Sniglar, Kvartmíluklúbburinn og BÍKR hafa sameinað hestöfl sín og skapa stóran og fjölbreyttan mótorsport viðburð helgina 30. apríl til 2. maí. Burnout Helgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautar rallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á samskipasvæðinu við Holtagarða, Sniglar munu standa fyrir árlegri 1. maí keyrslu, forvarnardegi og Íslandsmeistara móti í hjólafimi þar sem vegleg verðlaun verða í boði. Alla helgina mun svo standa yfir glæsileg sameiginleg sýning Snigla og Kvartmíluklúbbsins í kauptúni Garðabæ. Sýnd verða rúmlega 300 tæki, sportbílar, kvartmílu tæki og um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjóla hluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum, og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður. Ýrr í Tatoo bike verður með airbrush og á sýningunni verða hjól sem hafa verið skreytt með airbrush. Kynning verður á mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.
Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna. Við hvetjum alla til að láta sjá sig, skoða glæsilega sýningu og styðja við bakið á mótorhjólasfninu og forvarnarstarfinu.
Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.