Auka leturstærð
Tryggingar á bifhjólum hefur lengi verið málaflokkur sem hulinn hefur verið hálfgerðu skýi, lítið samræmi hefur verið á milli grunnverðs og þess sem verið er í raun að borga, verðmunur á milli manna og / eða hjólagerða virðist meira byggjast á því hversu góðir menn eru að „semja“ um iðgjöld sín fremur en aldri og / eða reynslu af akstri bifhjóla. Eitt af því sem vantað hefur er gott yfirlit og tölfræði yfir stöðu tryggingamála og hver er hinn raunverulegi kostnaður við að tryggja bifhjól.
Í sumar byrjun stóðu sniglar fyrir könnun meðal bifhjólafólks um hver kostnaður við tryggingar væri. Könnunin stóð frá byrjum maí fram í miðjan júní og bárust svör frá 581, könnunin ætti því að vera nokkuð marktækt úrtak á meðal bifhjólafólks.
Við frum skoðun gagnanna má sjá að meðalgreiðsla bifhjólamanns fyrir eitt bifhjól er um 88.843 kr á ári, óháð því hvort um kaskó er að ræða eða ekki. Miðað við að 9.420 létt og þung bifhjól voru á skrá samkvæmt upplýsingum umferðarstofu um síðust áramót eru heildar greiðslur fyrir tryggingar bifhjóla 836.898.719 Kr á ári, (Ef tekin eru með þau 7.996 torfæru og fjórhjól sem á skrá voru á sama tíma er þessi upphæð rúmlega einn og hálfur miljarður.) Heildar velta hjólafólks með öðrum tryggingum svo sem bíla, húsnæðis og öðrum tryggingum má áætla milli fimm og sex miljarða á ársgrundvelli.
Bilið á milli hæstu og lægstu uppgefnu tölu á tryggingum er líka umtalsverður en lægsta uppgefna greiðsla er 10.000 kr en hæsta 240.000 kr á árs grundvelli. Þessar tölur eru svo ekki í neinu samræmi við „uppgefin“ grunn verð tryggingafélaganna sem eru á milli sex- og sjöhundruð þúsund.
Markmið könnunarinnar var að skapa tölfræði sem hægt væri að byggja á og bera saman við tryggingar á bifhjólum í löndum í kringum okkur, en á tengslaneti FEMA liggur fyrirspurn frá Sniglum þess efnis.
Á næstunni verða gögn könnunarinnar unnin og niðurstöðurnar birtar í skýrslu um tryggingamál bifhjólafólks en fram að því munum við birta hér á vefnum úrdrætti. Sniglar kalla ennfremur eftir viðbrögðum og samstarfi við tryggingarfélögin um bætt fyrirkomulag, og sanngjarna verðlagningu trygginga í þessum flokki.