Fimmtudagur, 11. Febrúar 2010 18:39

Tilkynning frá vefstjóra - Kveðjubréf

Skrifað af Administrator

Ágætu félagar.

Eftir mörg ár við vefstjórn fyrir Snigla hef ég tekið þá ákvörðun að hætta afskiptum að vefmálum Snigla að sinni. Undanfarin ár hafa oft á tíðum verið afskaplega ánægjuleg með miklum samskiptum við félaga og aðra sem standa fyrir utan félagið en hafa haft samskipti við okkur í þeim málum. Tíminn hefur mér verið afar lærdómsríkur enda reyni ég alltaf að viðhafa það viðhorf að ég læri eitthvað nýtt í hverju því sem ég tek mér fyrir hendur sem síðan nýtist mér í framtíðinni. Sú reynsla sem ég hef fengið nýtist mér klárlega í komandi framtíð og þakka ég enn og aftur félagsmönnum og þeim sem hafa átt samskipti við mig.

Ég kveð vefmálin með ákveðnum söknuði en óska þeim sem tekur við keflinu alls hins besta og býð þeim aðstoð mína við að komast inn í málin sé þess óskað.

Með Sniglakveðju,
Jói #405

ES. Sjáumst vonandi sem flest á aðalfundinum á laugardag.

Síðast breytt: Fimmtudagur, 18. Febrúar 2010 12:06
Administrator

Administrator

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Skylt efni (eftir merki)

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði