Það er endalaust hægt að ræða öryggismál og hluti sem tengjast þeim og erfitt að komast að niðurstöðu um þá hluti að öllu leiti. Hinsvegar er hægt að miðla af reynslu og vera með æfingar til að kenna ungum sem gömlum hjólamönnum tækni og miðla að því sem hefur reynst vel hjá öðrum.
Við getum byrjað á galla og hjálma málum. þegar menn eru að velta þeim fyrir sér kemur oft í ljós að verið er að setja verðið fyrir sig. Þarna á ekki að spara heldur á að kaupa traustar og öruggar vörur frá viðurkenndum aðilum því þetta er það eina sem ver okkur frá malbikinu. Malbikið er hart líka þótt við séum á lítilli ferð. Oft hefur það sést að menn og konur eru í góðum göllum og með góða hjálma en svo þegar kemur að skóbúnaði virðist vera sparað. Leðurskór án allra hlífa eða gönguskór eru ekki góð vörn heldur þurfa þetta að vera stífir skór með hlífum.
Það er að koma mikið inn í dag að hjólafólk er farið að nota vesti í skærum litum við aksturinn. Þetta er til bóta og mættu fleiri taka þetta upp . Einnig mega þeir sem eru að flytja inn öryggisfatnað huga að því að fá hann í skærum litum þannig að við sjáumst betur.
Það er góð regla að keyra með háuljósin á daginn því þá virkum við nær og er tekið er eftir okkur í tíma. En númer 1,2,3 er að treysta engum heldur að gefa frekar eftir réttinn og reikna með að bíllinn sem er að koma út af gatnamótum eða á næstu akrein ætli að svína á okkur. Og ekki vera í blinda horninu á speglum. Farið út í umferð með því hugarfari að annarhver ökumaður reyni að drepa ykkur eða slasa. Með það í huga erum við betur vakandi og að fylgjumst betur með því sem er að gerast í kringum okkur.
Eitt af því sem við þurfum að gera meira af er að vera með fleiri hópkeyrslur og vera með meiri sýnileika í umferðinni. Vera dugleg að minna á okkur að við séum á ferðinni .Besta ráðið til þess er að vera nógu stór hópur á ferð nokkuð oft til að það verði tekið eftir okkur fyrir eitthvað annað en umfjöllun í blöðum um hraðakstur. það er staður og stund fyrir allt svoleiðis og það er hvorki staður né stund að stunda það í umferðinni - það er bara ávísun á slys.
Við þurfum að vera dugleg við að fræða nýliða um veður og bifhjól. Við búum á landi þar sem veður eru oft válynd og . mikið um sviptivinda. Fræða um það hvaða áhrif þeir hafa á hjólin. Einnig má hafa í huga er verið er að keyra á þjóðvegum í hliðarvindi að stór flutningabíll ryður miklu lofti frá sér . Nauðsynlegt er að mynda skjól á meðan þú mætir honum og er hann er kominn framhjá kemur mikið vindhögg sem ber að varast. Það getur hæglega sett mann á hliðina. Sama á við þegar verið er að taka framúr svoleiðis bílum. Brýr á þjóðvegi eru oft með smá skjól og þar vindkviður sem ber að varast.
Vegir landsins eru í misjöfnu ástandi eftir veturinn og þurfa hjólamenn að vera vel vakandi fyrir því. Skemmdum á malbiki,hjólförum og sprungum. Hluti af Hellisheiði er t.d. oft mjög slæmur eftir veturinn frá Kambabrún og inn á heiði.
Í þétt býli eru það brunnlok og niðurföll sem eru hættuleg og einnig allar vegamálningar og það á að forðast það að reyna að bremsa á þeim þar sem þær eru hálar.
Svo er það að hafa allan búnað hjóls í lagi bremsur og dekk. Við eigum að vera það vitur að þetta á allt að vera í lagi okkar vegna. Það er ekkert sem heitir þetta sleppur ef það viðkemur öryggi.
Birgir Þór #445
|