Sunnudagur, 07. Mars 2010 23:38

100 hestafla hámark á mótorhjól?

Skrifað af Njáll Gunnlaugsson
Þetta hjól er tæp 200 hestöfl, verður það bannað? Þetta hjól er tæp 200 hestöfl, verður það bannað?

Hætta er á 100 hestafla hámarki á mótorhjól í Evrópu ef áform Evrópusambandsins ná fram að ganga í sumar. Evrópuþingið vill leggja fram tillögu sem að setur öll mótorhjól í sama flokk og Frakkland þar sem að 100 hestafla hámark hefur verið lengi við lýði. Samgönguráðuneyti Bretlands hefur spurt hagsmunasamtök þar í landi út í viðhorf mótorhjólafólks til slíkra breytinga. Talsmaður MAG UK segir samtökin vera mjög á móti þessu. "Því miður virðist þessi umræða um 100 hestafla hámark vera aftur uppi á borðinu, ásamt öðrum afskiptum eins og að öll mótorhjól skuli hafa ABS sem staðalbúnað." Bent hefur verið á að rannsóknir sýna að ekki er hægt að benda á samband milli meira öryggis og minni afls.
Heimild: Motorcyclenews.com

Njáll Gunnlaugsson

Njáll Gunnlaugsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði