Síðastliðinn fimmtudag var farið í hina árlegu hópkeyrslu upp á Akranes. Veðurguðirnir voru búnir að vera að hóta okkur að vera með hálf leiðinlegt veður en þegar að fimmtudagsmorguninn rann upp var sól í heiði og fínasta veður fyrir utan að það var kalt. Þrátt fyrir kuldann mætti fjöldinn allur af hjólum að Select á Vesturlandsvegi þaðan sem haldið var af stað fyrir Hvalfjörðinn. Ferðin upp á Skaga gekk alveg ljómandi vel og komum við þangað rétt fyrir klukkan 14 en stoppað hafði verið áður að Ferstiklu eins og venjan er. Upp á Akranesi var farinn smá hringur um bæinn áður en stoppað var við veitingastaðinn Galito þar sem boðið var upp á kaffi og með því. Um þrjúleytið var svo haldið af stað aftur í bæinn og fóru Árni Friðleifsson og félagar hans í lögreglunni fyrir hópnum og sáu til þess að ferðin gengi greiðlega fyrir sig. Að venju var svo endað við Fíladelfíu þar sem slysavarnarkonur buðu upp á kaffi og endaði svo dagskráin á mótorhjólatónleikum.
Sniglar vilja þakka Trúboðum og Skuggum fyrir samstarfið við skipulagningu dagsins. Einnig viljum við þakka GWRRA fyrir að leiða keyrsluna og öllum þeim sem komu með í keyrsluna eða komu að einhverju leyti að þessum fína degi.