Mánudagur, 07. Júní 2010 18:54

Umsögn um samgönguáætlun

Skrifað af  Gunnar Gunnarsson
Í byrjun maí fengu Sniglar beiðni frá Nefndarsviði Alþingis um að veita umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2009–2012. Þegar farið var að skoða tillöguna kom í ljós að hvergi var minnst á bifhjól í henni. Umferðarnefnd Snigla fannst það skjóta skökku við að ekki skildi vera minnst á bifhjól í tillögunni þrátt fyrir að bifhjól á landinu séu um 7% af ökutækjum í umferðinni. Til að bæta úr því lögðu Sniglar til að orðinu bifhjóli yrði bætt við í klausu um það að breyta eigi skattlagningu eignarhalds og notkunar neyslugrannra og vistvænna farartækja. Einnig var lagt til að í kafla 1.4, markmið um öryggi í samgöngum, yrði bætt við nýjum lið sem væri á þessa leið, „Unnið verið markvisst að því að tryggja óvörðum vegfarendum öryggi eins og best verður á kosið í umferðinni, þ.e. bifhólafólki, reiðhjólafólki og öðrum sem kjósa að nota umhverfisvænan fararmáta.“ Með þessu vill umferðarnefnd Snigla skerpa á öryggismálum bifhjólamanna og annara sem nýta sér umhverfisvænan fararmáta. Nú í byrjun júní voru svo fulltrúar Snigla boðaðir á fund Samgöngunefndar þar sem farið var yfir þessar tillögur og ýmsar leiðir til að bæta öryggi bifhjólafólks voru ræddar. Þeir sem vilja kynna sér þingsályktunartillöguna geta fundið hana á vef alþingis. Umsögn Snigla er svona að finna hér fyrir neðan.
Síðast breytt: Mánudagur, 07. Júní 2010 18:58
Gunnar Gunnarsson

Gunnar Gunnarsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði