Í tilefni af 5 ára afmæli MC Drullusokka verður haldin mótorhjólasýning í Vestmannaeyjum þann 28 maí n.k. Umkvöldið verður síðan afmæliskvöldverður með tilheyrandi gleði. Allir velkomnir að mæta og þeim sem hafa áhuga er velkomið að setja hjól sín á sýninguna. Við vonum að sem flestir mæti og heiðri Drullusokka á afmælinu.
Kveðja
MC Drullusokkar
Mótorhjólamessa annan hvítasunnudag 13. júní kl. 20 – Hún verður U2 messa þetta árið
Mótorhjólamessan er árlegur viðburður þar sem hinir ýmsu mótorhjólaklúbbar ríða fákum sínum í fylkingum til Digraneskirkju.
Sjaldan koma svo mörg vélhjóla saman á einum stað svo almenningi gefst tækifæri á því að skoða fákana og spjalla við ökumenn þeirra.
Messan er ALVÖRU messa, með prédikun og altarisgöngu, svo það er ekkert slegið af í helgihaldinu, þó svo umbúnaðurinn sé sveipaður léttleika og prestarnir (sem verða að vera mótorhjólafólk) eru búnir sama klæðnaði og viðbúið er af vélhjólafólki (hefðbundnum öryggisbúnaði vélhjólamanna). Leður og Goretex er því “viðeigandi” klæðnaður.
Mótorhjólamessan viðamikið samstarfverkefni sem gengur þvert á kirkjudeildir og mótorhjólaklúbba.
Það er stórkostlegt að sjá svo fjölbreytilegan söfnuð koma saman til helgihalds og ekki spillir nú fyrir að þetta minnir líka á það að við erum líka til í samfélaginu og umferðinni.
Mótorhjólamessan tekur mið af ýmsum hefðum sem skapast hafa í “mótorhjólaheiminum”, bæði hvað varðar tónlist og annað. Hún er því nokkuð “hrá” og gæti farið fyrir brjóstið á þeim sem leitast eftir hefðbundnara helgihaldi. Því er gáfulegra fyrir þau sem leitast eftir hefðbundu helgihaldi að finna sér messu annars staðar en í mótorhjólmessunni í Digraneskirkju
Mótorhjólamessan þetta árið (2011) verður með tónlist hljómsveitarinnar U2 sem íslenskir tónlistarmenn munu annast.
Fengið af vef Digraneskirkju www.digraneskirkja.is
Mæting á bílaplaninu við Bláa Lónið kl 13:30
Lagt verður af stað kl.14:00 og ekið inn í Grindavík, hjólum lagt á planinu hjá N1 til sýnis fyrir gesti.
Í boði N1 verða grillaðar pylsur og gos að keyrslu lokinni.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Mótorhjólasafn Íslands mun formlega opna sunnudaginn 15. maí kl 13:00 á afmælisdegi Heidda, en Heiddi hefði orðið 57 ára þá. Þessa dagana er unnið hörðum höndum við undirbúning fyrir opnunina og uppstillingu safnsinns. Að þessu sinni verður neðrihæð safnsins opnuð en safnið hefur verið um 2 ár í byggingu. Við viljum minna á vildarvini safnsins sem er hópur fólks sem styrkir safnið með sjálfvirkum mánaðarlegum framlögum. Þetta er leið sem getur hentað öllum og ef vel gengur að safna í hópinn getur þetta hjálpað verulega því margt smátt gerir víst eitt stórt. Eyðublöð má nálgast hjá stjórn Tíunnar og hjá safnstjóra í síma 8663500, einnig er hægt að skrá upphæð símleiðis í sama númer.
Allir eru velkomnir á opnun safnsinns 15. maí kl 13:00 og hvetja Snigla sem flesta til að mæta

Á föstudaginn 6 maí verður alþjóðlegur mótorhjóladagur kvenna haldinn hátíðlegur í fimmt sinn og eru allar konur hvattar til að stíga á fáka sína og hjóla eins og enginn sé morgundagurinn. Skiptir engu máli á hvaða tegund hjóli þú ert, Harley Davisson, Yamaha, Honda, motocrosshjóli eða einfaldlega vespu því allir eiga jafnmikinn rétt á því að hjóla hvar sem þeir eru niðurkomnir. Tilgangurinn með þessum degi er að vekja athygli á auknum fjölda kvenna sem hjólar sér til skemmtunar og að hjólasportið sé ekki eingöngu bundið við karlmenn. Til gamans má geta þess að mestu aukning í motocrossi á Íslandi var einmitt í hópi kvenna árið 2007 og 2008 þó svo að þar hafi aðeins dregið úr, að þá má rekja það frekar til efnahags en áhugaleysis. Nú má áætla að um fimmtungur keppenda í hverju motocrossmóti sé konur. Einnig hafa sprottið upp félög hér og þar á Íslandi sem eingöngu eru skipaðar konum og má þar nefna hópinn Skutlurnar. En það er hópur lífsglaðra kvenna sem vita fátt skemmtilegra en að viðra fákinn á góðviðrisdögum. Ég veit ekki til þess að það sé einhver sérstök hópkeyrsla kvenna af þessum sökum hér á landi.
Þannig að ég hvet þig enn og aftur, ef þú átt hjóla, sýndu þá samstöðu með kynsystrum þínum og hjólaðu föstudaginn 6 maí.
Texti fenginn af www.motosport.is
Nú styttist óðfluga í Sumardaginn fyrsta og hina árlegu hópkeyrslu Snigla upp á Akranes. Eins og undanfarin ár er þessi viðburður unnin í samvinnu klúbbana Trúboða og Skugga.
Dagskráin verður með nokkuð hefðbundnu sniði. Safnast verður saman við Select á Vesturlandsvegi kl 11:30 og svo lagt af stað fyrir Hvalfjörðinn kl 12 og verða það Raftar sem munu leiða keyrsluna. Stoppað verður aðeins í Ferstiklu áður en síðasti spölurinn upp á Skaga verður ekinn og þar mun veitingastaðurinn Gamla Kaupfélagið taka á móti okkur. Frá Akranesi verður svo haldið í Lögreglufylgd til Reykjavíkur og endað á mótorhjólatónleikum Trúboða.
Að þessu tilefni verður hjá Skeljungi og munu þeir bjóða góðan afslátt af eldsneyti.
Nánari dagskrá verður auglýst á næstu dögum.
Afmælis fundur Slóðavina verður haldinn í Arctic Trucks Kletthálsi 3 kl 20:00 19 janúar.
Ragnar Ólafsson kemur og segir frá ferðalagi um Indland á Royal Einfield bullet. í þremur ferðum ok Ragnar um 25þ. Km og afrekaði m.a. að aka hæsta manngerða fjallveg í heimi, 5600KM. Hæðarveiki, matareitrun og margt fleirra.
Stjórn kynnir starfsárið og nýr bækklingur verður frumsýndur.
Slóðavinir.
Við hjá Tíunni vildum bara minna á að Hjóladagar verða haldnir í fimmta sinn á Akureyri dagana 14. til 17. júlí 2011. Ætlunin er að Hjóladagarnir 2011 verðu þeir stærstu hingað til og að dagskráin verði sem fjölbreyttust þannig að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Við biðjum ykkur því endilega að setja Hjóladaga inn í viðburðadagatalið hjá ykkar klúbbi. Frekari upplýsingar um dagskránna koma svo þegar nær dregur.
Með kveðju
Tían - Bifhjólaklúbbur Norðuramts
Jæja þá er komið að því.......
Haustógleðin er núna á laugardag í Oddvitanum.
Nú er um að gera að mæta og ljúka þar með hjólavertíðinni. En auðvitað höldum við áfram að hjóla á meðan veður leyfir :)
Stjórn Snigla hefur ákveðið að styrkja Haustógleðina og því er um að gera fyrir Snigla að mæta líka og hafa gaman saman.
Annars þá opnar húsið kl 19 og verðu maturinn um kl 20,
Matseðill hjólamannsins:
Kókopuffs hjúpað þjóðvega lamb steikt á pústi
Tættar kjúklingarbringur á pilum
Úrgangs olíu sósa
Vélar hitað kartöflugratín
Kartöflusalat með gúmmí tæjum
Ferskt salat sem fannst á leiðinni
Sólarlitað kókópuffs (gular baunir).
Verðið er 2.000 krónur á mann fyrir greidda félaga, en kjósi menn að fá sér dans- og söngolíu verður hver að koma með það fyrir sig.
Eftir matinn verður lifandi tónlist og frábærir leikir sem enginn má missa af, svo ef þú ert ekki búin/nn að skrá þig þá hefuru pínu ponsu tíma enn ;)
senda póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.