Kvartmílu klúbburinn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

KvartmilaStutt ágrip af sögu Kvartmíluklúbbsins.

Kvartmíluklúbburinn var stofnaður 6.júní 1975, og var stofnfundurinn haldinn fyrir fullu húsi í Laugarásbíó. Strax þetta sama ár fór klúbburinn að halda bílasýningar og sandspyrnukeppnir. Sandspyrnurnar voru haldnar að Hrauni í Ölfusi og mættu þar allir helstu spyrnubílar landsins ásamt miklum fjölda áhorfenda. Sýningarnar voru fyrst haldnar útivið en fljótlega voru þær fluttar inn og þá í laugardalshöllina og síðar í Sýningarhöllina (nú Húsgagnahöllin/Krónan/Intersport). Á þessum árum 1975 til 1979 var verið að undirbúa byggingu keppnisbrautar, og fór ágóðinn af sýningunum í sjóð til að standa straum af byggingu brautarinnar. Reykjavíkurborg úthlutaði Kvartmíluklúbbnum lóð við spennistöðina á Geithálsi, og var farið að mæla út fyrir braut þar. Það kom hins vegar fljótlega í ljós að mjög dýrt yrði að byggja braut á þessum stað vegna þeirra umfangsmiklu jarðvegsskipta sem þyrftu að fara fram. Þegar þetta kom í ljós þá var þegar farið að leita að öðrum stað til að byggja braut á. Það endaði síðan á því að klúbburinn gerði samning við Skógrækt Ríkisins sem átti land í Kapelluhrauni sunnan Hafnarfjarðar. Áður byrjað var á byggingu brautarinnar þurfti meðal annars að athuga með grunnvatn í nágrenninu vegna hugsanlegrar mengunar, og var Jón Jónsson jarðfræðingur fengin til að meta þann þátt. Eftir að hann hafði gefið grænt ljós gáfu bæjaryfirvöld í Hafnarfirði líka grænt ljós á byggingu brautarinnar. Hafist var handa við bygginguna 1978 og var það verktakafyrirtækið Aðalbraut sem sá um vinnuna. Lokið var síðan við lagningu brautarinnar 1979 og var fyrsta keppni áætluð 28 október sama ár. Ekkert varð þó af henni þar sem að morgni þess 28 október var 20cm jafnfallinn snjór yfir öllu og þar með var að fresta þessu til næsta vors. Það var síðan vorið 1980 sem brautin var formlega opnuð og byrjað var að keppa á henni, en þá var hún eina sérbyggða spyrnubrautin í Evrópu. Þann titil ber hún ennþá að vera fyrsta sérbyggða spyrnubraut Evrópu. Kvartmíluklúbburinn hefur frá stofnun haldið úti félagsheimili þar sem menn hafa getað komið saman og spjallað. Klúbburinn hefur haldið íslandsmeistara keppnir frá 1980 til dagsins í dag. Keppt er í mörgum bíla og hjólaflokkum. Meðlimir eru núna árið 2009 um 700 talsins. Á síðustu árum hefur mikil uppbygging verið á svæði klúbbsins og er þar komið 160 fm félagsheimili auk bættrar aðstöðu fyrir keppendur og áhorfendur.
Kvartmíluklúbburinn er í aðili að Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar og ÍSÍ.


Sigurjón Andersen
Hálfdán Sigurjónsson

 

 

Storfn ár:

6.júní 1975

Meðlimir í árslok 2008:

700

Heimasíða:

www.kvartmila.is

Póstfang:

Written by: Vefstjóri Þriðjudagur, 10. Mars 2009 00:32
 

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði