Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir (F.Ú.S.) var stofnað 15. janúar 2008 af rúmlega 120 notendum tví- og fjórhjóla. Strax á fyrstu dögum félagsins, var fjöldi félagsmanna að nálgast tvö hundruð.
Yfirlýst markmið félagsins eru:
að standa vörð um tilvist og akstur á torleiðum, þjóðleiðum og vegslóðum, hvort sem er á lág- eða hálendi í samræmi við lög.
að vernda og viðhalda akstursleiðum í þágu landnýtingar fyrir vélknúin farartæki.
að útbreiða og efla notkun vélhjóla sem almenningsíþrótt, heilsusamlega heilsurækt og útiveru.
að auka þekkingu félagsmanna sem og almennings, fjölmiðla, stjórnvalda og landeigenda á ferðalögum og útivist þeirra sem aka um á vélhjólum.
að miðla upplýsingum um torleiðir, þjóðleiðir og vegslóða til félagsmanna.
að gefa gott fordæmi um umgengni með jákvæðri eftirbreytni og umræðu um náttúruvernd.
að gæta hagsmuna félagsmanna varðandi búnað og annað er lítur að vélhjólum i samráði við viðkomandi yfirvöld.
|
Storfn ár: |
15 janúar 2008 |
|
Meðlimir í árslok 2008: |
250 |
|
Heimasíða: |
|
|
Póstfang: |