Flokkar mótorhjóla

Eflaust eru margir að velta fyrir sér mótorhjólakaupum og hvað hæfi sér og því ekki úr vegi að skoða aðeins hvaða flokkar eru í boði.
 
Klifurhjól (trial)
Nýjasta dellan á Íslandi eru hin svokölluðu klifurhjól. Þau eru sérlega létt og meðfærileg hjól ætluð til keppni í klifri. Venjulega er mótorinn um það bil 250 rúmsentimetrar og kílóin í kringum 60. Henta aðeins þeim sem hafa mikla færni í akstri og eru vel á sig komnir.
GasGas 
Gas Gas er eitt þekktasta merkið í klifurhjólunum.
 
Krossarar (motocross)
Krossarar eru hrein og klár leiktæki og mikið notuð til keppna í torfærualstri mótorhjóla. Þau eru venjulega tvígengishjól og eru létt og meðfærileg með mikla fjöðrunargetu sem hentar vel í þeim hamagangi sem þau eru ætluð fyrir. Þau henta vel yngra fólki sem er líkamlega vel á sig komið.
Kawasaki-KX65-2000
Hægt er að fá krossara jafnvel niður í barnastærðir eins og þetta Kawasaki KX65.
 
Torfæruhjól (enduro)
Torfæruhjól eru í bland ferðatæki og leiktæki enda er hægt að fá torfæruhjól í dag sem eru næstum jafnlétt og krossari. Flest eru þau með fjórgengisvélum og ljósabúnaði sem gerir akstur á vegum mögulegan. Þessi hjól henta vel þeim sem vilja geta komist hvert á land sem er á mótorhjóli, jafnt á vegum sem vegleysum.
Yamaha-WR426F-2002
Eitt af vinsælli torfæruhjólum hérlendis er Yamaha WR426F.
 
Vegahjól (funduro)
Þessi mótorhjól hafa fengið þetta nafn vegna þess að þau henta jafn vel á malbiki og möl. Venjulega er hér um frekar stór torfæruhjól að ræða með vindkúpu til að taka mesta vindinn af ökumanni á langferðum. Sum þeirra eru tveggja strokka og vel búin. Henta vel til ferðalaga á Íslandi sem sést best á því að margir útlendingar sem hingað koma velja sér svona hjól til fararinnar.
BMW-F650GS-Dakar-2000
BMW F650 Dakar er hin almenna útgáfa hjólsins sem vann Dakar rallið.
 
Ferðahjól (tourer)
Þessi flokkur fer ört stækkandi og skiptist í nokkra hluta. Venjulega er hér á ferðinni stórt og vel búið hjól með hliðartöskum og tilheyrandi. Strokkarnir eru oftast 4-6 og sprengirými yfir 1000 rúmsentimetrum. Þau eru hönnuð til að fara vel með tvo farþega og því er aftursæti ekki síður þægilegt á ferðahjólunum. Stærstu hjólin eru þess vegna kölluð sófasett. Henta vel til langferða fyrir tvo ef því er að skipta.
Honda-ST1300-PanEuropean-2002
Honda ST1300 Pan European er líklega hið fullkomna ferðahjól.
 
Götuhjól (roadster)
Þessi flokkur hefur verið að vaxa að undaförnu. Hér er um hin klassísku mótorhjól að ræða, sem eru laus við vindhlífar og eru þess vegna oft með viðskeytið “naked”. Mikið er lagt upp úr útliti þeirra eins og í hippaflokki en þau hafa þó betri ásetu en þeir. Erlendis er þessi flokkur einnig kallaður Café Racer en þau henta vel þeim sem vilja hjóla með hléum, þ.e. stoppa reglulega og spjalla við ferðafélagana.
Yamaha-XJR1300-2002
Gott dæmi um nakið götuhjól er Yamaha XJR1300.
 
Sporthjól (racer)
Sporthjólin eru svokallaðar R-týpur og oft mjög öflug og létt. Algengt er að þau séu vel yfir 100 hestöfl jafnvel þó að sum þeirra séu aðeins um 600 rúmsnetimetrar. Áseta er þannig að ökumaður hallar mikið fram á stýrið til að taka á sig lítinn vind og til að fá meiri þunga á framdekkið. Henta vel til brautaraksturs en því miður er engin slík aðstaða hérlendis enn sem komið er.
Kawasaki-ZX-6RR-2003
Kawasaki ZX 6RR er ofurlétt og kraftmikið með eiginleika keppnishjóls.
 
Ofursporthjól (supersport)
Sífelld keppni framleiðanda um hver getur framleitt öflugasta mótorhjólið bjó til þennan flokk. Hér er um stór sporthjól að ræða með mótor vel yfir 1000 rúmsentimetrum. Sum þessara hjóla eru með hámarkshraða yfir 300 km á klst. Henta öllum þeim sem á annað borð hafa skynsemi til að ráða við öll þau hestöfl sem þarna eru í boði, en þau geta farið upp undir 200.
Suzuki-GSX1300R-Hayabusa-2000
Suzuki GSK1300R Hayabusa er eitt hraðskreiðasta hjól heimsins með vel yfir 300 km hámarkshraða.
 
Hippi (custom/cruiser/chopper)
Eins og sjá má á ensku heitunum er hér um stóran flokk að ræða sem fengið hefur samheitið hippi á íslensku. Harley Davidson er hinn upphaflegi hippi en svo hafa margir komið og reynt að líkja eftir þeim, oft með góðum árangri. Í þessum flokki er einnig að finna chopper hjól en það eru mótorhjól sem að eigandinn hefur breytt og lagað að sínum hentugleikum, oft með því að losa þau við óþarfa prjál. Hippi er fyrir alla sem hafa gaman af mótorhjólum en hentar síður til langferða.
HD-FXSTB-NightTrain-2003
Hinn upphaflegi hippi er að sjálfsögðu Harley Davidson og hér er gefur að líta FXSTB Night Train útgáfuna.
 
Fornhjól (old timer)
Ekki má fjalla um flokka mótorhjóla og sleppa fornhjólum. Fornhjól telst slíkt þegar það hefur náð 25 ára aldri. Hinn dæmigerði eigandi fornhjóla er búinn að hjóla í mörg ár og hefur gaman af því að vinna sjálfur við uppgerð hjólanna. Sem betur fer er þó aldrei hægt að flokka öll mótorhjól. Gott dæmi um það er til dæmis nýja MT-01 hjólið frá Yamaha sem er nokkurs konar ofursporthjól en með 1700 rúmsentimetra V2 vél úr hippa frá sama framleiðanda. Þótt búið sé að finna upp hjólið mörgum sinnum er alltaf eitthvað nýtt og spennandi handan við hornið.
Triumph-Tiger100-1966
Triumph hjólin eru algeng í hópi fornhjóla enda áttu margir slík á árum áður. Hér gefur að líta Tiger 100 árgerð 1966.

Tekið saman: Njáll Gunnlaugsson

Written by: Vefstjóri Laugardagur, 07. Mars 2009 02:20
 

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði