Sunnudagur, 08. Nóvember 2009 22:24

MotoGP lokið þetta árið

Skrifað af  Víðir #527

Jæja þá er MotoGp vertíðinni lokið þar sem síðasta keppnin var í dag á Valencia brautinni á Spáni.

Keppnin byrjaði með drama þar sem Casey Stoner (Ducati) krassaði í upphitunarhringnum en hann var á ráspól fyrir keppnina en tók ekki þátt í keppnini eftir fallið.

Þar með færði hann þriðja sætið í mótaröðinni á bronsfati til Dani Pedrosa (Honda) en hann sigraði keppnina með yfirburðum en á eftir honum komu Yamahatvíeykið Valentíno Rossi og Jorge Lorenso.

Lokastaðan og öll úrslit.

AoyamaHector Barbera sigraði 250cc í dag.

í 250 flokknum var spennan mest því þar var enn titill í boði en þar átti Marco Simoncelli (Gilera) Smá möguleika á að stela titlinum af Hiroshi Aoyama (Honda) en þá þurfti Hiroshi að detta úr leik.

Það reyndar gerðist næstum því er Hiroshi keyrði útaf brautinni en hann datt ekki og hélt áfram. Simoncelli fann pressuna og gerði að lokum aksturmistök og datt og var úr keppni.
Verðskuldaður titill hjá Hirosi Aoyama sem endaði í 7 sæti.

 

Í 125 flokknum var spennan minnst en þar sigraði Julian Simon (aprilia) en hann var búinn að tryggja sér titilinn og sannaði bara að hann var langbestur í 125cc. 

 

 

  

Síðast breytt: Föstudagur, 26. Febrúar 2010 13:19

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði