Sniglar ætla að standa fyrir mótorhjólasýningu 1. og 2. maí í tengslum við hópkeyrslu og viðburði forvarnardags Snigla og mun ágóði sýningarinnar að mestu leiti renna til byggingar Mótorhjólasafns Íslands á Akureyri (www.motorhjolasafn.is) og svo til forvarnarstarfs Snigla. Þema sýningarinnar er gamalt og sérstakt, en ætlunin er að sýna bæði gömul og sérstök/sérsmíðuð mótorhjól. Við leitum því til ykkar kæra mótorhjólafólk með hjól og gripi á sýninguna eða ábendingar um hjól sem ættu heima á sýningunni. þeir sem geta hjálpað okkur er bent á að hafa samband við Berg Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. / Sími: 864-1090.