landsmot2012

  • Landsmót 2012
    Landsmót 2012 Landsmót bifhjólamanna 2012 er í höndum Mc Skál og verður haldið í Húnaveri „helgina“ 5. – 8. júlí Nú er ekki seinna vænna en að fara að safna sér fyrir góðu pari af tjúttskóm, brugga gott seið og láta króma tjaldhælana því ef Mc Skál…
  • !!! Trúss á landsmót !!!
    !!! Trúss á landsmót !!! Þeir sem vilja koma farangri með trúss á landsmót er bent á að flutningabíll verður staðsettur við Snigleheimilið á Skeljanesi næstkomandi þriðjudagskvöld frá kl. 19:00 til 21.00 reiknað er með sem svarar einum ruslapoka á mann og kostar 1000kr fyrir pokann. -Raftar Af þessum sökum…
  • Landsmót Bifhjólafólks
    Landsmót Bifhjólafólks   Landsmót Bifhjólafólks Húnaveri 2011 Hjólari. Landsmótsnefnd Rafta sendir þér þetta bréf til að hvetja þig og aðra hjólara til að taka þátt í stærsta viðburði bifhjólafólks á árinu hérlendis. Allt er að verða klárt í magnað landsmót, uppfullt af leikjum, mat, drykk og tónlistarviðburðum…
  • Dagskrá Landsmóts 2011
    Dagskrá Landsmóts 2011   Fimmtudagur 30. júní Fólk streymir á svæðið. Formleg dagskrá hefst.Kl. 22.00 Chernobyl ( Óskabörn Óðins ) Föstudagur 1. júlí Og enn bunar inn fólk.Kl. 16.00 Hjólaleikar MC SaxaAA fundurKl. 20.00 Óskabörn Óðins grilla!!!!! Gildran spilar dinnerROKK.Kl. 22.00 Myrká. Tónleikar á svæði.Kl. 23.30 Gildran setur…
  • Landsmót 2011
    Landsmót 2011 Landsmót bifhjólafólks 2011 verður haldið í Húnaveri fyrstu helginaí  Júlí. Að þessu sinni er landsmót í höndum Rafta í Borganesi. www.raftar.is

Allar fréttir

 

Content on this page requires a newer version of Adobe Flash Player.

Get Adobe Flash player

  • Landsmót

    Landsmót hefur verið haldið ár hvert fyrstu helgina í júlí síðan 1987.
    Það eru hins vegar ekki margir sem vita það að fyrsta Landsmót Snigla var haldið í Húsafelli dagana 29. - 31 júní árið 1984. Það mættu mjög fáir á þetta fyrsta Landsmót svo fáir að varla var hægt að deila niður verðlaunapeningunum sem áttu að vera í verðlaun fyrir hinar ýmsu keppnisgreinar sem keppa átti í. Tilnefndur var meðal annars mesti mótorhjólatöffarinn og fl. á þessu Landsmóti. Það er samdóma álit þeirra sem þarna voru að veðrið var svo gott að ekki var hægt að gera neitt nema að flatmaga í sólinni í sem allra fæstum fötum.
    Í lok júní 1987 var svo haldið Landsmót í Húnaveri og var eingöngu ætlað Sniglum, en ef aðrir slæddust á svæðið varð fullgildur Snigill að bera ábyrgð á viðkomandi. Á þetta Landsmót mættu yfir 120 gestir og þótti fjöldinn gífulegur. Á þessu landsmóti var keppt fyrst í Snigli, en það er að fara braut sem er 16 metra löng og 1 og 1/2 metri á breidd á sem lengstum tíma án þess að stíga niður fæti á meðan brautin var ekin. Þessi keppnisgrein er í raun þjóðaríþrótt Snigla og er til skrá yfir besta tíma í braut sem er 1:07 og er methafinn Einar Hestur sett á Landsmóti í Trékyllisvík 1992 og er meðalhraði sigurvegara því 0,886 km á kl.. Einnig var keppt í íþróttum eins og Zippo-mundun, hreðjaglímu, tegundareiptogi og fl. Verðlaun fyrir sigur í hreðjaglímu hefur verið mjög eftirsóttur gripur er nefnist "Pungbindi lýðveldisins" og er leðurpungbindi með harðri skel fyrir hreðjarnar.
    Árið eftir var einnig haldið Landsmót í Húnaveri og var gestafjöldi nú tæplega 200. Á þessu Landsmóti var súpan fræga sem matreidd er á öllum Landsmótum fyrst matreidd af Heiðari 10 stórbryta Snigla. Heiðar sá æ síðan um að elda ofan í Snigla sína lands frægu súpu á föstudagskvöldum þar til hann lést 02.07.06. Það er óhætt að fullyrða að enginn hafi matreitt ofan í jafn marga mótorhjólamenn og hann Heiðar.
    Næstu ár var verið í Húnaveri, en 1991 var breytt til og Landsmót var haldið á Skógum undir Eyjafjöllum. Á Landsmótinu að Skógum var í fyrsta sinn fenginn aðkeyptur matur ásamt matargerðarmanni til að sjá um hann, en öll árin áður höfðu Sniglar séð sjálfir um að grilla sjálfir Landsmótssteikina. Það var met aðsókn á þetta Landsmót og komu yfir 300 gestir á það mót. Eftir Landsmótið á Skógum hefur Landsmót flakkað um landið og verið nánast í öllum landshlutum nema á norðausturlandi og ekki nær Reykjavík en 100 km.
       Á 10 ára afmælinu var Landsmót haldið í Húnaveri og var það fjölmennasta Landsmót sem haldið hefur verið. Á það Landsmót mættu rétt tæplega 500 gestir. Á síðustu 10 árum hafa gestir á Landsmótum verið á bilinu 200-300 í flestum mótunum á misjöfnum stöðum í mis góðum veðrum.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði