Fimmtudagur, 05. Ágúst 2010 13:03

1,5 milljarður í tryggingar

Skrifað af  Administrator
Gefa einkunn
(1 Atkvæði)

Tryggingar á bifhjólum hefur lengi verið málaflokkur sem hulinn hefur verið hálfgerðu skýi, lítið samræmi hefur verið á milli grunnverðs og þess sem verið er í raun að borga, verðmunur á milli manna og / eða hjólagerða virðist meira byggjast á því hversu góðir menn eru að „semja“ um iðgjöld sín fremur en aldri og / eða reynslu af akstri bifhjóla. Eitt af því sem vantað hefur er gott yfirlit og tölfræði yfir stöðu tryggingamála og hver er hinn raunverulegi kostnaður við að tryggja bifhjól.


Í sumar byrjun stóðu sniglar fyrir könnun meðal bifhjólafólks um hver kostnaður við tryggingar væri. Könnunin stóð frá byrjum maí fram í miðjan júní og bárust svör frá 581, könnunin ætti því að vera nokkuð marktækt úrtak á meðal bifhjólafólks.


Við frum skoðun gagnanna má sjá að meðalgreiðsla bifhjólamanns fyrir eitt bifhjól er um 88.843 kr á ári, óháð því hvort um kaskó er að ræða eða ekki. Miðað við að 9.420 létt og þung bifhjól voru á skrá samkvæmt upplýsingum umferðarstofu um síðust áramót eru heildar greiðslur fyrir tryggingar bifhjóla 836.898.719 Kr á ári, (Ef tekin eru með þau 7.996 torfæru og fjórhjól sem á skrá voru  á sama tíma er þessi upphæð rúmlega einn og hálfur miljarður.) Heildar velta hjólafólks með öðrum tryggingum svo sem bíla, húsnæðis og öðrum tryggingum má áætla milli fimm og  sex miljarða á ársgrundvelli.


Bilið á milli hæstu og lægstu uppgefnu tölu á tryggingum  er líka umtalsverður en lægsta uppgefna greiðsla er 10.000 kr en hæsta 240.000 kr á árs grundvelli. Þessar tölur eru svo ekki í neinu samræmi við „uppgefin“ grunn verð tryggingafélaganna sem eru á milli sex- og sjöhundruð þúsund.


Markmið könnunarinnar var að skapa tölfræði sem hægt væri að byggja á og bera saman við tryggingar á bifhjólum í löndum í kringum okkur, en á tengslaneti FEMA liggur fyrirspurn frá Sniglum þess efnis.


Á næstunni verða gögn könnunarinnar unnin og niðurstöðurnar birtar í skýrslu um tryggingamál bifhjólafólks en fram að því munum við birta hér á vefnum úrdrætti. Sniglar kalla ennfremur eftir viðbrögðum og samstarfi við tryggingarfélögin um bætt fyrirkomulag, og sanngjarna verðlagningu trygginga í þessum flokki.

Síðast breytt: Þriðjudagur, 12. Apríl 2011 11:26

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði