Mánudagur, 06. September 2010 23:26

Grænni mótorhjól verða dýrari

Skrifað af  Njáll Gunnlaugsson
Mótorhjól mengunarmælt Mótorhjól mengunarmælt Motorrad

Hingað til hafa mótorhjól sloppið við mengunarreglugerðir Evrópusambandsins en það gæti farið að breytast ef ráðamenn í Brussel ná sínu fram. Spurningin er það hver eigi að borga brúsann? Tæknin hefur gert bíla mun grænni en þeir voru fyrir 20 árum síðan, en því má helst þakka lögum sem ESB hefur sett framleiðendum, að framleiða hreinni bílvélar. Þeir hafa þurft að uppfylla Euro 3, 4 og 5 staðla um hreinni bruna og nú lítur út fyrir að mótorhjól muni þurfa þess líka. Það mun án efa hækka verð mótorhjóla í náinni framtíð en það sem hagsmunasamtök mótorhjólafólks hafa mestar áhyggjur af er hver muni bera kostnaðinn af því að halda slíkum búnaði við. Hver segir til dæmis að mótorhjól uppfylli Euro 5 staðal eftir 50.000 km akstur? Framleiðendur leysa það með því að láta aksturstölvu fylgjast með búnaðinum sem lætur vita þegar ákveðnum gildum er náð. Þannig þarf eigandi hjólsins aftur að borga fyrir að búnaðurinn sem hann borgaði hærra verð fyrir, haldist í lagi. Þá er eftir spurningin um hver fylgist með að stöðlunum sé fylgt eftir. Í sumum Evrópulöndum er engin árleg skoðun á mótorhjólum. FEMA er á móti því að skoðun sé gerð að skyldu þar sem að slysatölfræðin sýnir að hún bætir í engu við öryggi mótorhjólafólks, með öðrum orðum að slysum fækkar ekki í þeim löndum sem eru með árlega skoðun á bifhjólum. Það er skoðun FEMA að framleiðendur eigi að tryggja að búnaðurinn standist allar kröfur í ákveðinn tíma, til dæmis upp í 70.000 km. Ef tilviljunarkennd skoðun leiðir í ljós að hann gerir það ekki þyrfti framleiðandinn þá að innkalla hjólið og gera ráðstafanir sem fela ekki kostnað fyrir eigandann í för með sér. Þegar er orðið ljóst að þetta er mál sem verður ofarlega á baugi í hagsmunum mótorhjólafólks á næstu misserum og því skiptir það máli að hafa málssvara eins og FEMA til að gæta hagsmuna okkar allra.

Njáll Gunnlaugsson

Njáll Gunnlaugsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði