Landsmót Snigla á sér langa hefð og hefur verið haldið ár hvert fyrstu helgina í Júlí, í gegnum tíðina hefur landsmót verið á herðum Snigla með aðkomu klúbbanna að einstaka þáttum. Fyrir nokkrum árum var nafni landsmóts breytt í Landsmót bifhjólamanna og var hugmyndin að klúbbarnir myndu skiptast á að taka að sér að sjá um og skipuleggja landsmót. Fram til þessa hefur þetta þó verið með hefðbundnu sniði. Landsmót bifhjólamanna árið 2010 mun því marka tímamót í sögunni því undiritaður hefur verið samningur við Óskabörn Óðins um að standa að Landsmótshaldi þetta árið. Landsmót bifhjólamanna verður því alfarið á herðum Ósabarnanna þetta árið og eigum við hjólafólk sennilega ekki von á neinu öðru en þrumu landsmóti enda Óskabörnin ekki þekkt fyrir annað þegar kemur að mótshaldi.
Við munum í samstarfi við Óskabörnin reyna að flytja fréttir af undirbúningnum í aðdraganda Landsmóts, svo nú er ekkert annað að gera en að taka frá fyrstu helgina í Júlí og byrja að byggja upp spennu. Giftingar sem og annar gjörningur sem komið getur í veg fyrir mætingu er með öllu bannaður þessa helgi.
Sniglar og Óskabörn Óðins
Landsmót



