Mánudagur, 10. Ágúst 2009 12:20

Landsmót 2009

Skrifað af  Neddi #1837

Kæru Landsmótsgestir, ég vil þakka ykkur kærlega fyrir komuna á mótið  og prúða framkomu.  Ég vil þakka öllu því góða fólki sem aðstoðaði við að gera mótið að einu besta til þessa.

Sérstaklega vil ég nefna Bjartmar gæslustjóra og Önnu hjúkku, þau stóðu sig með stakri prýði.  Það er ómetanlegt að hafa svona fólk í vinnu sem maður getur treyst fullkomlega fyrir þeim verkefnum sem þau taka að sér.  Gæslunni í heild sinni vil ég þakka fyrir vel unnin störf og vona að þau vilji koma að þessu í framtíðinni.

Raftarnir gerðu leikina að einstakri skemmtun.  Ég held að það hafi verið ein farsælasta beiðni sem ég hef gert varðandi störf mín við landsmót  að fá þá til að sjá um leikina.  Raftarnir hafa lyft þeim á annað og hærra plan.

 

Félagar í #10 sáu um grillið í ár, það tókst einstaklega vel.  Eins og allir vita  þá vitum við aldrei hvað koma margir á mótið, svo að það er mjög erfitt að kaupa í matinn.  Það vantaði því uppá eitt og annað  en grillurunum tókst að leysa málin með skömmtun og útsjónarsemi.  Kann ég þeim bestu þakkir og vona svo sannarlega að þau verði til í að taka verkefni sem þetta að sér aftur.

 

Óskabörnin sáu um flutninginn á öllu dótinu á mótstað.  Gott að fá þá í samvinnu og ég vona svo sannarlega að þeir verði með í framtíðinni.

Allir þeir einstaklingar sem lögðu hönd á plóg eiga miklar þakkir skyldar, þetta væri ekki hægt án þeirra.  Jói Rækja, Egill Birkir, Steinþór plakatmeistari, Frikki gamli, Stebba, Stjórn Snigla og síðast en ekki síst aðstoðarkonur mínar Sylvía og Anna Birna.

Hljómsveitirnar voru frábærar hver á sinn hátt.  Það er alltaf æðislegt að fá Sniglabandið, undir tónum þeirra fara hörðustu naglar að tjútta.  Dimma rokkaði næstum þakið af Húnaveri.  Stormur í aðsigi stóðu sig með stakri prýði og fyrir mína parta  búin að stimpla sig inn sem ein af landsmótshljómsveitunum.  Chernobyl eru að stíga sín fyrstu spor á sviði í þeirri mynd sem þeir eru núna og komu sterkir inn.  Það verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.  Eyþór stendur alltaf fyrir sínu, með fjölbreytt og skemmtilegt lagaval, og sjóaður í að skemmta lýðnum og spila með næstum hverjum sem er.  Margir reyndu fyrir sér með söng og spilerýi í ÓÓ tjaldinu við misjafnar undirtektir enn það er einmitt það sem skreytir mótið og gerir það skemmtilegt og ekki má gleyma Arnari bluesmann sem kom, sá og sigraði með munnhörpuspili sínu.

Mér hafa borist örfár kvartanir yfir því að fólk hafi ekki fengið mat og eða súpu.  Þykir mér það mjög leitt enn það fylgir alltaf sögunni í þessum tilfellum að fólkið kom alltof seint í matinn, við því get ég ekkert gert annað enn að ítreka það enn einu sinni, verið á staðnum á meðan  á landsmóti stendur annars missið þið af einhverju.  Bæði maturinn og súpan voru seinna í dagskránni en til var ætlast svo að þið hefðuð ekki átt að missa af þessu ef þið hefðuð verið á staðnum.  Það var nægur matur því að í restina fékk fólk ábót og margir komu 3 í súpuna.

Ég hef séð um landsmót nokkrum sinnum og eitt af því erfiðasta er að áætla hvað margir munu koma, þess vegna pantaði ég merki mótsins í samræmi við fjölda gesta síðustu ára.  Svo skemmtilega vildi til núna að þau voru of fá.  Ég hef þegar pantað fleiri merki og verða þau send til þeirra sem ekki fengu um leið og þau verða tilbúin(eftir c.a. 2 mánuði frá mótslokum).  Ég biðst velvirðingar á þessu  en þetta var þó skemmtileg tilbreytni.

Á Landsmót 2009 komu 301 gestur á helgarpassa, 67 gestir á laugardagspassa og 61 gestur voru í vinnu að einhverju tagi.  Samtals gera þetta 429 manns og er það fleiri en hafa komið á mót í mörg ár.  Til hamingju með þetta, kæru gestir.

Mótið kom því út í um 450.000 kr + í ár.

Helstu úrslit leikja voru;

Skíðaganga; Hreiðar, Kobbi og Stefán,
Þrífótur; Bjánar,
Blindakstur á hjólbörum; Ölkærir
Teygjuganga; Addi,
Drullusokkur; Ásta og co,
Þríþraut; Addi,
Haus á staur; Maggi og Stefán
Kokgleypa; Aggi og Andrea,
Snigl; Einar hestur (59.59sek),
Reyptog; Suzuki,
Burnout; Stebbi Steingríms
Búningaorðan; Stebbi Steingríms,
Dauðaorðan; Magga bögg,
Krassorðan; Dagrún
Lengst að komna; Unnur frá Fáskrúðsfirði, 
Lengst aðkomni; Siggi Bang
Hjól mótsins; H-D, Spessa

Að lokum vil ég þakka kærlega fyrir að hafa verið treyst fyrir því að halda Landsmót ein eða með öðrum síðustu ár.  Nú ætla ég að leyfa öðrum að komast að og spreyta sig  en mun að sjálfsögðu koma reynslu minni áleiðis til þeirra sem taka við.  Eitt af því sem landsmótsnefnd 2009 þarf að sjá um er að finna lm stað fyrir 2010.  Við erum þegar byrjaðar í samningaviðræðum við Húnaver.

Kærar þakkir fyrir mig,
Dagrún #landsmótssnigill 470


Síðast breytt: Mánudagur, 10. Ágúst 2009 23:22
Meira í þessum flokki: Ágæta bifhjólafólk, »

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði