Mótorhjólapróf

TextaHaus_motorhjolaprof
15. ágúst 1997 tók ný reglugerð gildi um ökupróf.  Urðu þar miklar breytingar á kennslumálum og þá ekki síst í A-réttindahluta sem fellur undir bifhjól.  Þar hefur mótorhjólaprófinu verið skipt í tvennt og heitir nú próf á lítið og stórt bifhjól.  Samkvæmt skilgreiningu reglugerðarinnar sem jafnframt er sú sama og notast er við í Evrópu eftirfarandi: (Notast er við hestöfl til einföldunar)

A-Lítið:

Hjól upp að 35 hestöflum allt að 0,22 hestöfl á kíló.

A-stórt:

Hjól yfir 35 hestöflum og allt þar fyrir ofan.

M:

Skellinaðra ekki gerð fyrir hraðari akstur en 45 km/klst.

Þegar þessar tölur eru skoðaðar kemur í ljós að lítið bifhjól getur t.d. talist Suzuki Savage 650 cc en stórt Suzuki RGV 250!  Þarna skiptir semsagt vélarstærð litlu máli heldur afl hjólsins miðað við þyngd.

Hvenar getur maður öðlast réttindi í vikomandi flokki:

15 ára:

Getur öðlast réttindi í flokki M (Skellinaðra)

17 ára:

Getur öðlast réttindi í flokki A-lítið (Lítiði bifhjól ) og hefur það í tvö
ár áður en að hann öðlast sjálfkrafa réttindi á stærri flokkinn.

21 árs:

Getur öðlast réttindi í flokki A-stærra (Stórt bifhjól) án þess að
hafa verið með minnaprófið áður.

Hvernig fer kennslan fram á mótorhjól og hvert á maður að snúa sér?
Fyrst er að verða sér út um ökukennara sem er venjulega með bókleg námskeið líka. Samkvæmt námskrá er venjan að taka 11-16 kennslustundir en það er misjafnt eftir hverjum og einum. Einnig er skylda að taka bóklegt námskeið. Áður en farið er í bóklegt próf þarf að sækja um ökuskírteini á sýslumanni. Eftir bóklegt námskeið hefst verkleg kennsla og er henni skipt í æfingar á plani og svo akstur úti á götu. Í verklega prófinu er byrjað á munnlegu prófi um búnað hjólsins og svo farið í fjórar keiluþrautir sem eru keilusvig, snigilakstur, u-beygja og nauðhemlun. Prófinu lýkur svo á hefðbundnu akstursprófi á götu. Tekið er á hvernig kennsluhjólin þurfa að vera og sem dæmi þarf nemandi að taka próf á lágmark 50 hestafla hjól fyrir stærri flokkinn.

Þegar þetta er skrifað er verið að leggja lokahönd á nýja ökuréttindalöggjöf fyrir alla Evrópu. Með henni verða nokkuð veigamiklar breytingar á mótorhjólaréttindum og verklegu prófi og mun það þyngjast töluvert. Samkvæmt Evróputilskipun mega aðildarlönd ESB og EES ekki innleiða lögin síðar en 2011 og ekki fara að vinna eftir þeim síðar en 2013. Verður fjallað nánar um þessi nýju próf síðar á þessum vettvangi.

 

Written by: Vefstjóri Laugardagur, 07. Mars 2009 02:01
 

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði