Umferðarnefnd hittist á sínum fyrsta fundi eftir aðalfund og ræddi þá stöðu sem upp er komin varðandi umferðarlög sem eru um það bil að fara fyrir alþingi. Nefndin hefur tekið saman aðgerðarlista fyrir komandi vertíð og má þar nefna auk ofangreinds að verið er að vinna í stæðismálum fyrir mótorhjól auk undirbúnings vorfundar og 1. maí, sem verður með fjölbreyttra sniði en áður. Kominn er samstarfsgrundvöllur við Umferðarstofu varðandi skellinöðrumálin og væntanlega fleiri atriði. Eins stendur til að hleypa af stað könnun varðandi tryggingarmál mótorhjólafólks og er hennar að vænta á næstu vikum. Fleiri mál voru rædd sem of langt mál er að fara út í og bíða fréttir af þeim þess að þau fái afgreiðslu.