Ökukennarar

Aðalbraut

AdalbrautLærðu hjá þeim sem stunda sportið !
Aðalbraut sf. er 10 ára gamalt fyrirtæki sem sérhæfir sig í ökukennslu og ýmsu því er henni tengist. Stofnandinn heitir Njáll Gunnlaugsson og er þekktur bílablaðamaður og mótorhjólamaður til meira en 20 ára. Við höfum áhuga á öllu því er hreyfist fyrir eigin vélarafli og leggjum okkur fram við að koma þeirri þekkingu sem við höfum aflað áleiðis til nýrra ökumanna. Okkar mat er að til að miðla þurfum við að vera í hringiðunni sjálfir. Því viljum við bjóða þér að fræðast aðeins á Heimasíðu okkar fyrir hvað við stöndum.

Aðalbraut - Ökukennsla
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.adalbraut.is
Sími: 898-3223

 

Ökukennsla 17.is

17.is_2Sigurður Jónasson, ökukennari, annast bifhjólakennslu hjá Ökukennslu 17.is. 

Fyrir þá sem hyggja á nám til bifhjólaréttinda er ekki spurning um að velja ökukennara sem er bifhjólamaður af lífi og sál en Sigurður hefur ekið bifhjólum árum saman, eða í um 27 ár,  auk þess að vera höfundur kennsluefnis þess sem notað er á bóklegum námskeiðum hjá Ökukennslu 17.is.  Auk bifhjólakennslu annast Sigurður ökukennslu til almennra ökuréttinda, kennir á bóklegum bifhjólanámskeiðum, akstursbannsnámskeiðum og í ökuskóla fyrir almenn ökuréttindi.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 822 4166 en einnig er hægt að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og heimasíðan er www.17.is

Ökukennsla 17.is
www.17.is
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sími: 822-4166

 


Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði