Þriðjudagur, 04. Maí 2010 14:29

Lög um hlífðarfatnað

Skrifað af  Bergur Kristinsson

Vorið 2007 voru ný umferðarlög samþykkt sem skylduðu bifhjólafólk til að klæðast viðurkenndum lágmarks hlífðarfatnaði.   Hvað fólst í þeim orðum var ekki búið að skilgreina og hefur nú þremur árum síðar enn ekki verið gert.   Skv lögunum er ráðherra veitt vald til að vinna nánari skilgreiningu á því hvað viðurkenndur lágmarksfatnaður við akstur bifhjóls felur í sér.
Því miður er staðreyndin sú að upphafleg tillaga að þessum lögum kom frá umferðanefnd Bifhjólasamtaka Lýðveldisins,  Sniglum.  Ætlunin upphaflega var að fá skilgreiningar á hvað teldist til viðurkennds fatnaðar og fá svo í kjölfarið lækkun á tolla.  Í dag er leðurfatnaður skilgreindur sem tískuvara og ber tolla skv því.  Hugsunin var að með lægri tollum fengjum við lægra vöruverð og því fleiri sem hefðu efni á góðum göllum.  
Það skýtur því ansi skökku við að í dag séu til lög sem skylda bifhjólafólk í þessa viðurkenndu galla sem þó er ekki búið að skilgreina í ráðuneytinu og því ekki búið að lækka tollana á.  Svo virðist sem byrjað hafi verið á öfugum enda og lög sett á sem ekki er hægt að framfylgja með nokkru móti.  Þessu hafa bifhjólaklúbbar og samtök í landinu mótmælt harðlega og tvö bréf þess efnis verið send til samgönguráðuneytis, undirrituð af Sniglum ásamt 21 öðrum klúbbi.
Hverjir hagnast á slíkum lögum?  Er í raun verið að vinna með aukið öryggi bifhjólafólks í huga eða snýst málið um peninga eins og svo oft áður?  Og hver á að sjá um að þessum lögum sé framfylgt?  Lögregla hefur varla mannskap til að stöðva öll hjól á götum úti til að kanna hvort fatnaður viðkomandi sé merktur viðeigandi stöðlum og væri til lítils hvort eð er þar sem þessir staðlar hafa ekki enn verið ákvarðaðir. 
Viðurkenndur hlífðarfatnaður kemur ekki í veg fyrir umferðarslys þó enginn sé að neita því að réttur fatnaður geti skipt miklu máli ef slys verður.  Sniglar hafa í gegnum tíðina verið iðnir við að hvetja bifhjólafólk til að klæðast hlífðarfatnaði og munu halda þeirri baráttu áfram.  Þekkt slagorð er t.d.  „Klæddu þig fyrir fallið, ekki ferðina“.   Eins hefur áróður bifhjólafólks sín á milli skilað góðum árangri og fáir nýliðar sem komast upp með það að koma illa útbúnir niður á torg án þess að fá orð í eyra frá hinum sem reyndari eru.  
Lög um skyldu almenns bifhjólamanns til þess að nota viðurkenndan hlífðarfatnað eiga sér ekki hliðstæðu á Norðurlöndum og/eða í Evrópu.  Mikil umræða fór fram um málið innan stofnana Evrópusambandsins og niðurstaðan varð sú skv upplýsingum frá FEMA - Federation of European Motorcyclists' Associations  að evrópsk tilskipun um viðurkenndan hlífðarfatnað EN13595-1,2,3 tekur eingöngu til þeirra sem stunda bifhjólaakstur í atvinnuskyni. Evrópskur staðall tekur því ekki til notkunar annarra en þeirra sem stunda bifhjólaakstur í atvinnuskyni.
a. Protective clothing for professional motorcycle riders - Jackets, trousers and one piece or divided suits - Part 1: General requirements……

Norðmenn voru með ákvæði um viðurkenndan hlífðarfatnað en breyttu sínum lögum til samræmis við evrópsku tilskipunina 2004.
Kjøretøyforskriften. Kap. 46. Vernedress
§ 46-1. (Opphevet ved forskrift 4 juni 2004 nr. 820.)

Erfitt mun reynast að framfylgja þessum lögum óbreyttum gagnvart Norðurlandabúum og/eða Evrópubúum sem hingað koma sem ferðamenn á bifhjólum en ósamræmis gætir nú milli Íslands og annarra Norðurlanda/Evrópusambandslanda. 
Ný drög að frekari breytingum á lögunum mæla með að orðalag verði einungis „lágmarks fatnaður“ og „viðurkenndur“ verði fellt út.  Það færir okkur enn lengra frá upphaflegu markmiði umferðarnefndar Snigla  frá 2006 um að skilgreining á viðurkenndur verði unnin svo hægt sé að fá tollana lækkaða.  Líklegt þykir að ráðuneytið telji sig geta unnið í kringum evrópulögin með breyttu orðalagi en skyldan stendur þó enn.  Nýja orðalagið er síður en svo til þess fallið að auðvelda framkvæmd lagana og gefur tryggingafélögum opnari möguleika á að skilgreina hvort viðkomandi bifhjólamaður á rétt á bótum eður ei. 
Eðlilegt er að við leiðréttum þessi lög og breytum orðalagi þannig að átt sé við akstur bifhjóla í atvinnuskyni. Þannig færum við okkar lög til samræmis við lög á Norðurlöndum og í Evrópusambandinu.

Sylvía Guðmundsdóttir
Snigill #1633

Síðast breytt: Þriðjudagur, 04. Maí 2010 14:44
Bergur Kristinsson

Bergur Kristinsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði