
Samtökin voru stofnuð á Gamla-Bauk á Húsavík 5. maí 2006
Tilgangur samtakanna er að;
- koma á sem víðtækustu samstarfi bifhjólafólks í Þingeyjarsýslu,
- gæta hagsmuna félagsmanna á opinberum vettvangi,
- stuðla að bættri umferðarmenningu með góðu fordæmi og
- hjóla saman og skemmta sér og öðrum.
Allt áhugafólk um bifhjól getur fengið inngöngu í samtökin, að því tilskyldu að skilyrði fyrir inntöku séu uppfyllt, en þau eru að:
1. Umsækjandi sé orðin fullra sautján ára og hafi áhuga á bifhjólum.
2. Umsækjandi hafi greitt fullt inntökugjald sem er óendurkræft.
Stjórn afgreiðir umsókn um inngöngu í samtökin sem staðfest skal á næsta aðalfundi.
Fundir: Alla fimmtudaga kl. 20:00 í Shell húsinu á Húsavík.
Frá 1/6 - 1/9 þá hittumst við sem getum öll kvöld við Shell á Húsavík og burrum eitthvert út í bláinn.......
Flestar helgar um sumartímann förum við í lengri ferðir. Nánar auglýst á heimasíðunni undir liðnum "Ferðir"
|
Storfn ár: |
5. maí 2006 |
|
Meðlimir í árslok 2008: |
160 |
|
Heimasíða: |
www.nattfari.is |
|
Póstfang: |