Föstudagur, 11. Júní 2010 00:12

ÍÍhahhh ! fleiri fréttir af Landsmóti

Skrifað af  Bergur Kristinsson

- Nú sendum við í loftið Landsmótslagið 2010 sem samið var í þessu frábæra tilefni, endilega skellið linknum á heimasíður ykkar, spilið sem oftast njótið vel og komið ykkur í stemminguna.

http://www.youtube.com/watch?v=2DlZzM4UZ8Q
 
- Einnig viljum við kynna happadrættið sem er nýjung á Landsmóti.
Tækifæri fyrir þá sem ekki eiga hjól að koma á Landsmót og hjóla heim á nýskoðuðu Suzuki GS 750, tækifæri fyrir þá sem liggja í gólfinu að gera við hjólið sitt að vinna hjólalyftu, tækifæri fyrir þá sem eru þreyttir á eyrnaflapsinu á 90km/klst að vinna glæsilegan hjálm frá Nítró, tækifæri fyrir þá sem eiga bara dúnúlpu til að hjóla í að vinna glæsilegan leðurjakka frá Borgarhjól, , tækifæri fyrir þá sem gleyma ljósunum á alla helgina að vinna rafgeymi.....ofl. ofl. ......
Miðinn kostar litlar 1.000kr
 
 - Landsmótsmerkin í ár verða seld sér á litlar 1.000kr. ALLUR ÁGÓÐI af merkjasölunni rennur til Mótorhjólasafnsins svo það er um að gera að slá tvær flugur þar!
- Fyrir þá sem vilja koma farangri sínum á mótið er bent á að mæta í húsnæði Óskabarna að Kaplahrauni 18 Hfj. milli 20:00 og 22:00 þriðjudaginn 29.júní
- Vinna í gæslu = frímiði. fyrir þá sem hafa áhuga á að spara sér pening þá er sami díll og undanfarin ár, vinnið tvær 6 tíma vaktir og fáið miðann endurgreiddan. Þeir sem vilja taka þennan díl er bent á að skrá sig á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hjá Önnu í síma 893-1130
 
- Að lokum viljum við minna á að það verður auðveldlega hægt að múta dómnefndinni sem velur flottustu tjaldbúðirnar ........ með voðaveigum og öðrum veitingum :o)
 
Ítrekaðar kveðjur!
Óskabörn Óðins MC

Síðast breytt: Föstudagur, 11. Júní 2010 00:24
Bergur Kristinsson

Bergur Kristinsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tengd myndbönd

Landsmóts lagið 2010

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði