Sunnudagur, 22. Nóvember 2009 22:01

Myndasýning hjá slóðavinum

Skrifað af  Vefstjóri

Þriðjudaginn 24. nóvember standa Slóðavinir fyrir myndasýningu, til okkar koma þeir Ingólfur Kolbeinsson og Viggó Már Jensen, en þeir félagar afrekuðu það í sumar að hjóla frá Nýja Sjálandi og alla leið til Íslands, 22.000 kílómetra á fjórum mánuðum.  Þeir koma með ferðasöguna og myndir.  Myndasýningin verður haldin í húsakynnum Arctic Trucks, Kletthálsi 3, og hefst kl. 20:00.

Til að gefa smá innsýn í þetta 4 mánaða ferðalag þeirra félaga þá fóru þeir í gegnum Thailand, Kambódía, Laos, Thailand, Kína (ekki hjólin), Móngólía, Rússland, Úkraína, Móldóvía, Rúmenía, Úngverjaland, Austuríki, Sviss, Frakkland, Þýskaland, Dannmörk og Ísland. Mörg þessara landa eru mjög vanþróuð og töluðu þeir sérstaklega um að vegirnir í Móngólíu hefðu verið svakalegir því í rigningum breyttust þeir í eitt stórt drullusvað.  Rússland var það land sem þeim þótti erfiðast og verður gaman að heyra hvers vegna það var.

Vonumst til að sjá sem flesta, Slóðavinir.

Síðast breytt: Föstudagur, 26. Febrúar 2010 13:16
Vefstjóri

Vefstjóri

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði