Tilkynning um aðalfund 2012:
Aðalfundur Bifhjólasamtaka Lýðveldisins, Snigla
Fundarefni:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs
a. Skýrsla stjórnar
i. Skýrsla skemmtinefndar
ii. Skýrsla landsmótsnefndar
b. Skýrsla umferðarnefnda
3. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs
4. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta stjórnarár
5. Ákvörðun félagsgjalda fyrir næsta ár
6. Lagabreytingar skv. 13. gr. laga samtakanna
7. Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna skv. 12. gr. laga samtakanna
8.Önnur mál
9. fundargerð lesin og leiðrétt
10. Fundi slitið.
Kosning í stjórn og nefndir
Stjórn félagsins skipa fimm einstaklingar. Þeir eru kosnir til tveggja ára í senn samkvæmt eftirfarandi reglu:
1. Kjósa skal annað hvert ár formann stjórnar til tveggja ára í senn.
2. Kjósa skal árlega tvo stjórnarmenn til tveggja ára og þannig tryggt að tveir halda alltaf áfram milli ára.
3. Árlega skal kjósa þrjá varamenn í stjórn sem og tvo skoðunarmenn reikninga.
4.Annað hvert ár skal kjósa þrjá menn í laganefnd sem starfar skv. 18.gr. laga.
Meðfylgjandi eru lagabreytingartillögur lagðar fyrir aðalfund Snigla laugardaginn 18. febrúar 2012
Gert er ráð fyrir að tekið verði 40 mínútna hádegisverðarhlé á fundinum.
Til stendur að varpa fundinum til Akureyrar. Sú framkvæmd er þó með þeim fyrirvara að það sé tæknilega mögulegt. Fundarstaður á Akureyri er ekki staðfestur, en verður auglýstur nánar um leið og færi gefst.
Lagabreitingatillögur:
Á aðalfundi Snigla 2011 var lagt upp með að laganefnd leggði fyrir næsta aðalfund (2012) heildar endurskoðun á lögum samtakanna. Markmið þeirrar endurskoðunar var að einfalda í alla staði lög samtakanna og færa þau til samræmis við lög annarra samtaka sem starfa á sambærilegum vettvangi. Samtökin hafa undanfarin ár markað sér stefnu sem hagsmunasamtök Bifhjólafólks. Einföldun á þeim lögum sem samtökin vinna eftir kemur til með að styrkja þá stefnu.
Hjálögð eru endurskoðuð lög samtakanna, lögð fram af laganefnd og unnin af henni í samstarfi við stjórn. Lögin eru lögð fram í heild sem ný lög samtakanna.
Núgildandi lög má nálgast hér á vef samtakanna (Tengill)
Tillögur að nýjum lögum:
Lög Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla.
Um samtökin
1. gr. Nafn, heimili og varnarþing
Nafn samtakanna er Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar.
Merki og nafn samtakanna er einkaleyfisverndað samkvæmt einkaleyfi nr. 1046/1994. Merkið er hvítt á svörtum grunni áletrað nafni samtakanna og með mynd sem er bæði táknræn fyrir nafnið og starfsemina. Merkið er selt félagsmönnum og þar með eign þess er það kaupir.
Heimili samtakanna og varnarþing skal vera í Reykjavík.
2. gr. Tilgangur
Tilgangur samtakanna er að koma á sem víðtækustu samstarfi bifhjólafólks á Íslandi, gæta hagsmuna þeirra og bæta aðstöðu til ánægjulegri bifhjólamenningar, með því að:
3. gr. Vefsíða, upplýsingamiðlun ofl.
Stjórn samtakanna skipar ritstjórn fyrir vefsíðu Snigla og afmarkar verksvið hennar. Ritstjórn skal skipuð a.m.k. tveimur mönnum, ritstjóra og vefstjóra, sem eru ábyrgir gagnvart stjórn fyrir útliti og innihaldi þess efnis er birt er á vefsíðu. Ritstjórn annast viðhald og þróun á heildarútliti síðunnar. Samþykki stjórnar samtakanna þarf fyrir meiriháttar breytingum á vefsíðu Snigla. Tilgangur vefsins er að miðla upplýsingum um hagsmunabaráttu bifhjólafólks, fróðleik um bifhjólamenninguna og greina frá starfsemi samtakanna. Stjórn og starfandi nefndir skulu kynna reglulega starfssvið og verkefni sín á heimasíðu Snigla.
Önnur útgáfustarfsemi á vegum samtakanna skal fara eftir ákvörðunum stjórnar.
Ritari stjórnar samtakanna er ábyrgðarmaður alls útgefins efnis samtakanna, þar með talið vefsíðunnar.
Aðild
4. gr. Félagsmenn
Hver sá einstaklingur sem fullnægir eftirtöldum inntökuskilyrðum getur orðið félagi í samtökunum:
Þegar stjórn samtakanna hefur samþykkt umsókn fær nýr félagsmaður Sniglanúmer og taumerki.
Meirihluta stjórnar þarf til að umsókn um félagsaðild teljist samþykkt.
Félagsmanni, sem bersýnilega vinnur á móti hagsmunum samtakanna, getur stjórn vikið úr félaginu og tekur sú ákvörðun gildi strax. Til slíkrar ákvörðunar þarf samþykki stjórnar og varastjórnar með öllum greiddum atkvæðum. Þeim sem vísa á úr samtökunum er heimilt að koma á stjórnarfund og skýra mál sitt áður en ákvörðun er tekin. Heimilt er þeim sem vísa á úr samtökunum að skjóta máli sínu til næsta aðalfundar.
Félagsmaður sem starfs síns vegna býr yfir trúnaðarupplýsingum um annan félagsmann eða málefni honum tengd er bundinn þagnarskyldu vegna þeirra upplýsinga. Þagnarskylda gildir áfram þó svo að félagsmaður hætti í samtökunum.
Fjármál
5. gr. Árgjöld, varasjóður ofl.
Rekstur samtakanna skal fjármagnaður með árgjöldum, útgáfustarfsemi og þ.h.
Aðalfundur samtakanna ákveður fjárhæð félagsgjalds fyrir ár hvert. Fyrirkomulag á greiðslu árgjalda fer eftir ákvörðun stjórnar. Félagsmaður telst fullgildur og atkvæðisbær á aðalfundi hafi hann greitt áfallið félagsgjald.
Stjórn ber ábyrgð á rekstri samtakanna milli aðalfunda.
Fjórðungur af nettóhagnaði samtakanna ár hvert skal renna í sérstakan varasjóð sem einungis má ráðstafa til að bregðast við neyðartilfellum sem upp kunna að koma að mati stjórnar. Tryggt sé að varasjóðurinn njóti á hverjum tíma hagstæðustu innlánskjara sem í boði eru um slíka bankareikninga. Höfuðstóll varasjóðs skal þó aldrei vera hærri en fjórar milljónir króna. Enginn félagsmaður getur átt tilkall til hluta af sjóðnum þó hann hverfi úr samtökunum eða að þeim sé slitið.
Aðalfundur ofl.
6. gr. Um aðalfund ofl.
Aðalfundur Snigla skal haldinn síðustu helgi í febrúar ár hvert. Skal þar taka fyrir venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum samtakanna. Stjórn boðar til aðalfundar með birtingu tilkynningar á heimasíðu Snigla með a.m.k. tíu daga fyrirvara. Á fundinum skal kynna samantekt á reikningum samtakanna. Fundargerð aðalfundar og eintak af endurskoðuðum ársreikningi skulu birt á vefsíðu Snigla eigi síðar en þrjátíu dögum eftir aðalfund. Reikningsár samtakanna skal vera almanaksárið. Aðalfundur er því aðeins löglegur að löglega sé til hans boðað.
Stjórn boðar til aukaaðalfundar þegar hún telur þess er þörf eða ef a.m.k. 1/5 hluti fullgildra félaga samtakanna óska þess enda geri þeir áður grein fyrir fundarefni. Til aukaaðalfundar skal boða skriflega með a.m.k. tíu daga fyrirvara. Að öðru leyti gilda sömu reglur um aukaaðalfundi eins og gilda um aðalfundi í lögum þessum.
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir fullgildir félagar. Stjórn getur einnig boðið öðrum á fundinn, ef sérstök ástæða þykir til. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis mættir fullgildir félagar. Formaður setur fundinn og skipar fundarstjóra. Fundarstjóri sker úr um öll atriði er varða meðferð mála og atkvæðagreiðslur á fundinum, nema sérstök ástæða sé til að vísa álitaefni til fundarins. Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara. Ekki er skilyrði að fundarstjóri og fundarritari séu félagsmenn í Sniglum.
7. gr. Kosningar á aðalfundi
Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum. Þeir eru kosnir á aðalfundi til tveggja ára í senn samkvæmt eftirfarandi reglu:
Stjórn skal starfa skv. 8. grein.
Þá skulu eftirtaldir einnig kosnir á aðalfundi:
Stjórn, nefndir, lagabreytingar ofl.
8. gr. Stjórn Snigla
Stjórn skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti en því að formaður er kosinn sérstaklega á aðalfundi. Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skal skipa í embætti varaformanns stjórnar, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Stjórn skal tilnefna fjölmiðlafulltrúa fyrir samtökin, en ekki er skilyrði að hann komi úr hópi stjórnarmanna. Verkaskipting stjórnar skal kynnt á heimasíðu Snigla. Stjórn skal skipa í nefndir samkvæmt 10. grein.
Formaður boðar til stjórnarfunda eftir því sem þörf krefur eða ef tveir stjórnarmenn óska enda hafi þeir áður gert grein fyrir fundarefni. Tryggt skal að stjórn geti komið saman með stuttum fyrirvara. Forfallist aðalmenn í stjórn eða hætti störfum skal kalla til varamenn í þeirra stað.
Varamenn taka sæti í stjórn eftir atkvæðamagni frá aðalfundi. Taki varaformaður stjórnar við sæti formanns skal stjórn skipa nýjan varaformann og kalla til varamann til að taka sæti í fullskipaðri stjórn.
Hlutfall atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum, þó er ályktun því aðeins lögleg að eigi færri en þrír stjórnarmenn samþykki hana. Falli atkvæði á jöfnu hefur atkvæði formanns úrslitavægi.
Stjórn hefur á hendi rekstur samtakanna milli aðalfunda, hefur eftirlit með nefndum og kemur fram fyrir hönd samtakanna.
Stjórnarmenn, bæði aðal- og varamenn, eru undanþegnir greiðslu árgjalds og teljast fullgildir meðlimir.
9. gr. Laganefnd
Laganefnd er skipuð þremur mönnum sem kosnir eru á aðalfundi til tveggja ára í senn. Laganefnd skiptir sjálf með sér verkum og starfar samkvæmt beinu umboði frá aðalfundi og er ekki háð boðvaldi stjórnar samtakanna. Hlutverk laganefndar er að fara yfir þær lagabreytingartillögur sem berast henni og koma með nýjar tillögur til breytinga á lögum samtakanna eftir því sem þurfa þykir.
10. gr. Aðrar nefndir
Stjórn skipar í starfandi nefndir strax á fyrsta fundi eftir aðalfund.
Ný framboð til setu í nefnd skulu berast á aðalfundi eða eigi síðar en 30 dögum eftir aðalfund. Að þeim tíma liðnum skal stjórn auglýsa eftir þátttöku í nefndir á vefsíðu Snigla. Stjórn tilnefnir einn fulltrúa í hverja nefnd sem er tengiliður við stjórn. Fjármál nefnda skulu að mestu eða öllu leyti vera í höndum gjaldkera samtakanna. Nöfn nefnda vísa til verksviðs þeirra og skulu þær starfa eftir bestu getu og hafa hagsmuni félagsmanna og bifhjólafólks almennt að leiðarljósi.
Stjórn tilnefnir fulltrúa í nefndir og ráð á vegum hins opinbera.
Stjórn er heimilt að setja í reglugerð nánari fyrirmæli um starfsemi nefnda á vegum Snigla en efni slíkra framkvæmdareglna skal kynnt í heild sinni á heimasíðu samtakanna.
11. gr. Lagabreytingar
Lagabreytingar skulu lagðar fram á aðalfundi enda hafi þeirra verið getið í fundarboði. Lagabreytingar öðlast gildi ef 3/4 hlutar mættra fullgildra félaga eru þeim samþykkir.
Tillögur til lagabreytinga skal senda laganefnd skriflega eigi síðar en 15 dögum fyrir aðalfund. Allar þær tillögur að lagabreytingum sem laganefnd hafa borist innan þeirra tímamarka skal stjórn kynna orðrétt með birtingu aðalfundarboðs á heimasíðu Snigla.
12. gr. Slit
Bifhjólasamtökum lýðveldisins, Sniglum, verður aðeins slitið á aðalfundi.
Þarf til þess samþykki ¾ hluta mættra fullgildra félaga. Fundur sá er samtökunum slítur ráðstafar eigum þeirra til góðgerðarmála. Til þess að slit samtakanna öðlist endanlegt gildi þarf samþykki tveggja aðalfunda og samþykki ¾ hluta mættra fullgildra félaga á hvorum fundi.
13. gr. Gildistaka
Lög þessi öðlast gildi strax að loknu samþykki þeirra í heild sinni og eru öll eldri lög samtakanna þar með fallin úr gildi.
Núgildandi lög má nálgast hér á vef samtakanna (Tengill)
Fh. Stjórnar Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla.
Bergur Kristinsson, Formaður stjórnar