Á 1. Maí hefur um árabil verið haldinn forvarnardagur Snigla, með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar. Undanfarin ár hefur hópkeyrslan verið farin eftir stofnbrautum en ef allt gengur upp þetta árið má reikna með að farin verði mun skemmtilegri og meira áberandi leið. En 1. maí er líka dagur mótmæla og ætlum við með keyrslunni einnig að vekja athygli á því misrétti sem til stendur að beita mótorhjólafólk með tilkomu nýrra umferðarlaga sem liggja fyrir alþingi, háum sköttum á bensíni og ósangjörnum vörugjöldum á hlífðarfatnaði. Það er hagsmuna mál okkar allra að mótorhjólafólk sitji við samaborð og aðrir vegfarendur og okkur sé gert kleift að gera mótorhjól að valkosti sem farartæki og verja okkur gegn slysum án þess að vera beitt „Refsisköttum“. Við hvetjum alla til að mæta í keyrsluna og sýna samstöðu mótorhjólafólks í verki !