Biking Viking mótorhjólaleigan hefur nú opnað verkstæði fyrir allar gerðir mótorhjóla, en þeir hafa lengi sérhæft sig í svonefndum ferðahjólum. Til að fagna vorkomunni ætlar Biking Viking að hafa opinn dag laugardaginn 17. apríl frá 11-18. Mótorhjólafólki er boðið að kíkja við og þiggja heitt kaffi, pönnukökur og ástarpunga á meðan spjallað verður saman um það sem okkur öllum finnst skemmtilegast. Biking Viking munu í leiðinni kynna þau umboð sem þeir erum með, þjónustu og ferðir og aflsætti til vildarvina. Biking Viking er staðsett á Langholtsvegi 111 (bakatil), 104 Reykjavík.