Á síðasta stjórnarfundi FEMA var ákveðið að beina sjónum meira að mótorhjólum sem grænni kosti miðað við aðra umferð. FEMA vill hvetja framleiðendur mótorhjóla til að gefa upp CO2 innihald útblásturs til að neytendur séu upplýstari um mótorhjól sem grænni kost og bendir á að mengun frá mótorhjólum sé vart mælanleg miðað við mengum frá bílum, vörubílum eða flugvélum. Að sögn FEMA eru mótorhjól hagkvæmasti kostur sem völ er á í farartækjum nútímans, ekki aðeins vegna minni mengunar heldur einnig hagkvæms hlutfalls afls og þyngdar, minni pláss á vegum auk þess að slíta þeim minnst. Auk þess eru mótorhjól ódýrari en önnur farartæki sem þýðir að þau eru aðgengileg fólki úr öllum stigum þjóðfélagsins.



