Vélhjólafjelag Gamlingja var stofnað 31.okt 1993 af áhugafólki um uppgerð og varðveislu gamalla vélhjóla og sögu þeirra. Félagar hafa unnið þrekvirki í að bjarga gömlum vélhjólum frá skemmdum og hafa kynnt sér sögu þeirra. Til að sækja um fjelagsaðild þarf að eiga 25 ára gamalt vélhjól og eigandinn þarf að vera komin til vits eða ára.
Málefni fjelagsins eru fjölmörg, flest leynileg. En við höfum reynt að sýna hjólin okkar einu sinni á sumri í Árbæjarsafni.