Í fyrrasumar bar nokkuð á endurskoðunum á bifhjólum vegna hávaða. Því er rétt að atriði úr skoðunarhandbókum séu aðgengileg bifhjólafólki. Hér á eftir eru tveir úrdrættir úr skoðunarhandbók sem unnin er skv. Evróputilskipun.
18.22 Þungt bifhjól
(2) Hljóðstyrkur frá þungu bifhjóli sem skráð er 1. júlí 1990 eða síðar má mest vera 100 dB (A) við kyrrstöðumælingu.
Hljóðstyrkur frá bifhjóli sem skráð er fyrir 1. júlí 1990 má mestur vera 105 dB (A), miðað við kyrrstöðumælingu.
(3) Hljóðdeyfibúnaður fyrir útblástur telst vera fullnægjandi ef ákvæði EBE tilskipunar nr. 97/24 með síðari breytingum eru uppfyllt. Takmörkun hljóðstyrks frá þungu bifhjóli telst vera fullnægjandi ef viðkomandi ákvæði sömu tilskipana eru uppfyllt.
Í vafatilvikum skal mæling á hljóðstyrk framkvæmd á eftirfarandi hátt:
A. Mælisvæði:
Til að draga úr áhrifum umhverfis er nauðsynlegt að mælisvæði uppfylli eftirfarandi skilyrði:
Opið svæði með a.m.k. 3 m til allra átta frá jöðrum ökutækis. Ef á mælisvæðinu er einhvers konar upphækkun, t.d. tröppur, þá verður hún að vera í a.m.k. 1 m fjarlægð frá jaðri ökutækisins. Vegna hættu á truflunum skulu hvorki menn né hlutir vera á mælisvæðinu meðan á mælingu stendur fyrir utan skoðunarmann og umráðamann ökutækisins.
B. Umhverfishávaði og áhrif vinds:
Til þess að mælingar séu marktækar þarf umhverfishávaði (þar með talinn vindur) að vera a.m.k. 10 dB lægri en mæld gildi á hvaða mælistað sem er. Mælingar skulu ekki gerðar í óhagstæðri veðráttu því vindur og þoka getur haft áhrif á mælingar.
C. Mælingar:
Á hverjum mælistað skal taka a.m.k. þrjú mæligildi hvert á eftir öðru. Mæling er marktæk ef mismunur milli mæligilda er minni en 2 dB. Meðaltal þessara þriggja mæligilda gefur niðurstöðu mælingarinnar.
Staðsetja skal ökutækið í miðju mælisvæðisins í hlutlausum gír og með stöðuhemil á. Ekki má stíga á tengslisfótstig meðan á mælingu stendur. Áður en mæling á sér stað skal þess gætt að vél ökutækisins hafi náð eðlilegum vinnuhita. Í þeim tilvikum þar sem bifhjól hefur engan hlutlausan gír skal mæling fara fram með afturhjólið í lausu lofti.
Hreyfill og fylgibúnaður
Hæð hljóðnemans frá jörðu skal í öllu falli vera sú sama og hæð útblástursrörs ökutækisins en þó ekki minni en 0,2 m. Fjarlægð milli hljóðnemans og enda rörsins skal vera 0,5 m og mynda 45 ± 10° horn við lóðrétt plan frá endastefnu útblástursrörsins. Í þeim tilvikum þar sem ökutæki hefur fleiri en eitt útblástursrör sem tengjast í einum hljóðdeyfi með fjarlægð minni en 0,3 m milli röranna skal eingöngu nota einn mælipunkt. Hljóðneminn skal staðsettur við það op sem næst er annarri hvorri hlið ökutækisins, en ef slíkt op er ekki fyrir hendi skal miða við það op sem hæst er yfir jörðu. Hins vegar ef fjarlægðin er meiri en 0,3 m skal taka mælingu á öllum útblástursrörum og hæsta gildi lagt til grundvallar.
Í ökutækjum með lóðrétt útblástursrör skal hljóðneminn staðsettur í hæð þess í 0,5 m fjarlægð frá rörinu fjærst ökutækinu. Snúningur vélar ökutækisins við mælingu skal vera 3n/4 þar sem n er sá snúningur vélar sem framkallar hámarksafköst samkvæmt upplýsingum framleiðanda. Fyrir bifhjól gildir sú regla að mælt skal við helming þess snúnings sem gefur hámarksafköst ef sá snúningur er meiri en 5000 sn/mín, en á sama hátt og fyrir bifreið ef snúningur við hámarksafköst er minni en 5000 sn/mín. Strax eftir að þessum snúningshraða er náð er eldsneytisgjöfinni slept snögglega og hæsta gildi mælingar alls ferlisins lagt til grundvallar.



