Sýna efni eftir merki: FEMA
Þriðjudagur, 31. Janúar 2012 22:49

Venjuleg vegrið dauðagildra fyrir mótorhjólafólk

Fyrir tilstilli FEMA og fjögurra Evrópuþingmanna sem aka sjálfir mótorhjólum hefur ESB nú gefið út viðbót við umferðaröryggisáætlun sína um hættur sem venjuleg vegrið skapa mótorhjólafólki. "Evrópuþingið hvetur lönd ESB til að biðja umferðaryfirvöld í sínu landi að hanna vegumhverfi þannig að það skapi ekki hættu fyrir mótorhjólafólk. Hefðbundin vegrið sem notuð eru víða í Evrópu eru dauðagildrur fyrir mótorhjólafólk og er nauðsynlegt að lönd ESB bregðist því skjótt við, og skipti um hættulega kafla samkvæmt staðli EN 1317, til að minnka hættu fyrir alla vegfarendur. Einnig er bent á hættuna sem að tjörumalbik veldur mótorhjólum" segir í viðbótinni. FEMA hefur því í framhaldinu hvatt þingmenn ESB til að fylgja þessu eftir og samþykkja nýjan staðal fyrir mótorhjólavænni vegrið.
Birt í Hagsmunamál
Þriðjudagur, 06. Desember 2011 20:51

Kosið um hina umdeildu gerðarviðurkenningu

Neytendanefnd ESB kaus í dag um hið umdeilda frumvarp um gerðarviðurkenningu mótorhjóla. Skemmst er frá að segja að frá 2016 þurfa öll mótorhjól að verða grænni en þau eru í dag og hafa ABS hemlalæsivörn sem staðalbúnað, einnig létt hjól undir 125 rsm. Það sem flestum þykir þó alvarlegast er að frá og með 2014 verður eigendum mótorhjóla bannað að breyta eiginleikum véla sinna, og verða að láta skoða allar minniháttar breytingar sérstaklega. Enn á þó eftir að útfæra reglur þessar svo það er ekki öll von úti og mun FEMA áfram berjast gegn frumvarpi þessu og þá sérstaklega hinni umdeildu 18. grein. Að sögn Aline Delhaye, aðalritara FEMA eru sumir hlutar frumvarpsins góðir, eins og þeir sem lúta að endingu hjólanna og upplýsingagjöf. "Ef 18. greinin fer hins vegar óbreytt í gegn mun það þýða að hinar einföldu breytingar sem margir gera á hjólum sínum til að spara eldsneyti, auka þægindi eða bæta eiginleika hjólanna, verða ólöglegar. Hingað til hefur þetta ekki verið vandamál og það er engin ástæða til þess að ætla að þetta verði vandamál á morgun. Þess vegna mun FEMA áfram berjast fyrir breytingum á greininni" segir Aline. Sumir kynnu að spyrja hvaða máli einhver reglugerð hefur hér á landi, en með EES sáttmálanum skuldbindur Ísland sig til að taka upp lög ESB að mestu og þar á meðal þessi. Þótt kosning nefndarinnar sé ekki endanleg atkvæðagreiðsla sýnir hún líklega niðurstöðu Evrópuþingsins þegar kosið verður um frumvarpið snemma á næsta ári.

Birt í Hagsmunamál
Laugardagur, 25. Júní 2011 16:32

Enginn Evrópustaðall fyrir mótorhjólavegrið

Á sama tíma og þær gleðifréttir berast að Vegagerðin, í samvinnu við Snigla, sé farin að prófa undirakstursvarnir á vegriðum berast slæmar fréttir frá Evrópu.

Staðlaráð Evrópu, stofnunin sem sér um að útbúa allskonar staðla fyrir Evrópusambandið, varð af sögulegu tækifæri til þess að bjarga lífum mótorhjólafólks með því að breyta staðli fyrir vegrið, sem tilbúinn var til atkvæðagreiðslu, yfir í tæknilegar leiðbeiningar sem stjórnvöld í hverju landi fyrir sig geta ákveðið hvort þau noti eða ekki.

Fimmtudaginn 16 júni hélt tækninefnd um vegbúnað hjá staðlaráðinu árlegan fund sinn í Stokkhólmi. Drög að staðli fyrir mótorhjólavæn vegrið (EN1317-8), sem FEMA hafði fylgst náið undirbúningi að síðustu þrjú ár, var tilbúinn til samþykktar. Því miður, og á vafasömum forsendum, ákváðu 8 af 14 aðildarlöndunum að fresta því að samþykkja staðalinn og breyta honum þess í stað í tæknilegar leiðbeiningar.

Aline Delhaye hjá FEMA sagði af þessu tilefni: "Ég get aðeins meðtekið ákvörðun CEN/TC226 með mikilli eftirsjá. Ég vil meina það að meðlimir CEN hafi misst af sögulegu tæki til að brjóta blaði í sögu öryggismála mótorhjóla. Hvað verður gert með þessar tæknilegu leiðbeiningar eru mér hulin ráðgáta. Ég hef mínar efasemdir um lögmæti rakanna sem lögð voru fram af þeim sem sögðu nei við Evrópustaðalinn. En svona er þetta."

Þrátt fyrir að ályktun 319 kalli á undirbúning fyrir Evrópustaðal; þrátt fyrir góða reynslu (engin bannvæn eða alvarleg slys síðan mótorhjólavæn vegrið voru sett upp) af spænska staðlinu sem EN1317-8 er byggður á; þrátt fyrir skuldbindingu fjölda sérfræðinga hjá CEN og fulltrúm þjóða til þess að fara rólega í sakirnar og auðvelda það að ná samkomulagi; þrátt fyrir fjölda vitnisburða, sem FEMA hafði safnað saman, sem undirstrikuðu þann skaða, líkamlegan sem og andlegan, sem hinir slösuðu, fjölskyldur þeirra og vinir, hlutu við það að lenda á óvörðum vegriðum, ákváðu Bretland, Þýskaland, Tékkland, Holland, Finnland, Svíþjóð og Írland að draga úr umfangi staðalsins sem lagður hafði verið fram. Aðeins Frakkland, Belgía, Noregur, Ítalía Portúgal og Spánn studdu tillöguna um Evrópustaðal.

Þrátt fyrir vonbrigðin með þetta þakkar FEMA þeim sem hafa lagt á sig mikla vinnu við undirbúninginn að því sem hefði orðið mikil tímamót í sögu öryggismála mótorhjóla. Meðlimir FEMA munu að sjálfsögðu halda áfram að vinna við að bæta tölfræðina, styðja við rannsóknarverkefni sem snúa að bættum öryggiskerfum og prófunum á þeim, og kalla eftir evrópustaðli fyrir vegrið sem taka tillit til mótorhjóla með því að innleiða tæknilegu leiðbeiningarnar sem áttunda hluta staðalsins EN1317

Birt í Hagsmunamál

Gerðarviðurkenning mótorhjóla (Type Approval) er þegar komin fyrir Evrópuþingið, fyrr heldur en áætlað var. Í vikunni kynnti nefndin sem er með þetta mál á sinni könnu, fyrirhugaðar breytingar á frumvarpinu sem þegar hefur verið sagt frá hér á síðum Sniglavefsins. Mikilvægustu málefnin eru sem áður skyldunotkun ABS hemlalæsivarnar, sjálfvirk notkun aðalljósa, fiktvörn og mengunarmálin. Frumvarpið er mjög mikilvægt öllum þeim sem hafa áhuga á mótorhjólum enda segir það til um hvernig mótorhjól munu koma frá framleiðendum á næstu árum. Formaður nefndarinnar er þingmaður sem FEMA þekkir ágætlega, Mr. Wim van de Camp. Eitt af hans fyrstu verkum fyrir nefndina var að kynna fyrir Evrópuþinginu hversu mikilvæg mótorhjól og skellinöðrur eru fyrir nútíma borgarumferð, bæði til þess að skapa ódýrari og grænni kost í samgöngumálum. Hann lagði um leið áherslu á að mótorhjól þurfi slökkvara fyrir aðalljós sín, en FEMA hefur einmitt bent á nauðsyn þess til að eigendur geti sjálfir gert við hjól sín. Nefndin hafði lagt til að aðalljósin myndu kvikna sjálfvirkt. Einnig hafði nefndin lagt til að bannað yrði fyrir eigendur að eiga við vélar hjóla sinna, eins og að skipta um púströr eða kveikjuheila en sem betur fer lagði Mr. de Camp til að hvert ríki sambandsins myndi sjálft ákveða hvernig slíkum reglum yrði framfylgt. En það var ekki allt eins og best var á kosið fyrir okkur mótorhjólfólk því að meðal þess sem að Mr. de Camp lagði til var að framleiðendur uppfylltu fyrr kröfur um mengun heldur en lagt hafði verið til áður. Er þar aðalleg átt við að skellinöðrur uppfylli Euro4 mengunarstaðal árið 2014 í stað 2017, en slíkt myndi bæta mjög mengunartölur fyrir tvíhjóla faratæki þar sem þetta eru mestu mengunarvaldarnir. Að lokum hefur FEMA lengi lagt hart að Evrópuþinginu að fella út skylduna um ABS hemlalæsivörn í mótorhjólum yfir 125 rsm, en eftir að nefndin lagði þetta til gáfu samtök framleiðenda sig. Áætlað er að hægt sé að fækka mótorhjólaslysum um allt að 20% á næstu tíu árum ef þetta verður að veruleika. Vandamálið er hvað gera eigi við hjól sem aðallega eru ætluð fyrir malarvegi en tillaga Íslands sem FEMA lagði svo til var að hægt yrði að slökkva á hemlalæsivörninni með sérstökum takka. Mr. de Camp tók undir það með því að segja að hemlalæsivörn yrði ekki hagkvæm fyrir torfæruhjól, án þess þó að útskýra það nánar. Næstu dagsetningar í þess máli eru 22. mars en þá munu hagsmunaaðilar kynna athugasemdir sínar fyrir nefndinni. Fyrri atkvæðagreiðslan um gerðarviðurkenninguna fer fram 15. júní en lokaatkvæðagreiðslan er svo í september.

Birt í Hagsmunamál
Mánudagur, 22. Nóvember 2010 21:00

Tingvall á Umferðarþingi

Á fimmtudag hefst Umferðarþing á Grand Hótel Reykjavík. Þingið er haldið annað hvert ár og er hápunktur ársins hjá öllum þeim sem vinna í umferðaröryggismálum á Íslandi, hvort sem er í grasrótinni eða opinbera geiranum. Eitt helsta umfjöllunarefni þingsins verður Núllsýn í umferðarslysum, en Sniglar hafa einmitt látið til sín taka í þeim efnum nýlega. Aðalgestur Umferðarþingsins að þessu sinni er Claes Tingvall, einn aðalhöfundur Núllsýnarinnar og yfirmaður Trafikverket í Svíþjóð. Sú var tíðin að Tingvall þessi var kallaður óvinur mótorhjólafólks nr. 1 en það hefur breyst í seinni tíð sem betur fer. Þegar Núllsýnarhugmyndin kom fyst fram lét hann nefnilega hafa eftir sér að mótorhjól pössuðu ekki inn í þá hugmyndafræði og þess vegna yrðu mótorhjól að hverfa með tímanum. Hávær mótmæli bárust við þessu hvaðanæva að úr Evrópu eins og sumir muna eftir, meðal annars fyrir tilstilli samtaka þeirra sem mynda FEMA í dag. Það var svo aðallega fyrir tilstilli þeirra samtaka og þá sérstaklega SMC í Svíþjóð að Tingvall hefur nú snúið við blaðinu og sagt að mótorhjólasamtök séu mjög mikilvæg og nauðsynlegur samstarfsaðili fyrir opinbera aðila. Þetta lét hann hafa eftir sér á ráðstefnu lögreglumanna í Bretlandi fyrir skömmu þegar hann var spurður hvort að hann vildi ennþá losna við mótorhjólafólk af götunum. Hann sagði ennfremur að mótorhjól væru órjúfanlegur og mikilvægur hluti umferðarinnar. Hver segir svo að það sé ekki ennþá von fyrir mótorhjól...

Birt í Forvarnir
Sunnudagur, 10. Október 2010 13:47

Kringum hnöttin á rafmótorhjóli

Norðmaður nokkur ætlr að verða fyrsti maðurinn til að fara í kringum hnöttinn á rafknúnu mótorhjóli, en hann mun hefja ferð sína í Noregi í maí 2011. Við suðið frá rafmagnsmótornum mun Tormod Amlien hjóla gegnum Skandinavíu, Austur-Evrópu, Rússland, Síberíu og Kóreu áður en hann siglir yfir Kyrrahafið til Bandaríkjanna, sem hann hjólargegnum áður en hann kemur aftur til Evrópu um haustið. Þormþóður þessi er ekki ókunnur langferðum á mótorhjóli þótt hann sé aðeins rúmlega þrítugur, en hann hefur þegar hjólað yfir hálfan hnöttinn á eldgömlu Nimbus hjóli sem hann gerir við sjálfur. Hjólið sem verið er að breyta fyrir ferðina er KTM 990 Adventure og er mótorinn frá Mavizen rafhjólaframleiðandanum. Að sögn Þormóðs verður helsta vandamálið að fá nægjanlega góða hleðslu á leiðinni þar sem að batteríin þurfa helst þriggja fasa rafmagn til að fá næga og fljóta hleðslu. Hægt verður þó að hlaða á hefðbundnu rafmagni þótt það taki lengri tíma. Undirritaður ræddi aðeins við hann á FEMA fundi í Brussel á dögunum þar sem hann var að kynna þessa ferð sína, og spurði hvort að Ísland þyrfti ekki að vera á ferðaplaninu líka þar sem að hér fengi hann hrein rafmagn sem ekki er fengið með því að brenna kolum. Tók hann vel í á hugmynd ef til þess fegnist stuðningur. FEMA mun styðja hann líka, þó ekki peningalega heldur með samböndum sínum við mótorhjólafólk um allan heim.

Birt í Hjólamenningin
Sunnudagur, 05. September 2010 21:23

Dómi í Noregi snúið við

Við sögðum frá því hér á sniglar.is í vor að ökumaður bíls í Noregi hefði verið sýknaður af því að svína í veg fyrir mótorhjól þar í landi. Ungur mótorhjólamaður ók rauða mótorhjólinu sinu á miðri akrein á um 60 km hraða þegar bíll á biðskyldu sveigði í veg fyrir hann. Bílstjórinn hélt því fram fyrir rétti að hann hefði ekki síð mótorhjólið vegna þess hversu mjótt það var og vegna þess að skilti byrgði sýn. Tveir af þremur dómurum í málinu sýknuðu hann og var það gagnrýnt mikið af mótohjólafólki í Noregi fyrir tilstilli NMCU. Taldi mótorhjólafólk dóminn túlkaðan þannig að bílstjórar þyrftu nú ekki lengur að vara sig á mótorhjólum. Meira en 7000 manns skráðu sig í grúppu á Fésbókinni til að mótmæla þessu. Dómnum var nýlega áfrýjað og að þessu sinni var bílstjórinn dæmdur sekur og fékk 18 daga fangelsisdóm ásamt þess að missa ökuskírteini sitt í sex mánuði. Morten Hansen, stjórnarmaður í NMCU og FEMA lét hafa þetta eftir sér eftir að dómurinn var kveðinn upp: "Loksins er nú búið að ná fram réttlæti, ekki aðeins fyrir mótorhjólamanninn unga, heldur allt mótorhjólafólk. Það er skylda hvers bílstjóra að líta eftir okkur, og líta svo aftur. Við erum kannski smá en við erum ekki flugur!" sagði Morten og vísaði þar með í herferð NMCU sem hvetur fólk til að taka eftir mótorhjólum í umferðinni. Í myndbandinu stoppar ökumaður bíl sinn á bensínstöð til að hreinsa mótorhjólamann af bílrúðunni eins og hann væri dauð fluga.

Birt í Hagsmunamál
Föstudagur, 23. Júlí 2010 17:43

FEMA mótmælir tillögum ESB

Þann 20. júlí gaf nefnd á vegum Evrópuþingsins út umferðaröryggistillögur sínar (RSAP) fyrir næstu 10 árin. Markmiðið er að gera vegi og umferð á þeim öruggari um alla Evrópu og með því fækka dauðaslysum um helming fyrir 2020. Í meginatriðum er FEMA sammála þessum markmiðum. Þó verður að mótmæla því að lítið tillit var tekið til þess sem að hagsmunasamtök mótorhjólafólks lögðu til og þess í stað treyst á dýrar aðferðir sem ekki hefur verið sýnt fram á að auki öryggi mótorhjolafólks. Þessar tillögur eru:

Skylda á "þróaðri" bremsukerfi: Nefndin verður að útskýra betur hvað þróaðri bremsukerfi þýða að mati FEMA. FEMA hefur ávallt mótmælt skyldunotkun ABS hemlalæsivarnar í mótorhjólum þar sem að hún er dýrari kostur og sum lönd, eins og Ísland, notast við mikið af malarvegum ennþá þar sem að ABS reynist ekki eins vel. Þess vegna verður notandinn að fá að ráða hvort hann vilji kaupa mótorhjól með slíkum búnaði.

Meiri aðgerðir gegn "fikti" eigenda: FENA dregur í efa að þessi tillaga nefndarinnar haf eitthvað með öryggi að gera. Líklegra er að slíkar aðgerðir gagnist frekar framleiðendum og umboðsaðilum þeirra að ná meiri tökum og stjórn á markaðinum.

Meiri áhersla á skoðun mótorhjóla: Meiri og tíðari skoðanir á ástandi mótorhjóla eru kostnaðarsamar aðgerðir og ekki hefur verið bent á nein gögn sem sýna að slíkar aðgerðir auki öryggi mótorhjóla.

Hægt verður að nálgast tillögur FEMA um þetta efni á heimasíðu samtakanna:
www.fema-online.eu

Birt í Hagsmunamál
Þriðjudagur, 08. Júní 2010 14:45

Sniglar ganga í FEMA

Á vorfundi FEMA sem haldinn var í Genf 29. maí síðastliðinn var beiðni Snigla um endurkomu að samtökunum tekin fyrir. Var tekið vel í beiðnina og hún samþykkt og eru því Sniglar nú fullgildir meðlimir í FEMA. Á fundinum var einnig borin upp ályktun þar sem hlífðarfatalögunum hér á landi var mótmælt. Var ályktunin samþykkt samhljóða.

Í ályktuninni er bent á það að ekkert evrópuland hefur lög í þessa veru enda ekki til alþjóðlegir staðlar til að styðjast við þegar það er skilgreint hvað sé réttur hlífðarfatnaður. Ályktunin er svohljóðandi: „FEMA, the body of 25 national motorcycle organizations from 20 European countries, strongly opposes the intention of the Icelandic government to confirm a law which calls for mandatory protective clothing for motorcycle riders. No European country has such a law. The reason is simple, no international standard exists for protective motorcycle clothing and therefore it is not possible to implement them in any law or body of laws.“

Með aðild að FEMA opnast Sniglum góður stuðningur frá aðildarlöndum FEMA í baráttumálum eins og gegn hlífðarfatalögunum. Einnig fá Sniglar gott aðgengi að upplýsingum sem auðveldar allt forvarnarstarf og hjálpar til við undirbúning umferðarátaka. Og ekki má gleyma að nú heyrist rödd okkar þegar kemur að því að hafa áhrif á lagasetningar Evrópusambandsins en reynsla okkar af t.d. malarvegum kemur að góðum notum þegar lög um hluti eins og ABS bremsukerfi í mótorhjólum eru rædd.

Birt í Hagsmunamál

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði