Föstudagur, 06. Mars 2009 11:54

Byltingarkennt Enduro-hjól frá Husaberg

Skrifað af  Administrator

Frumsýnt í Nítró við Bíldshöfða 10. og 11. mars.

2009  árgerðirn af Husaberg FE 450 og FE 570 Endurohjóli er komin til landsins og verður sýnd í vikunni hjá Nítró, umboðsaðila Husaberg á Íslandi. Hönnun og gerð þessa hjóls sætir miklum tíðindum í veröld mótorhjólanna og hafa Husaberg aðdáendur beðið þeirra með öndina í hálsinum. Hjólin verða sýnd í verslun Nítró við Bíldshöfða 10. og 11. mars.

Hjólið markar tímamót í hönnun Endurohjóla. Meðal þeirra nýjunga sem er að finna í hjólinu er byltingarkennd vélarhönnun þar sem sveifarásnum með sýna gírókrafta er komið fyrir eins nálægt þungamiðju hjólssins eins og hægt er. Þetta gerir það að verkum að léttleiki og beygjueiginleikar hjólsins eru eins og hjá helmingi minna hjóli. Það er hinn sérstaki 70° halli á cylinder nýja hjólsins sem gerir þetta kleift. Um leið minnkar hæð vélarinnar sem einfaldar  vinnuna þegar ventlar eru stilltir. Í hjólinu er líka bein innspýting frá Keihin svo ekki þarf að stilla eftir hita og loftþrýstingi auk þess sem hægt er að velja úr tveimur stillingum á kveikju og innspýtingu eftir því hvort ökumaður sækist eftir hámarks afli eða viðráðanleika. Loftsían situr hátt milli tanks og sætis og er því vel varin fyrir vatni. Nett og létt plast-afturgrind og nýjar Brembo bremsur eru einnig meðal þess sem gera þetta nýja hjól einstakt. Hjólið er einnig búið rafstarti sem auðveldar til muna gangsetningu og fremri pústpípu sem er hönnuð með það í huga að skemmast ekki ef ökumaður fellur af hjóli sínu. Nýja Husaberg hjólið fæst bæði emð  450cc eða 570cc vél.
Það er mótorhjólaverslunin Nítró sem er umboðsaðili fyrir Husaberg. Þau verða sýnd í verslun Nítró við Bíldshöfða 9 10. og 11. mars og svo á Akureyri frá 12. mars auk þess sem þau verða sýnd á Íscross/Snocross mótinu á Mývatni 14. mars.

Síðast breytt: Miðvikudagur, 17. Febrúar 2010 01:10
Administrator

Administrator

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði