem reyndist mörgum keppendanum erfið.

Sigurvegarinn varð Kári Jónsson TM hjóli en sýnt var frá keppninni í Sjónvarpsfréttum á sunnudagskvöld.

 

Birt í Hjólamenningin
Sunnudagur, 08. Nóvember 2009 22:24

MotoGP lokið þetta árið

Jæja þá er MotoGp vertíðinni lokið þar sem síðasta keppnin var í dag á Valencia brautinni á Spáni.

Keppnin byrjaði með drama þar sem Casey Stoner (Ducati) krassaði í upphitunarhringnum en hann var á ráspól fyrir keppnina en tók ekki þátt í keppnini eftir fallið.

Þar með færði hann þriðja sætið í mótaröðinni á bronsfati til Dani Pedrosa (Honda) en hann sigraði keppnina með yfirburðum en á eftir honum komu Yamahatvíeykið Valentíno Rossi og Jorge Lorenso.

Lokastaðan og öll úrslit.

AoyamaHector Barbera sigraði 250cc í dag.

í 250 flokknum var spennan mest því þar var enn titill í boði en þar átti Marco Simoncelli (Gilera) Smá möguleika á að stela titlinum af Hiroshi Aoyama (Honda) en þá þurfti Hiroshi að detta úr leik.

Það reyndar gerðist næstum því er Hiroshi keyrði útaf brautinni en hann datt ekki og hélt áfram. Simoncelli fann pressuna og gerði að lokum aksturmistök og datt og var úr keppni.
Verðskuldaður titill hjá Hirosi Aoyama sem endaði í 7 sæti.

 

Í 125 flokknum var spennan minnst en þar sigraði Julian Simon (aprilia) en hann var búinn að tryggja sér titilinn og sannaði bara að hann var langbestur í 125cc. 

 

 

  

Birt í Hjólamenningin
Laugardagur, 07. Nóvember 2009 15:02

Lokamótið í MotoGP

Nú er komið að lokakeppni ársins í MotoGP á Valencia á Spáni.

Það er reyndar ekki mikil barátta um titla þar, þar sem Valentino Rossi er búinn að tryggja sér titilinn.

en smá möguleiki er fyrir Dani Pedrosa að komast upp í þriðja sætið ef Stoner gengur ílla.

Aðeins meiri spenna er í 250cc flokknum en þar á Marco Simoncelli smá möguleika á titlinum en hann er 21 stigi á eftir Hirosi Aoyama. Möguleiki Simoncelli felst í því að Hirosi falli úr keppni eða fá i færri en 4.stig.

í 125 flokknum er engin spenna en þar er Julan Simon orðinn heimsmeistari og enginn ógnar honum né öðru sætinu.

Staðan.

Birt í Hjólamenningin
Sunnudagur, 25. Október 2009 23:38

SBK Heimsmeistari á sínu fyrsta ári.

Það má með sanni segja að Ben Spies sé nafn sem þið ættuð að leggja á minnið. 

 

Því að þessi 25 ára gamli bandaríkjamaður kom sá og sigraði á sínu fyrsta tímabili í World Superbike á Yamaha.

Titillinn var samt ekkert öruggur því fyrir keppnir dagsins sem eru tvær í superbike þá var Spies í öðru sæti á eftir reynsluboltanum Noriyuki Haga( Ducati) sem hafði 15 stiga forskot á hann. En Haga var óheppinn í Race 1 og datt og það færði Spies sér í nyt og hann vann þá keppni.

Í Race 2 þurfti hann á vera í topp 6 til að tryggja sér titilinn þ.e. ef Haga myndi vinna.
Haga varð annar og Spies fimmti og úrslitin voru ráðin!!!!!,  Frábær titill hjá Ben Spies.  

 

Nánar um keppnina sem var í Portugal  og lokastaðan í nánar.

 

Ben Spies (Yamaha World Superbike) won the first race and then controlled the situation in race 2 to take his and Yamaha's first ever World Superbike Championship title in front of an 86,000 crowd in the final round of the series at Portimao. Noriyuki Haga (Ducati Xerox), points leader going into the decider, crashed out in race 1, making things easier for the Texan, who was fifth in the second race. Michel Fabrizio (Ducati Xerox) took the win in race 2, while Max Biaggi (Aprilia Racing) and Jonathan Rea (Hannspree Ten Kate Honda) were the other podium finishers.


Race 1


Race 1 was dominated from start to finish by Spies, who took his fourteenth win of the season and overhauled Haga in the title chase. The Texan, who rocketed away from the line, comfortably held off any attempts at an attack from Biaggi, then upped his pace to go on to take a solitary chequered flag. With this result Spies now has a 15-point advantage over Haga, who lost the front and crashed on lap 7 while making up time in fifth place. The runner-up slot went to Rea, who got the better of Biaggi after a terrific duel. The best Ducati rider to the line in fourth place was Shane Byrne, in one of his best races of the year, while fifth went to Michel Fabrizio (Ducati), who compromised his race with a bad start. Leon Camier had a good run to sixth for Aprilia, while Ruben Xaus finished eighth on the first BMW. Both Suzukis failed to finish, Yukio Kagayama crashing out and Sylvain Guintoli was forced to retire.


Ben Spies: "It was actually a really tough race, at first I was just going for the win, getting to the front and not worrying about anything. Then when Haga was out I had to win to get as many points as possible for race 2. Once you have a gap, you don't want to be stupid and throw it all away."


Jonathan Rea: "It took a little bit of time for my tyres to get right in but when they did they were good until the end. The team and the bike have been working really good and I can't thank them enough. It's the first time I've ever had such a result in race 1 and I'm sure in race 2 I'll be strong again."


Max Biaggi: "I didn't maybe have the chance to set up the bike the way I want and I had a few small problems, and then sometimes I made a few mistakes and this lost me some tenths. But I'm pleased with the result, even though I'm so sore from the accident yesterday and I didn't think I could do the whole distance."


Results: 1. Spies B. (USA) Yamaha YZF R1 38'15.390 (158,442 kph); 2. Rea J. (GBR) Honda CBR1000RR 1.697; 3. Biaggi M. (ITA) Aprilia RSV4 Factory 2.113; 4. Byrne S. (GBR) Ducati 1098R 2.757; 5. Fabrizio M. (ITA) Ducati 1098R 14.753; 6. Camier L. (GBR) Aprilia RSV4 Factory 20.044; 7. Checa C. (ESP) Honda CBR1000RR 25.634; 8. Xaus R. (ESP) BMW S1000 RR 31.104


Race 2


Spies monitored Haga all the way in race 2 to take the fifth place that was enough to give him the 2009 title. The American only had to finish sixth, but he preferred to shy away from any direct confrontation and together with Haga's second place, the result gave him the title by six points. Fabrizio scored his third win of the season after a terrific scrap with Rea, who took the final podium slot, while Shane Byrne was again a protagonist of the race and finished fourth. Biaggi looked spectacular on the track, but the Italian made several errors and could only finish in sixth, while team-mate Leon Camier ran another convincing race in seventh, ahead of Smrz (Guandalini Ducati) and Corser (BMW), while this time both Suzuki riders Guintoli and Kagayama finished in the points.


Ben Spies: "First I've got to thank Yamaha for giving me everything I needed to win. It was really good, we did what we had to do and it was difficult to do that because the pace was quite fast and I saw that there were a couple of people behind me. I knew that if Nori won I had to be sixth, so I tried to stay out of trouble. It was spectacular, I can't thank Yamaha enough and everyone who's been behind me for my first year here. It'll sink in in the next couple of days!".


Michel Fabrizio: "Both Jonathan and I showed that we're going to be up at the front next year and we're going to do a lot of these battles. I really wanted that win, Johnny made a mistake here at the last curve, maybe a gear slipped or something, and for me it was all OK. Just as well because otherwise it would have been difficult to overtake him."


Noriyuki Haga: "This weekend we had a problem with the rear tyre and in the first race we made a mistake with the tyre choice and I crashed. Second race was quite good, I was worried for the tyre life, but I started to push and I am happy for second position. Unlucky for today for the title but I try to do my best for next year and congratulations to Ben for the world title."


Jonathan Rea: "With Michel I was racing for my own championship position and it seemed to be a little bit of a fight and I had to do something on the last lap to win the race and get fourth in the championship. I tried everything but made a mistake which allowed Michel to get past. But this is my best weekend of the season with a double podium."


Results: 1. Fabrizio M. (ITA) Ducati 1098R 38'19.654 (158,148 kph); 2. Haga N. (JPN) Ducati 1098R 1.195; 3. Rea J. (GBR) Honda CBR1000RR 1.494; 4. Byrne S. (GBR) Ducati 1098R 5.553; 5. Spies B. (USA) Yamaha YZF R1 5.842; 6. Biaggi M. (ITA) Aprilia RSV4 Factory 7.374; 7. Camier L. (GBR) Aprilia RSV4 Factory 9.658; 8. Smrz J. (CZE) Ducati 1098R 10.434; 9. Corser T. (AUS) BMW S1000 RR 17.010; 10. Guintoli S. (FRA) Suzuki GSX-R 1000 K9 24.509; 11. Kagayama Y. (JPN) Suzuki GSX-R 1000 K9 27.195; 12. Parkes B. (AUS) Kawasaki ZX 10R 34.825; 13. Lagrive M. (FRA) Honda CBR1000RR 35.135; 14. Scassa L. (ITA) Kawasaki ZX 10R 1'01.842; 15. Checa D. (ESP) Yamaha YZF R1 1'09.782; 16. Tamada M. (JPN) Kawasaki ZX 10R 1'30.818


Final Points: 1. Spies 462; 2. Haga 456; 3. Fabrizio 382; 4.Biaggi 319; 5.Rea 315; 6. Haslam 241; 7.Checa 209; 8. Byrne 192; 9. Sykes 176; 10. Smrz 169. Manufacturers: 1. Ducati 572; 2. Yamaha 505; 3. Honda 431; 4. Aprilia 329; 5. Suzuki 173; 6. Bmw 141; 7. Kawasaki 76

Birt í Hjólamenningin

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði