Umferðaryfirvöld í London tilkynntu í gær að mótorhjólum væri nú óhætt að nota allar strætóreinar í borginni án takmarkanna. Þetta er ákveðið eftir þriggja ára reynslutíma á ákveðnum strætóreinum sem leiddi til aukins umferðarflæðis, minni mengunar og minni ferðatíma þeirra hjóla sem mæld voru. Eini hópurinn sem hefur sett sig á móti þessu eru samtök reiðhjólafólks sem hafa sagt að þetta auki hraða mótorhjóla með aukinni hættu fyrir reiðhjólafólk. Sannleikurinn er sá að meðalhraði mótorhjóla hefur lækkað um 6,5% þar sem leyft var að aka á strætóreinum og fjöldi þeirra sem fór yfir hámarskhraða minnkaði um fimmtung. Þetta hefur verið baráttumál samtaka eins og BMF og MAG UK lengi en leyfi mótorhjóla til að nota allar strætóreinar í London tekur gildi 23. janúar nk.