Evrópusambandið er um þessar mundir að samræma reglur um skoðun ökutækja, þar á meðal mótorhjóla. FEMA samtökin sem Sniglar eru aðilar að, fengu að segja sitt álit á fundi nefndar um málið. FEMA er á móti skylduskoðun á mótorhjólum þar sem að ekki hefur verið sýnt fram á að það auki öryggi mótorhjólafólks nema síður sé. Reglur um skoðun í sumum Evrópulöndum eru mjög strangar og í öðrum þurfa mótorhjól enga skoðun og því skipta samræmdar reglur þau lönd miklu máli. Prófunarfyrirtækin halda því fram að skoðun auki öryggi en FEMA dregur það í efa. Mótorhjólafólki er meira umhugsað um öryggi sitt og því fylgist það betur með ástandi hjóla sinna, það er velþekkt staðreynd. Það þarf ekki tæknifræðing til að segja sér að stöðuljósaperan virki ekki. Í Svíþjóð leiddi rannsókn það í ljós að mótorhjól væru í svo góðu lagi að ákveðið var að fækka skoðunum á þeim. Í Belgíu, Finnlandi, Frakklandi, Grikklandi, Möltu, Hollandi og Portúgal þarf ekki að skoða mótorhjól. Samt eru slys á mótorhjólum ekkert algengari í þessum löndum fremur en öðrum. Á Íslandi eru mótorhjól skoðuð reglulega en skoðun á þeim er vægast sagt misjöfn. Hver kannast ekki við að hafa þurft að reiða fram yfir 5000 kr fyrir skoðun sem tók 5 mínútur og fól í sér hvort ljósin virkuðu á hjólinu? FEMA hefur hvatt il umræðu um málið á vef ESB en þar er hægt að taka þátt í könnun á hversu nauðsynleg skoðun er fólki. Nálgast má hana hér og hvetur FEMA til að sem flestir taki þátt.