Miðvikudagur, 21. Júlí 2010 18:10

Sniglar í fréttum Áhugavert

Skrifað af Njáll Gunnlaugsson
Gerard Livett formaður FEMA tekur í hendina á formanni Snigla, Gunnari Gunnarssyni á FEMA fundinum í Genf. Mynd: Wim Taal. Gerard Livett formaður FEMA tekur í hendina á formanni Snigla, Gunnari Gunnarssyni á FEMA fundinum í Genf. Mynd: Wim Taal.

Eins og flestir muna gengu Sniglar í FEMA í sumarbyrjun og nú má lesa frétt um það á heimasíðu þeirra undir slóðinni http://www.fema-online.eu. Á sama fundi fengu fleiri ríki inngöngu eins og Tékkland og Malta sem fengu svokallaða áheyrnarstöðu meðan umsókn þeirra er tekin fyrir. Ísland slapp við það vegna þess að Sniglar voru áður meðlimir í FEMA. Í fréttinni má lesa um baráttu Snigla við hlífðarfatafrumvarpið og einnig áhyggjur manna varðandi það að skylda ABS hemlalæsivörn í mótorhjólum. Svo vitnað sé í Gunnar Gunnarsson, formann Snigla í fréttinni: "Á Íslandi eru fleiri malarvegir en malbikaðir vegir og ABS hemlalæsivörn er ekki aðeins ónothæf á möl heldur getur hún beinlínis verið hættuleg mótorhjólum. Við vonum að sérfræðiþekking FEMA hjálpi okkur að koma í veg fyrir að þetta verði gert að skyldu" segir Gunnar. Ísland er fjórða landið í FEMA sem ekki er innan ESB, en fyrir eru Noregur, Sviss og Tyrkland.

 

Njáll Gunnlaugsson

Njáll Gunnlaugsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði