Leikfélag Akureyrar er að setja upp sýninguna Rocky Horror á Akureyri og munu sýningar hefjast 3. September. Eddie ( Leikinn af Matta Matt) er frekar vafasamur karakter, hálfheilalaus og brunar út úr frosti á mótorfák, okkur finns því vel við hæfi að hann sé í töff "out-dated" og vel notuðum mótorhjóla-jakka. Við leitum að gömlum snjáðum hjólajakka sem passar á Matta Matt. Ef einhver á jakka, vesti og jafnvel buxur sem hann er hættur að nota, eða notar lítið og er tilbúinn að lána okkur á meðan að á sýningum stendur þá væri það vel þegið.
Ef þú ert fær um að hjálpa okkur, hafðu þá samband við Rannveigu Evu í síma 864-5836 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.



