Ný umferðarlög voru lögð til fyrstu umræðu fyrir alþingi í dag. Nokkur hópur hjólamanna var mættur við alþingishúsið um hádegi og tyllti sér á pallana til að hlusta á umræðurnar. Samgönguráðherra lagði frumvarpið fyrir og eftir að hann hafði lokið máli sínu tóku við andsvör og umræður að hætti þingheims. Gaman var að heyra á fyrirspurnum til ráðherra hvað mótorhjólafólki hefur tekist þokkalega upp síðustu daga að vekja athygli á málstað sínum, en nánast allir sem í pontu stigu nefndu hlífðarfatnað mótorhjólafólks, eða önnur af þeim málefnum sem við höfum verið að benda á. Að lokinni umræðu var frumvarðið sent til annarar umræðu og til samgöngunefndar til umfjöllunar og umsagnar.
Skoða má umræður um frumvarpið hér:
Umferðarlög