Fyrir tilstilli Bifhjólasamtaka Lýðveldisins, Snigla og Vegagerðarinnar er komin í reglugerð Nr. 990/2009 skilgreining fyrir merkingu á mótorhjólastæðum, merki D01.42. Þar með er hægt að sérmerkja stæði sem eingöngu eru ætluð mótorhjólum.
Nú er bara að berjast fyrir því að merkið verði sett upp á sem flestum stöðum. Sniglar hvetja t.d. alla þá sem stunda rekstur, sérstaklega sem á einhvern hátt tengist mótorhjólum, eins og t.d. verslanir og þjónustufyrirtæki að sína frumkvæði og merkja mótorhjólastæði við húsnæði sitt. Þessu er að sjálfsögðu líka beint til opinberra stofnana, skóla, íþróttahúsa, sundlauga og annara.



